Litli Bergþór - 01.03.1994, Qupperneq 7
Hreppsnefndarfréttir
Er búið að
halda
niðsvetrarfund?
3. Fundargerð atvinnumálanefndar frá 17. des.
1993.
Lögð fram til kynningar og umræður urðu um
sorpeyðingarmál, sem eru orðin mjög
kostnaðarsöm. Þar kemur til greina og þykir álitlegt
að koma upp brennsluofni, sem nýttur yrði fyrir allar
uppsveitirnar og framleiddi heitt vatn. Þá yrði einni
að taka upp flokkun sorps.
Samþykkt að senda erindi um þetta mál til atvinnu
og umhverfisnefndar.
4. Tónlistarskólinn.
Kynnt var kostnaðaráætlun fyrir árið 1994 og kemur
fram að Biskupstungnahreppur á að greiða kr.
1.801.680,-.
6. Ár fjölskyldunnar.
Lesið bréf frá landsnenfd um „Ár
fjölskyldunnar“ þar sem
kynntar eru hugmyndir
nefndarinnar.
Einnig var kynnt átakið um
^^ „Sækjum ísland heim“ í tilefni af „Ári
( ) fjölskyldunnar11. Samþykkt var að kjósa
Margréti Bóasdóttur formann nenfdar
^vegna „Árs fjölskyldunnar".
' ^ 7‘ Br3öabirgðaruppgjör
- * :wrríl.skólamötuneytis sept.-des. 1993.
i,.Þar kemur fram að máltíðin er á kr.
161,73. Rætt var um rekstur Aratungu
og hvernig hægt sé að auka
reksturinn. Samþykkt var að stefna að
■ því að ráða verkstjóra til hreppsins
vorinu. Tilnefndir voru Guðmundur
Ingólfsson á Iðu og Sveinn Sæland til að undirbúa
málið fyrir næsta fund með oddvita.
8. Ferðamálanefnd - merkingar.
Sveinn Sæland kynnti skilti fyrir þéttbýlin í sveitinni:
Laugarás, Reykholt og Syðri-Reyki. Kostnaður
sveitarinnar verður um kr. 200-300 þús. Samþykkt
var að gera þetta.
9. Leikskólanefnd.
Beiðni kom frá nokkrum foreldrum leikskólabarna að
fella niður hluta af leikskólagjöldum í desember.
Erindinu hafnað.
10. Önnur mál.
Rætt var um slökkvistöðina. Þar kom fram að búið
er að loka húsinu og panta hurðir, svo það hillir
undir að hægt verði að taka húsið í notkun fyrir
haustið.
m e ð
Fundur 8. febrúar 1994.
1. Oddur Már Gunnarsson og Valgeir Ingi Ólafsson
komu á fundinn. Oddur Már fjallaði um starf sitt og
skýrði frá starfsemi atvinnuþróunarsjóðs
Suðurlands.
Valgeir Ingi ferðamálafulltrúi Suðurlands skýrði frá
því í hverju starf hans er fólgið, einnig um útgáfu
kynningarbæklinga. Eftir þeirra mál svöruðu þeir
fyrirspurnum um atvinnu og ferðamál og spunnust
út frá því nokkrar umræður.
2. Bréf U.M.F.Í.
Lagt fram bréf frá U.M.F.Í. dags. 9. des '93, þar
sem óskað er liðsinnis sveitarfélagsins við
undirbúning og framkvæmd Landsmóts U.M.F.Í. að
Laugarvatni 14.-17. júlí 1994.
3. BréfH.S.K.
Lagt fram bréf frá H.S.K. dags. 10. jan '94 þar sem
hreppsnefnd er boðið að styrkja sambandið vegna
landsmóts U.M.F.Í. Hreppsnefnd samþykkir að
leggja fram kr. 40.000 til H.S.K. vegna landsmóts.
4. Skarphéðinsþing í Aratungu.
Gísli skýrði frá því að Skarphéðinsþing verði haldið í
Aratungu 26.-27. febrúar '94. Ákveðið var að
hreppsnefnd bjóði þingfulltrúum til hádegisverðar á
sunnudeginum.
6. Skattur á skrifstofu og verslunarhúsnæði.
Samþykkt var að leggja á sérstakan skatt á
skrifstofu og verslunarhúsnæði 0,9%, sem er
lágmark samkvæmt gildandi lögum.
9. Lögð fram fundargerð frá 22. nóvember 1993
um stofnun landgræðslufélags í Biskupstungum.
12. Uppgjör farfuglaheimilis.
Lagt fram uppgjör Farfuglaheimilis í Reykholti fyrir
1993. Gistinætur voru 1717 og innkoma kr.
1.416.825,-. Húsaleiga af gistingu
16% kr. 226.692,-.
13. Söfnun vegna brunans á
Stöllum.
Safnast hafa um 2,5 millj. kr.
Söfnun lýkur 8. febrúar 1994.
14. Kjartan sagði frá fundi
íþróttahússnefndar með Valdemari
Harðarsyni arkitekt. Sveinn Sæland vill
ekki að sá möguleiki verði útilokaður að
hægt verði að stækka húsið í löglega
stærð fyrir handknattleik.
Ég gefkost á i f
prófkjöri hjá c i
listun;
Litli - Bergþór 7