Litli Bergþór - 01.07.1998, Síða 11

Litli Bergþór - 01.07.1998, Síða 11
afbragðs uppeldis- og menntastofnun og að því skal stefnt á öllum tímum.“ Báðir þessir listar leggja áherslu á samvinnu leikskóla og grunnskóla og K-listinn leggur til „að sameina skóla- og leikskólanefndir.“ Hann vill að leikskólinn fái meira húsnæði og í framtíðinni verði komið „upp húsnœði sem uppfylli þœr kröfur sem gerðar eru til leikskóla í dag.“ H-listi vill „stefna að samstarfi við önnur sveitarfélög í skólamálum ", en K-listinn leggur til „stofnun skólasamlags með nágrannasveitrarfélögunum og stefnt að skipun sameiginlegrar skólanefndar fyrir svæðið. “ Hjá L-lista kveður nokkuð við annan tón í þessu efni. Lýst er ánægju með starf leikskólans en gerð krafa „um lengingu vistunartíma bœðifyrir þá sem þurfa heilsársvistun og þá sem þurfa lengingu daglegrar opnunar. “ Nokkur atriði úr kafla L-listans um grunnskólann eru: „I skólamálum er mikil gerjun í samfélaginu.......... Hreppsnefnd getur komið að skólanum með því að bæta aðbúnað þeirra sem starfa þar..........Til þess að starfið í skólanum nái árangri, þarfað nást ásættanleg niðurstaða þeirra sem koma að þessum vinnustað og skapa vinnufrið í kringum hann. Það gerist ekki nema með sameiginlegu átaki allra. Gerum börnin okkar fremst meðal jafningja. “ S-listinn vill efla „íþróttaiðkun fyrir alla“ og styðja „kaup á áhöldum til íþróttaiðkunar barna og Jullorðinna í nýja íþróttahúsinu. “ K-listinn segir um menningarmál: „standa vörð um menningarlífið í sveitinni, svo sem tónlist og leiklist. Afram skal haldið uppbyggingu bókasafns. “ c. Atvinnu- og ferðamál: S-listi vill að: „ Verð til raflýsingar ígróðurhúsum og rafmagn til bœnda lœkki niður í álverðstaxta. “ Hann leggur einnig til að atvinnutækifærum verði fjölgað „með stuðningi við hefðbundnar búgreinar og stuðlun að uppbyggingu nýrra atvinnugreina þar á meðal í ferðaþjónustu. Stuðla að menn með góðar hugmyndir komi inn í sveitina. “ Einnig er látin í ljós sú skoðun „að við eigum aðfá Geysisgos skilyrðislaust. “ Svo og „að sett verði upp markaðstorg á Laug. “ Fleiri atriði eru nefnd, svo sem að efla þjónustu við þá sem eru með hálendisferðir, aukin þjónusta á Hveravöllum, byggingu stærri gististaða og opnun minjagripaverslunar á hálendinu. Listinn vill stuðla að bættum samgöngum, en „ekki megi laga vegi á hálendinu svo að ferðamenn missi afþeirri upplifun sem er aðfara ífjallaferð. “ Hann heitir að berjast fyrir því „að byggð verði kajflstofa sem verði opin allt árið. “ L-listi telur grundvallaratriði að næg vinna sé fyrir alla, og til þess þuifi „allir sem einn að vinna að uppbyggingu atvinnulífsins. “ Lýst er ánægju með störf ferðamálfulltrúa og þeirri von „að það starf gefi enn frekari árangur. “ Sem dæmi um ný atvinnutækifæri er nefnt „að reyna að laða að fyrirtœki með fjarvinnslu- verkefni, stuðla að og þrýsta á um aukna þjónustu í sveitarfélaginu, svo sem meiri bankaþjónustu og aukna póstþjónustu. “ K-listi vill stuðla „að áframhaldandi uppbyggingu atvinnutœkifœra án þess að taka beinan þátt í rekstrinum. Einnig að áfram verði unnið „markvisst að aukinni ferðaþjónustu, leitast við að hafa áhriftil eflingar hefðbundinna landbúnaðargreina og ylrœktar. “ H-listinn minnir á að sveitin geti „fóstrað mismunandi atvinnustarfsemi, ekki síst þá sem byggir á miklu og góðu heitu og köldu vatni. Þá eru sögustaðir og náttúruperlur uppspretta tækfæra til atvinnusköpunar. “ Lagt er til að: „ Unnið verði eftir skýrslu um stefnumótun íferðamálum, til eflingar ferðaþjónustu á svæðinu til framtíðar. “ Einnig: „Atvinnumálanefnd vinni að eflingu fjölbreytts atvinnulífs, með fjölgun starfa að markmiði. “ Kostir sveitarinnar fyrir mismunandi atvinnugreinar verði kynntir, löðuð að ný starfsemi og íbúamir efldir til athafna. „Afram verði starfandi sameiginlegur ferðamálfulltrúi. “ d. Heilbrigðis- og félagsmál: H-listi fagnar nýrri heilsugæslustöð og leggur til „ enn frekari eflingu heilsugœslunnar í Laugarási með því að stuðla að byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða. Stefnt verði að aukinni samvinnu við sveitarfélög á svæðinu til að efla heimaþjónustu viðfatlaða og aldraða, svo að þeir geti verið sem lengst heima. “ Lagt er til að athuga „með ráðningu sálfrœðings til meðferðar- og greiningarstarfa. “ „ Stefnt verði að sameiginlegri félagsþjónustu í uppsveitum með ráðningu félagsráðgjafa. “ „Félagsstarf ungra jafnt sem aldraðra verði Styrkt eftir megni og mennigarstarfi sinnt eftir föngum. “ K-listinn vill: „standa við bakið á félagsstarfsemi í sveitinni eftir því sem aðstœður leyfa. “ „Lögð er áhersla á að samhliða þjónustunni við aldraða í Bergholti geti aldraðir búið sem lengst í eigin húsnœði og notið félagslegrar þjónustu, hér eftir sem hingað til. “ L-listinn rökstyður vilja sinn að styðja alla félagsstarfsemi í sveitinni með því að sagt er „að maður er manns gaman. “ Talið er að laga þurfi „aðgengi og aðkomu“ að húsnæði aldraðra og lýst vilja til að „gönugstígur verði lagðurfrá Bergholti að Aratungu. “ Lýst er ánægju með nýju heilsugæslustöðina og vilja til að „ standa vörð um hana. “ „ Við hlökkum til að sjá verða að veruleika tannlœknaþjónustu og sjúkraþjálfun í sveitinni. “ S-listinn heitir því að „stuðla að skemmtiskokki og útivist. “ Einnig er mælt með „göngubraut íholtinufyrir ofan Reykholt sem næði niðurfyrir Krummakletta. Komið verði upp nestisborðum við Reykholtshver og fram við Krummakletta. “ Hann „ berst gegn eiturlyfjum og stuðlum að forvörnum gegn þeim. “ e. Samgöngur: S-listi vill brú á Hvítá við Bræðratungu fyrir aldamót, beinan veg að Flúðum og bundið slitlag á Biskupstungnabraut frá Felli að Múla og á Reykajveg. L-listinn telur að sveitarstjóm þurfi „að berjast að Litli - Bergþór 11

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.