Litli Bergþór - 01.03.1995, Side 10
Frá íþróttadeild U.M.F.B.
Ólafur Bjarni Loftsson.
Körfuknattleiksmaður ársins
Þegar það var nefnt við mig að velja körfuknattleiksmann ársins
upphófst þögn, þá stuna, loks andvarp. Þannig er nefnilega háttað að sá
hópur ungra körfuknattleiksmanna og kvenna sem ég hef leiðbeint í vetur
er sérstsklega jafn bæði hvað varðar drengi og stúlkur. Ég held, að flestir
ef ekki allir í hópnum eigi eitthvað tilkall til titilsins. Aðeins einn hlýtur hann
þó ár hvert að þessu sinni er það Ólafur Bjarni Loftsson.
Ólafur er góð fyrirmynd annarra í framkomu og mætingu, maður, sem
hvetur félagana áfram hvað sem á dynur og gefst ekki upp. Hann hlýtur því
titilinn að öðrum ólöstuðum.
Ólafur Bjarni, til hamingju. Þú ert vel að þessu kominn. Samviskusemi
þín og dugnaður við æfingar geta fleytt þér langt.
Megir þú njóta íþróttanna sem lengst og íþróttirnar þín.
Freyr Ólafsson, þjálfari.
Knattspyrnumaður ársins
Knattspyrnumaður ársins að þessu sinni er Axel Sæland og er
vel að þeim titli kominn. Ekki er nóg með að hann sé góður
knattspyrnumaður, heldur er mæting og framkoma hans á velli og utan
hans, til fyrirmyndar. Þess má geta að fara með liðið til keppni er mjög
ánægjulegt og „vandræðalaust" og liðinu mikill sómi að.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu nálægt knattspyrnunni síðasta
sumar: krökkunum, foreldrum, og stjórnendum Ungmennafélagsins
fyrir samstarfið síðasta sumar. Haldið áfram á sömu braut.
Hjörtur Fr. Vigfússon, þjálfari.
Axel Sœland.
Arangur íþróttamanna UMF. Bisk. 1994
íslandsmet:
Tómas Grétar Gunnarsson
Stangarstökk 20 ár og yngri
4,3 lm.
íslandsmeistarar:
Tómas Grétar Gunnarsson
Stangarstökk 20 ár og yngri
4,3 lm.
Tómas Grétar Gunnarsson
Hástökk l,90m.
Landsmót UMFÍ
Tómas Grétar Gunnarsson
hástökk karla l,91m.
Skarphéðinsmeistarar:
Frjálsar íþróttir
Tómas Grétar Gunnarsson
grein fl. árangur
hástökk______karlar 1,90m.
stangarstökk karlar 3,80m.
Borðtennis
Georg Kári Hilmarsson
einliðaleikur strákar 11-12 ára
Ingimar Ari Jensson
einliðaleikur piltar 14-15 ára
Einar Páll Mímisson
einliðaleikur drengir 16-17 ára
Suðurlandsmeistarar
borðtennis
A-sveit UMFBisk
Axel Sœland, Guðni Páll
Sœland, Ingimar Ari Jensson og
Þorvaldur Skúli Pálsson
Litli - Bergþór 10