Litli Bergþór - 01.03.1994, Blaðsíða 8
Bamakór Biskupstungna
A föstudaginn 4. febrúar s.l. kom Þórunn
Valdemarsdóttir meö nemendur sína úr
Kársnesskóla í kóræfingabúðir í Reykholt. Tekiö var
á móti henni og kór hennar af Barnakór
Biskupstungna og sungu nemendur 4., 5. og 6.
bekkjar Reykholtsskóla þ.e. „miö kórinn" meö
Kársneskórnum frá því kl. 15 fram á kvöld. Þá var
haldin kvöldvaka, en áöur höföu börnin fengið mat
hjá Katrínu úr skólamötuneytinu.
Kársnesskólakór og Barnakór Biskupstungna
syngja saman í Reykholtsskóla.
Börnin skemmtu sér konunglega meö nýjum
félögum og komu ekki heim fyrr en undir miönætti á
föstudagskvöldið.
Svo var byrjaö aö syngja aftur í býtiö á
laugardagsmorgni og nú tóku allir nemendur 1. til 6.
bekkjar þátt í æfingunni. Sungiö var fram aö hádegi.
Þá var mannskapnum gefiö aö boröa og munu um
115-120 krakkar hafa verið í hádegismat. Katrín sá
um matinn ásamt Brynhildi, en foreldrar barna úr
kórnum komu henni til hjálpar bæöi á föstudag og á
laugardag. Þaö voru miklu fleiri munnar en pantaö
haföi verið fyrir en allir fengu þó nóg. Þórunn haföi
ætlað aö koma hálfum mánuöi fyrr í æfingabúðir en
þá frestaðist för vegna veöurs. Þaö mun hafa haft
þær afleiðingar aö stööugt bættust fleiri í hópinn hjá
henni.
Til gamans má geta þess aö 10. bekkjar stúlkur
voru í för meö Þórunni og var mjög gaman aö hlusta
á söng þeirra. Þær hjálpuöu einnig yngri krökkunum
viö raddsetningar og voru okkar börn mjög hrifin af
þessum stúlkum enda þær til fyrirmyndar aö öllu
leyti.
Þaö er eins og endranær ýmislegt á döfinni
varðandi barnakórsmál.
Stjórn foreldrasamtakanna var valin á fundi og
skemmtun sem kórinn hélt foreldrum í nóvember s.l.
Þaö var vel mætt og mjög gaman aö allra mati.
Börnin sem lengst eru komin í söng syngja orðið
þríraddaö og hefur kórinn vaxiö mjög aö færni
undanfarna mánuöi. Æft er einu sinni í viku innan
veggja skólans þ.e. á skólatíma en Hilmari þykir
mjög mikilvægt aö börnin syngi meira saman og æfi
sig oftar, svo aö brugðið var á þaö ráö aö nemendur
4., 5. og 6. bekkjar æfa eftir skóla á þriðjudögum í 2
klst.
Kórinn mun sinna krikjunni þannig aö hann kemur
fram í messu einu sinni í mánuði, annaö hvort allur
eöa hluti hans.
Ýmsar uppákomur hafa nú þegar oröiö, svo sem
aö í febrúar var haldin æfingahelgi meö Guöfinnu
Dóru, kórstjóra Flataskóla og síöan sungu kórarnir
viö messu í Skálholti sunnudaginn 20. febrúar.
Þann 5. mars var æfingadagur barnakóra í
Árnesprófastdæmi á Selfossi og daginn eftir 6. mars
sungu börnin viö æskulýðsmessu á Torfastöðum.
Svo er ætlunin aö syngja við páskamessu í
Skálholti á páskadag.
Síöastliöiö vor heimsótti barnakórinn úr Vík okkar
kór og nú á aö endurgjalda heimsóknina. Því er
áætlað vorferöalag til Víkur í Mýrdal helgina 30.
apríl - 1. maí.
Komiö hefur til tals aö vera meö einhverja
fjölskylduskemmtun í tilefni af ári fjölskyldunnar en
ekkert er enn búiö aö ákveöa í þeim efnum.
Gaman væri ef fólk sem hefur hugmyndir og vilja til
aö vinna aö einhverju slíku kæmi fram meö þær.
Síðast en ekki síst er aö segja frá því aö kórnum
hefur borist boö frá Kalundborg í Danmörku um aö
taka þátt í árlegu kóramóti þar sem haldið veröur
21 .-23. apríl 1995. Vinkona Michaels
tónlistarkennara (hún stjórnar barnakór í Danmörku)
var hér á afmælishátíð Torfastaöakirkju þann 31.
október s.l. og þá heyröi hún börnin okkar syngja.
Hún varö svo hrifin aö hún sendi kórnum boö um
þátttöku í kóramótinu og nú er bara aö sjá hverjar
undirtektir veröa hjá foreldrum, stjórnanda (Hilmari)
og börnunum. Svona ferö útheimtir mikinn
undirbúning allra svo hún verður ekki farin nema aö
Björt, Svanhvít og Elín með leik á kvöldvöku.
Guðfinna Dóra og krakkarnir fylgjast með afáhuga.
allir leggist á eitt um aö vilja slíkt og aö veita því
brautargengi.
D.K.
Litli - Bergþór 8