Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1911, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.07.1911, Blaðsíða 16
144 því með því að vera þannig andlega lieimilisfastr sýnir hann, að hann fylgir málefni kristindómsins. Hann er með því að kannast við frelsara sinn fyrir mönnum. Þegar eg var vestr í Alberta fyrir mörgum árum, hitti eg þar konu, sem var í söfnuði suðr í Dakota. Hún vildi ekki segja sig úr þeim söfnuði fyrr en söfnuðr væri myndaðr -í Alberta. Þó voru liðin mörg ár frá því hún fór úr Dakota, og bein not hafði hún engin af þeim söfn- uði. Þetta var réttr og fagr hugsunarháttr. Söfnuðrinn á enga kirhju. Stundum er svo ástatt útum byggðir, meðan allt er í frumbýlingsskap, að minnsta kosti í kristil. félagsmálum. Yæri þá ekki rétt- ara fyrir þig, sem finnr sárt til þessarrar vöntunar, að leggja hönd á plóg og hrinda þessu nauðsynjaverki á- fnam sjálfr. Má vera, að þetta fái framgang, ef þú gengr í söfnuðinn. Það er svo mikill ófriðr í söfnuðinum. Slæmt er það, þegar svo er ástatt; en bœtir þú ástandið með því að vera ekki í söfnuði? Má vera það komi þér ekkert við, að reyna til að bœta það, sem að er í þínu mannfé- lagi. Ertu viss um það? Meir en lítið reiðr yrðir þú, ef einliver legði þér í munn orð Ivains: „Á eg að gæta bróöur míns?“ En er það ekki Kains stefna að láta sér vera óviðkomandi mannlegu meinin umhverfis? Mér skilst, að þú vildir vera í söfnuði, ef engin ó- þægindi væri því samfara, ef allt félli þar í Ijúfa löð og allfc væri að þínu skapi og þú þyrftir ekki að leggja á þig neina hyrði nema þá, sem þér þœtti alveg mátuleg. Næsta létt væri þá að vera í söfnuði, líklega svo létt, að það væri einskis virði; því allt, sem gott er hér á jörðu, er samfléttað örðugleikum. Allt ,gott kostar einhvern eitthvað. Frelsarinn hefir aldrei lofað því, að söfnuðr hans skvldi vera dúnsæng. Fylgjendum sínum bendir hann á stríð, ofsóknir, sjálfsafneitun og jafnvel píslar- vættis-dauða. Svo nú er fyrir þig að athuga kostina, sem Jesús býðr þér. 1 raun og veru er stœrsta atriðið í þessu máli ekki það, hvort þú vilt vera í söfnuði eða ekki í söfnuði, heldr hitt, hvort þú vilt fylgja Kristi eða ekki fylgja Kristi. Sá, sem vel gjörir sér grein fyrir

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.