Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1916, Blaðsíða 34

Sameiningin - 01.10.1916, Blaðsíða 34
256 hún gat sent lögmann Önnu til aöstoðar og útvegað veð, svo að henni var leyft að fara heim til sín. Önnu leiS afskaplega illa. Og ekki bætti það, að í kveldblöðun- um var mynd af henni á fyrstu blaðsíðunni og frá því sagt með stóru letri og mikilli mælgi, að hún heföi hjálpað svika-“doktornum” til þess að komast undan lögreglunni. Þess var i'ka getið, að mokkru áður hefði önnur ung stúlka verið í þjónustu þess manns, en hún hefði komist á smoðir um hverskyns atvinnu hann rak, og verið sv’o ráðvönd að fara undir eins úr vistinni. Hún fann sárt til þess, að mannorð hennar var í veði. Allir vissu, að hen-ni hafði verið vel kunnugt um það, að atvinna hús- bónda hennar var ekki heiðarleg; hún hafði meðgengið það fyrir réttinum. Að vísu var málið gegn henni látið falla niður, af þv'í að lögmaður hennar gat samnað það, að hún hefði ekki verið í ráðum með svikaranum, þó að hún hins vegar vissi, að hann hafði pretti i frammi. En þrátt fyrir það vissi hún vel, hvaða álit fólkið í bæn- um hafði á henni. Hún hafði selt mannorð sitt fyrir peninga, og hún vissi, að henni var ekki til neins að reyna að komast þar að nokkurri atvinnu. Ömmu sína gat hún ekki yfirgefið. Gamla konan lifði nokkur ár eftir þetta, og Anna var hjá henni og *stundaði hana. Þegar amma hennar þurfti hennar ekki lengur með, ætlaði hún sér að fa.ra burtu og leita sér atvinnu á ný einhversstaðar þar, seni menn væru búnir að gleyma yfirsjón hennar. Og þá ætlaði hún sér að reynast betur, með Guðs hjálp. ---------------------------------v Einálök blöð af “Sameiningunni ” fást keypt, bæði frá nýrri og eldri tíÖ. Kostar bvert hefti 10 ŒNT. Ekki verða slíkar pantanir teknar til greina nema full borgun fylgi. :: :: :: ÚTGÁFUNEFND KIRKJUFÉLAGSINS Jón J. Vopni, rá?*smaSur. Box 3144, WINNIPEG ___________________________________________________/ “SAMKINIPíGIN” kemur út mánaöarlega. Hvert númer tvær arkir heilar. VeriS einn dollar um áriö. Skrifst 65!'William Ave., Winnipeg, Canada.—Hr. Jón J. Vopni er féhirðir og ráösmaöur "Sam.”—Addr.: Sameiningin, P. O. Box 3144, Winnipeg, Man.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.