Litli Bergþór - 01.03.1994, Qupperneq 4
Formannsspjall
H.S.K. þing og fleira
.....
Frávinstri: Þórir Jónssonform. U.M.F.l.
og Sveinn Sœland þingforseti.
Nú þegar þessi orö eru rituð er ný afstaðið 72.
Héraðsþing HSK sem var haldið hér í Aratungu
dagana 26. - 27. febrúar. Þingið fór vel fram og var
hið skemmtilegasta. Biskupstungnahreppur var svo
rausnarlegur að bjóða þingfulltrúum í hádegismat á
sunnudeginum og komu Gísli oddviti og Ingibjörg
kona hans og borðuðu með okkur af því tilefni.
Stjórn Ungmennafélagsins vill hér með þakka
Biskupstungnahreppi fyrir það rausnalega boð.
Þingfulltrúar og gestir þingsins voru að um 100.
Kata sá um að fæða þennan hóp og gekk það allt
mjög vel, allavega vorum við ánægð með allt það
sem okkur var boðið uppá og ég vona að
þingfulltrúm hafi liðið vel hér hjá okkur. Við
útveguðum þinginu tvo starfsmenn en það voru þau
Sveinn Sæland sem var 1. þingforseti báða dagana
og Matthildi Róbertsd sem var ritari fyrri daginn.
Þingfulltrúar Umf. Bisk. voru undirrituð og Áslaug
Sveinbjörnsd sem sátu báða dagana og Gústaf
Sæland og Ingunn Birna Bragad. skiptu svo
tveimur dögum á milli sín. Nokkrir gestir komu á
þingið og má þar t.d. nefna Þóri Jónsson formann
Þorgeir Vigfússon núverandi sleifarhafi og
Gunnar Sverrisson, fyrrverandi sleifarhafi.
UMFÍ, Pálma Gíslason, fyrrverandi formann UMFÍ,
Helga Haraldsson formaður FRÍ, Sæmund
Runólfsson framkvæmdarstjóra UMFÍ, Hafstein
Þorvaldsson og konu hans Ragnhildi Ingvarsdóttur.
Verðlaunaafhending íþróttamanns ársins var fyrir
kvöldmat á laugardagskvöldinu og áttum við þar
íþróttamann ársins í borðtennis, en það var Einar
Páll Mímisson, og óska ég honum til hamingju með
það. Kvöldvaka var svo um kvöldið og byrjaði hún
með bændaglímu, síðan lásu þau Arnór Karlsson,
Sigurður Þorsteinsson, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir
og Bjarni Kristinsson upp úr gömlum fundagerða-
bókum Ungmennafélagsins. Þar á eftir var sýnt
smá brot úr leikritinu Ingveldi á Iðavöllum og
kvöldvakan endaði með sleifarkeppni sem Gunnar
Sverrisson þáverandi sleifarhafi stjórnaði. í tilefni af
þessu þingi var haldin myndasýning úr sögu
félagsins í Aratungu . Ég vona að sem flestir hafi
séð þá sýningu og haft gaman af. Það framtak er
þeim Arnóri, Sveini
Sæland og Jens
Pétri að þakka. Að
endingu vil ég þakka
öllum þeim sem
réttu okkur
hjálparhönd á þessu
þingi kærlega fyrir.
Kvöldið fyrir
Héraðsþingið eða
föstudagskvöldið
25. feb. var frumsýnt
leikritið Ingveldur á
Iðavöllum eftir
Ingibjörgu Hjartar-
dóttur og Sigrúnu
Óskarsdóttur í
leikstjórn Signýar
Pálsdóttir og að því
stóð leikdeild Umf.
Bisk. Um eitthundrað og fjörutíu manns voru á
frumsýningu og eitthvað færri á annari sýningu sem
var 27. feb. Leikhópurinn getur verið mjög ánægður
með undirtektir og þá jákvæðu dóma sem heyrst
hafa ( þeir neikvæðu komast ekki inn fyrir okkar
eyru). Ég sem formaður Ungmennafélagsins og ein
úr leikhópnum vil þakka öllum þeim sem komu
nálægt þessari uppfærslu fyrir ánægjulegt samstarf.
íþróttirnar eru á sínum stað að venju og
íþróttadeildin búin að halda sinn aðalfund og velja
íþróttafólk ársins.
M.S.
íþróttamaður H.S.K. í
borðtennis,
Einar Páll Mímisson.
Litli - Bergþór 4