Litli Bergþór - 01.03.1992, Page 26
Afrétturinn og gróðurvemd
Fundur Landgræðslunnar og sveitastjómamanna
✓
í uppsveitum Arnessýsu
Miðvikudaginn 5. febrúar var haldinn
fundur á Flúðum með sveitarstjórnum
Biskupstungnahrepps,
Hrunamannahrepps, Gnúpverjahrepps,
Skeiðahrepps og fulltrúum Flóamanna.
Tilefnið var bréf frá Landgræðslunni sent
þessum aðilum og því voru fulltrúar
Landgræðslunnar og áróðursmeistarar
einnig á þessum fundi.
Um 25 sveitarstjórnarmenn og fulltrúar
hreppanna voru á fundinum og lögðu
Landgræðslumenn sig fram við að
sannfæra fundarmenn um að beit á
afréttinum væri til hins verra fyrir
gróðurmyndun þar.
Sveinn Runólfsson kynnti
jafnframt þingsályktunartillögu
sem samþykkt hefur verið á alþingi
þess efnis að unnið verði að stöðvun
jarðvegseyðingar fyrir
aldamótin.
Andrés Arnalds
sýndi margar myndir
teknar úr lofti, en var "" "" reyndar oft
ekkert viss um, hvaðan
myndirnar væru. Hann
sýndi einnig súlurit, mikið
áróðurssúlurit að mínu mati,
þar sem hann sagði 20%
afréttar
Biskupstungnamanna
gróinn en þar kom ekki
fram hvort um væri að
ræða allan afréttinn eða
einungis það landsvæði
sem getur gróið. Ekki
kom fram að jöklar, vötn,
hraun og fjöll (Kjalfell,
Hrútfell, Bláfell) væru undanskilin í þessum
útreikningi og ekki kom heldurfram, hvað
landið, sem um var að ræða, er hátt yfir
sjávarmáli.
Sigurður H. Magnússon, frá Bryðjuholti,
var með fróðlegt erindi um þær athuganir
sem hann hefur gert s.l. 9 ár á gróðurfari í
afrétti Hrunamanna og var góður rómur
gerður að þvf, enda fræðslan mikil en
áróðurinn minni.
Mikil og lífleg umræða skapaðist eftir
erindi Landgræðslumanna en þeirvildu
ekki alveg sleppa umræðunum lausum og
Sveinn blandaði sér þannig nokkrum
sinnum inní umræður heimamanna til að
árétta það sem sagt var og
leggja mat
Er ekki best
hafa roilurnar uppi á jöklum
svo þær skemmi ekki
gróðurinn?
En ég á Bláfell.
Landgræðslunnar
á það.
Heimamenn
sem þarna
töluðu voru
greinilega mjög
kunnugir sínum afréttum,
margir vanir fjallmenn til margra ára og
þekkja þannig landið og afréttina mjög vel
og frá mjög mörgum hliðum, í mismunandi
tíðarfari.
Allra rómur var að heimamenn skyldu
ráða afréttunum en Landgræðslan benti á
að á Alþingi væri verið að vinna að því að
færa þessi mál undir Umhverfisráðuneytið
og ef af því yrði, þá væri líklegt að
heimamenn hefðu ekkert um afréttina að
segja. Skilja mátti á hans máli að hann
teldi það betri kost fyrir heimamenn að
vinna að þessum málum í samstarfi við
Landgræðslunna en í andstöðu við hana.
Samþykkt var á fundinum að skipa
samstarfsnefnd fulltrúa afréttareiganda og
Landgræðslunnar um málefni afrétta
uppsveita Árnessýslu og hefur Jón
Karlsson verið tilnefndur sem fulltrúi
Biskupstungna í nefndinni.
D.K.
Litli - Bergþór 26