Litli Bergþór - 01.03.1994, Qupperneq 13
Unglingsárin
- v
Unglingar eru aö mínu mati sá aldurshópur sem oft verður undiroka í samfélaginu og
sem oftast veröur kennt um allt sem aflaga fer.
En því miður er stór hópur fólks sem vill dæma alla unglinga sem einn hóp af
einskinsverðum „lúserum“ en það áttar sig bara ekki á að lang flestir unglingar eru í raun
hið besta fólk.
Sumir unglingar geta stundum orðið of pirrandi en fólk á ekki að láta það ráða afstöðu
sinni til unglinga yfirleitt. Þó að ég sé ekki nema 11 ára þá skil ég málstað unglinga mjög
vel því þeir eru stórlega misskilinn og hundsaður aldurshópur.
_____________________________________________________Stefán Ólafsson 5. bekk.
Mörgum finnast unglingsárin erfiðasti tími lífs síns. Þá breytist barnið í fullorðna
manneskju. Þetta tímabil er oft nefnt gelgjuskeiðið.
Hér í skólanum eru margir á gelgjuskeiðinu. Strákarnir sem stunda borðtennis fyrir
framan stofuna okkar geta verið mjög dónalegir við okkur (aðallega stelpurnar). Við
megum ekki sitja nálægt borðtennisborðunum, en ef við gerum það eigum við fótum fjör
að launa. Ég á engin eldri systkini en ég þekki stelpu sem er fjórum árum eldri en ég og
ég lék mér oft við hana. Síðan flutti hún burt. Nú nýlega fórum við í heimsókn til þessa
fólks. Þá lét hún sem ég væri ekki til. Ég varð líka mjög hissa þegar litli bróðir hennar
upplýsti mig um það að hún væri byrjuð með strák. Gamla vinkonan mín með strák. Þá
sá ég að hún er á gelgjuskeiðinu.
Ég veit að ég á líka eftir að verða svona og ef til vill enn verri en þeir sem ég hef verið
að lýsa.
Því segi ég bara við alla sem eru á þessu skeiði: „Gangi ykkur vel.“
v_________________________________________Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir 5. bekk.
- ” \
Unglingsárin geta verið erfitt tímabil fyrir marga. Þá koma ýmsar breytingar í Ijós og
sumir geta orðið dálítið ruglaðir, en aðrir finna ekkert á sér. Þetta er stundum kallað
gelgjuskeiðið.
Stundum eru unglingar alveg í kerfi, af því ný bóla er vaxin í andlitinu og eyrun eru of
útstæð. Næsta dag er hægt að taka þátt í fegurðarsamkeppni. Sumir spá í ýmis verkefni
(þar á meðal borðtennis) og ef það er gaman þá er ekki hægt að „slíta“ þá frá því. Margir
lenda í fíkniefnum af því að það verður að vera töff eins og hinir, annars lenda þeir
útundan. Minnimáttarkennd getur orðið mjög mikil, hún getur komið fram í ýmsum
formum eins og að stríða og lemja minnimáttar.
En það er líka eins gott að þetta gengur fyrir hjá flestum.
Guðbjört Gylfadóttir 6. bekk.
v___________________________________________________________________________________J
Ljóð eftir Gunnar Örn Þórðarson 6. bekk.
Hugarástand Ekkert er eilíft Glataðir hæfileikar
Úr friðsælu þorpi Tröllið breytist Situr
í algjöra auðn stein fyrir stein horfir út um gluggann
svartir málmfuglar fljúga yfir fugl flýgur kastar hæfileikum.
eyðileqqinqu oq manndráo eldist Veit hvað 1 • 1 er
Pólland verður gamall en svarar ekki dæminu.
ísraelar, eldist, eldist
undir nasistastjórn. steinar hrynja
Gyðingar í útrýmingarbúðum. hverfa
Gasklefar, fuglinn deyr
þrælkun, hverfur,
fjöldamorð. Á annar kemur brýst út inn í sólina.
Litli - Bergþór 13