Litli Bergþór - 01.07.1998, Síða 10
Sveitarstjórnar- og sameiningarkosningar
Einhver umræða byrjaði um hreppsnefndarkosningar,
þegar Gísli oddviti greindi frá því í fyrravor að hann
myndi ekki gefa kost á endurkjöri oftar.
Lengi vel var hún þó ekki mjög áberandi, og voru
ýmsir fréttaþyrstir famir að kvarta undan því að ekkert
heyrðist um framboð eða annan undirbúning
kosninganna.
A útmánuðum fer svo að fréttast að fundum
forráðamanna listanna, sem buðu fram síðast. Mörgum
kom á óvart að heyra að samkomulag hefði tekist milli
forystumanna þessara lista að stefna að því að ekki yrðu
boðnir fram listar að þessu sinni og kosningar því
óbundnar. Sá vamagli var þó sleginn að þeir yrðu að
vera við því búnir að einhverjir aðrir legðu fram lista og
bjóða þá einnig fram. Fyrst fréttist af undirbúningi Stígs
Sæland og félaga hans að framboði. í kosningalögum er
kveðið á um að komi aðeins fram einn framboðslisti skuli
framboðsfrestur framlengdur um tvo sólarhringa. Þegar
heyrðist af undirbúningi annars framboðs, sem þá var oft
kennt við Vegatungu, var ljóst að við þurfti að bregðast
áður en framboðsfrestur rynni út til að fráfarandi
hreppsnefndarmenn og fylgismenn þeirra hefðu
möguleika á framboði.
Fyrir lok framboðsfrests voru lagðir fram fjórir listar.
Þrír vom með 14 frambjóðendur en einn með 7, sem er
nóg samkvæmt lögum.
Þessir listar voru þannig skipaðir:
H-listi óháðra.
1. Sveinn A. Sæland, garðyrkjubóndi, Espiflöt.
2. Margrét Baldursdóttir, húsmóðir, Króki.
3. Páll M. Skúlason, námsráðgjafi, Kvistholti.
4. Geirþrúður Sighvatsdóttir, lyfjafræðingur, Miðhúsum.
5. Sigríður Jónsdóttir, húsmóðir, Gýgjarhólskoti.
6. Jens Pétur Jóhannsson, rafvirkjameistari, Laugarási.
7. Helgi Guðmundsson, bóndi, Hrosshaga.
8. Þórdís Sigfúsdóttir, verkakona, Reyniflöt.
9. Aðalheiður Helgadóttir, garðyrkjubóndi, Varmagerði.
10. Magnús Ásbjömsson, garðyrkjumaður, Birkilundi.
I 1. Hólmfríður Bjarnadóttir, fararstjóri, Skálholti.
12. Pétur Skarphéðinsson, læknir, Launrétt.
13. Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir, verkakona, Hrísholti.
14. Sverrir Gunnarsson, bóndi, Hrosshga.
K-listi samstarfsniannu um sveitarstjórnarmál.
1. Margeir Ingólfsson, framkvæmdastjóri, Brú.
2. Svavar Sveinsson, bóndi, Drumboddsstöðum.
3. Sigurlaug A. Angantýsdóttir, kennari, Heiðmörk.
4. Guðmundur Ingólfsson, vélvirkjameistari. Iðu.
5. Guttormur Bjamason, bóndi, Skálholti.
6. Kristinn Antonsson, bóndi, Fellskoti,
7. Guðmundur Sigurðsson, bóndi, Vatnsleysu.
8. Hákon Páll Gunnlaugsson, húsasmiður, Hvítárbakka.
9. Camilla G. Olafsdóttir, bóndi, Ásakoti.
10. Guðný Rósa Magnúsdóttir, afgreiðsludama, Tjörn.
11. Jón Harry Njarðarson, bóndi, Brattholti.
12. Bjami Kristinsson, kaupmaður, Brautarhóli.
13. Kjartan Sveinsson, bóndi, Bræðratungu.
14. Gísli Einarsson, oddviti, Kjarnholtum.
L-listi lýðræðissinna.
1. Agla Snorradóttir, kennari, Vegatungu.
2. Þorsteinn Þórarinsson, byggingameistari, Hábrún.
3. Brynjar G. Sigurðsson, bóndi, Heiði.
4. Erla Káradóttir, launþegi, Miðholti 1.
5. Gunnar Ingvarsson, bóndi, Efri-Reykjum.
6. Kristján Kristjánsson, bóndi, Borgarholti.
7. Sigurjón Kristinsson, verkamaður, Kistuholti 21.
8. Ottar Bragi Þráinsson, bóndi, Miklaholti.
9. Þórður Jóhannes Halldórsson, bóndi, Litla-Fljóti.
10. Gísli G. Guðmundsson, húsasmiður, Norðurbrún.
11. Oddur Óskar Pálsson, vélamaður, Brekkuskógi.
12. Eyvindur Magnús Jónasson, bóndi, Kjóastöðum 1.
13. Sveinn Skúlason, bóndi, Bræðratungu.
14. Sigurður Þorsteinsson, bóndi, Heiði.
S-listi Stígs Sæland.
1. Stígur Sæland, garðyrkjubóndi, Stóra-Fljóti.
2. Óskar Tómas Guðmundsson, bifreiðastjóri, Múla.
3. Sigurður Guðmundsson, líffræðingur, Reykjavöllum.
4. Sigurjón Sæland, búfræðingur, Kistuholti 16 b.
5. Sigurjón P. Guðmundsson, bifreiðast., Kistuholti 16a.
6. Snorri Guðjónsson, bóndi og verkstjóri, Tjöm.
7. Jónas Þórisson, garðyrkjubóndi, Birkilundi.
Nokkrar breytingar voru á efstu sætum þeirra lista, er
áður höfðu boðið fram.
Á H-lista var Margrét á Króki í öðm sæti, sem Drífa á
Torfastöðum var í áður.
Margeir á Brú var í efsta sæti á K - lista í stað
móðurbróður síns, Gísla í Kjamholtum, og Sigurlaug í
Heiðmörk var í 3. sæti, sem Kjartan í Tungu hafði verið í
áður.
Kosningabaráttan.
Allir listar gáfu út fjölfaldaðar stefnuskrár, sem dreift
var á heimilin í sveitinni. Hér verður gerð grein fyrir
helstu atriðum þeirra og borin saman stefna listanna.
a. Stjórnun og fjármál:
H-, K- og L- listi leggja til að ráðinn verði
sveitarstjóri.
L-listinn vill að Tungnatíðindi verði vettvangur
„sveitarumrœðu,“ og þar verði birtar niðurstöður og
ályktanir hreppsnefndar og fundargerðir nefnda.
H-listinn leggur til að ,fréttir af sveitarstjórnarmálum
verði gerðar aðgengilegri og haldnir almennir
sveitaijundir“.
K-, H- og L-listi láta í ljós þá skoðun að fjárhagur
sveitarfélagsins sé þröngur vegna fjárfrekra framkvæmda
og gæta þurfi aðhalds í rekstri.
Skóla- og menningarmál:
Frambjóðendur H- og K-lista byrja þennan kafla með
sama orðalagi: „Skólamál eru stœrsti og ndkilvœgasti
málaflokkur sveitarinnar (-félagsins)" Hjá báðum er
farið nokkmm orðum um góða aðstöðu í skólanum, en
hjá þeim fyrmefnda er lögð áhersla á að „efla búnaðfyrir
verklega fræðslu“ og auka tengsl skólans við „atvinnulíf
sveitarinnar“.
Álit K-lista er m. a. orðað svo: „með samvinnu og
jákvœðu átaki hefur Reykholtsskóli alla burði til að vera
Litli - Bergþór 10