Litli Bergþór - 01.07.1998, Page 8
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps 1994-1998. F.v. Svavar Sveinsson, Drumboddsstöðum, Guðmundur Ingólfsson,
Iðu, Kjartan Sveinsson, Brceðratungu, Gísli Einarsson, oddviti, Kjarnholtum, Sveinn A Sœland, Espiflöt,
Drífa Kristjánsdóttir, Torfastöðum, og Páll M. Skúlason, Kvistholti.
Hreppsnefndarfundur 8. júní 1998.
Fundinn sátu nýkjörnir fulltrúar í nefndinni.
Af H-lista: Sveinn Sæland, Margrét Baldursdóttir og
Páll M. Skúlason.
Af K-lista: Margeir Ingólfsson, Svavar Sveinsson og
Sigurlaug Angantýsdóttir.
Af L-lista: Agla Snorradóttir.
Sveinn Sæland setti fund og fól Páli M. Skúlasyni að
rita fundargerð.
Kjör oddvita, varaoddvita og ritara.
Sveinn Sæland var kjörinn oddviti með 7 atkvæðum.
Hann þakkaði traustið og tók síðan við fundarstjóm sem
slíkur. Margrét Baldursdóttir var kjörin varaoddviti og
Sigurlaug Angantýsdóttir ritari.
Lögð fram tillaga um að í hreppsráð til eins árs verði
kosin: Margeir Ingólfsson formaður, Svavar Sveinsson
varaformaður og Sveinn Sæland. Til vara Sigurlaug
Angantýsdóttir, Páll M. Skúlason og Margrét
Baldursdóttir. Tillagan var samþykkt.
Lögð fram tillaga um fulltrúa í skólanefnd:
Formaður Kristján Valur Ingólfsson, Margeir Ingólfsson
og Aðalheiður Helgadóttir. Til vara: Páll M. Skúlason
varaformaður, Kjartan Sveinsson og Gylfi Haraldsson.
Tillagan var samþykkt.
Lögð fram tillaga um fulltrúa í kjörstjórn:
Sigurður Erlendsson formaður, Sigríður Jónína
Sigurfinnsdóttir og Gústaf Sæland.
Til vara Elínborg Sigurðardóttir og Pétur
Skarphéðinsson. Tillagan var samþykkt.
Lögð fram tillaga um fulltrúa í svæðisbama-
vemdamefnd: Hólmfríður Ingólfsdóttir og Margrét
Baldursdóttir til vara. Tillagan var samþykkt.
Samþykkt var að fulltrúar hreppsins í undirbúningi
sameiningarkosninga þann 27. júní 1998 verði áfram þeir
Svavar Sveinsson og Páll M. Skúlason.
Samþykkt var tillaga um að sveitarsjóður kostaði
samkomu til heiðurs Gísla Einarssyni fráfarandi oddvita,
þann 12. júní n.k. áætlaður kostnaður 250 - 300 þúsund.
Samþykkt var tillaga um að Svavar Sveinsson
verði áfram fulltrúi hreppsnefndar í stjóm
Minningarsjóðs Biskupstungna.
Hreppsnefndarfundur 15. júní 1998.
Samþykkt var tillaga um að Sveinn A. Sæland fái
prókúmumboð í stað Gísla Einarssonar.
Varðandi breytingu á deiliskipulagi að Brattholti í
Biskupstungum. Samþykkt var að fela oddvita að ganga
frá málum, svo framarlega að ekki komi fram
athugasemdir sem berast áttu fyrir 15. júní 1998.
Hreppsráðsfundur 16. júní 1998.
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem lofað er láni
upp á 10 milljónir á þessu ári, 40% greitt 1. ágúst, 30% 1.
október, 30% 1. des.
Bréf Renötu Vilhjálmsdóttur þar sem farið er fram
á endurbætur á kennsluaðstöðu í heimilisfræði og fl.
Skólanefnd falið að kanna málið.
Bréf Foreldrafélags Reykholtsskóla þar sem farið er
fram á fjárstyrk til að halda foreldrafæmisnámskeið.
Samþykkt að veita allt að kr. 50 þús. til verkefnisins.
Bréf Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Efni:
Lokauppgjör Sérdeildar Suðurlands. Greiðsla Biskups-
tungnahrepps kr. 196,3 á íbúa, samtals kr. 101.291,--
Beiðni Hlífar Pálsdóttur um að framlengja
vínveitingaleyfi fyrir veitingastofuna við Iðubrú í
Laugarási. Hreppsráð samþykkir erindið.
Beiðni Kristjáns Vals Ingólfssonar um endumýjun
á vínveitingaleyfi til veitingastofu í Skálholtsskóla.
Hreppsáð samþykkir erindið.
Hreppsráð samþykkir að sækja um styrk til
Fjallvegasjóðs til gerðar vegslóða af Kjalvegi á
Bláfellshálsi vestur að Langjökli og verði
Biskupstungnahreppur veghaldari. Gengið var frá
umsókn þar að lútandi um 1 milljón kr. styrk.
Litli - Bergþór 8