Litli Bergþór - 01.03.1995, Blaðsíða 21
Kórínn í söfnunarherferð í
Kringlunni 18. nóv. 94.
Börnin og Hilmar hafa lagt
á sig óhemju vinnu við æfingar
og lætur árangurinn ekki á sér
standa.
Tvennir tónleikar voru
haldnir á aðventunni í Skálholti,
annarsvegar með kór
Menntaskólans að Laugarvatni
og hinsvegar með Skálholtskór.
Öllum bar saman um að þessir
tónleikar tókust með afbrigðum
og hrein unun var að hlusta á
söng barnanna.
Skólinn setti á svið tvo söngleiki, annan
Stúlkan með eldspýturnar með eldri nemendum
og kórfélögum og hinn Dimmalimm með yngri
börnunum. Þótt þetta starf hafi e.t.v. ekki verið
beint starf kórsins þá tóku allir kórfélagar þátt í
þessum söngleikjum auk fleiri nemenda úr
skólanum og flutningur barnanna var mjög
góður og skemmtilegur áheyrnar.
Það er mjög mikilvægt að hlúa að því
starfi sem nú hefur verið unnið. Það er alveg
ómetanlegt sveitarfélagi eins og
Biskupstungum að hafa nú loks fengið að njóta
þess að hafa áhugasaman tónlistarmann sem er
tilbúinn til að leggja á sig ómælda vinnu til að
glæða áhuga barnanna á tónlist. Þetta ber að
styðja og þetta hafa safnaðarnefndir og
hreppsnefnd auk annarra stutt. Þakkar stjórn
Foreldrafélagsins innilega veittan stuðning.
D.K.
Atriði úr Dimmalimm.
Atriði úr Litlu stúlkunni með
eldspvturnar.
BISK-VERK
Tökum að okkur alla byggingastarfsemi
Nýsmíði - Viðhald
Sumarhúsaþj ónus ta
Þorsteinn Þórarinsson, sími 68862
Skúli Sveinsson.......... 68982
Bflasími 985-35391
Litli - Bergþór 21