Litli Bergþór - 01.03.1992, Síða 20

Litli Bergþór - 01.03.1992, Síða 20
Syngjandi á Laugarvatni Föstudaginn 17. janúar var slegið upp æfingabúðumaðLaugarvatni. Þarvoruáferðinni 30 hressir Tungnamenn, Hilmar Örn með eldri deildbarnakórs Reykholtsskólaogfjórarmömmur. Dagskráin hófst með söngæfingu í Aratungu ki. 10 að morgni föstudags. Að henni lokinni var snæddur hádegisverður að hætti Auðar og Co. Um kl. 12.30 varsvo haldið ávit ævintýranna. Þá voru mömmurnar mættar ásamt Bjarna bílstjóra. Á Laugarvatni fengum við kjallara barnaskólans til afnota, þar sem við létum fara vel um okkur. Strax var hafist handa. Á meðan sumir voru í raddæfingu hjá Hilmari, fóru aðrir út í gönguferðir og leiki með mömmunum. Eftir kaffið, þegar allir höfðu borðað nestið sitt, var - að lokinni söngæfingu - frjáls tími til að undirbúa kvöldvöku. Skipt var í 5 hópa og átti hver hópur að skila 2-3 atriðum. Hugmyndafluginuvargefinnlaustaumur og börnin fóru á kostum við undirbúninginn, svo og flutninginn seinna um kvöldið. Mömmurnar: mamma Maggý, mamma Haddý, - Magga, - Hófý og „mamma Hilmar" voru að sjálfsögðu boðin og búin að aðstoða ef á þurfti að halda. Allir ánægðir eftir skemmtilega og vel heppnaða ferð. Eftir undirbúninginn voru allir orðnir svangir og „kórpylsurnar" voru vel þegnar. Að loknu Kórpylsupartýi rann upp stóra stundin. Kvöldvakan hófst með pompi og prakt og skemmtiatriðin voru sannarlega fjölbreytt. Þar voru frumflutt leikrit og eldra efni tekið og fært í nýjan búning. Spurningakeppnir, ýmsir leikir og sprell. Kvöldvakan endaði svo með krassandi draugasögu. Þegar allir voru komnir í háttinn las Hilmar fallega sögu til að kveða niður drauginn. Að lokum sofnuðu allir vært eftir viðburðarríkan og vel heppnaðan dag. Laugardagur. Á slaginu 8:30 fóru allir á fætur og morgunverður var framreiddur. Aðloknum morgunverði varfarið í leiki og létta morgunleikfimi. Þá tók alvara lífsins við og æfingar byrjuðu af fullum krafti. Eftir hádegisverðinn, sem börnin nefndu „Mömmuspes" lagði söngfólkið leið sína í menntaskólahúsið og þar hófst lokaæfingin. Kl. 14.3o voru svo haldnir lokatónleikarfyrirmömmurnar. Okkur mömmunum þótti miðurað ekki skyldu fleiri geta notið stundarinnar með okkur. Eftir þessa frábæru tónleika héldum við heim á leið, hress og kát eftir ánægjulega og vel heppnaða ferð. Margrét Baldursdóttir. ✓ Iþróttafólk í Biskupstungum: Mynd talið frá vinstri: Jóhann Haukur tók við borðtennisviðurkenningu fyrir hönd bróður síns Unnars Steins, Jónas Unnarsson sundmaður, Ólafur Loftsson fékk viðurkenningu frá sunddeild H.S.K. fyrir mestu bætinguna á milli ára. Róbert Einar Jensson frjálsíþróttamaðurog jafnframt íþróttamaðurársins 1991, Haukur Harðarson körfuboltamaður, Rúnar Bjarnason fótboltamaður og Þórey Helgadóttir íþróttakona ársins 1991. Litli - Bergþór 20

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.