Litli Bergþór - 01.07.1998, Síða 13
U.M.F. Biskupstungna
Körfuboltinn í vetur
Nú þegar körfuboltatímabilinu er lokið er rétt að gera
upp stöðu mála.
Við tókum þátt í fjölda móta og hér koma úrslit
þeirra.
Elsti flokkurinn sem æfði körfubolta í vetur var 10.
flokkur drengja, en þeir voru ellefu. Þeir byrjuðu haustið
á því að taka þátt í hraðmóti HSK og lentu þar í 2. sæti
svo menn voru bjartsýnir á veturinn. I Héraðsmóti
drengja tóku 11 lið þátt og var skiptst á að leika heima og
úti. Okkar heimavöllur var á Laugarvatni þar sem
æfingamar fóru einnig fram. Staðan í lokin varð sú að við
lentum í 6. sæti með 10 stig. Unnum fimm leiki og
töpuðum fimm. Bóas Kristjánsson var 5. stigahæsti
maður mótsins með 198 stig, en sá sem varð stigahæstur
var með 202 stig. Georg Kári Hilmarsson varð 7. í
röðinni með 162 stig. Til hamingju strákar.
í 8. flokki vom í raun aðeins fimm strákar og vorum
við því líka með yngri stráka í leikjunum í þeim flokki.
Þeir spiluðu einn æfingaleik á Flúðum fljótlega eftir
áramótin. Síðan leið og beið alveg fram í apríl að þá fyrst
var haldið Héraðsmót fyrir þá. Það vom tvær
umferðir, sú fyrri að Laugarlandi og sú
seinni að Flúðum. Þetta voru langir
dagar. Stuttir leikir og mikill tími sem
fór í að bíða eftir næsta leik, en liðin
voru 6 og aðeins spilað á einum velli.
Það var almenn óánægja með þetta
fyrirkomulag hjá þjálfurum liðanna og verður það
vonandi lagað fyrir næsta tímabil. Okkar drengir urðu
neðstir í báðum umferðum, töpuðu öllum leikjunum.
Síðan kepptu þeir á Garðyrkjumótinu sem Hrunamenn
sáu um í þetta sinn. þar urðu þeir í þriðja sæti, töpuðu
fyrir Hrunamönnum sem unnu mótið og einnig
Laugdælum, en unnu síðan Hvöt.
í 6. flokki æfðu sjö strákar.þeir spiluðu líka
æfingaleik á Flúðum. þeir spiluðu síðan í Héraðsmótinu,
það voru tvær umferðir sem báðar fóru fram í
þorlákshöfn. Það voru 5 lið sem tóku þátt í mótinu og
það var spilað á tveimur völlum í einu. Þetta var mjög
skemmtilegt mót og fór í alla staði mjög vel fram og
stóðst allar tímaáætlanir. Okkar menn lentu í þriðja sæti í
báðum umferðum, töpuðu fyrir Hrunamönnum sem unnu
mótið og einnig Þór, unnu Garp og Selfoss. Síðan
spiluðu þeir við Hrunamenn í Garðyrkjumótinu og
töpuðu þeim leik, hin félögin áttu ekki lið í þessum
flokki.
Við sendum nokkra stráka á dómaranámskeið í
körfubolta sem haldið var á vegum HSK. það er alveg
nauðsynlegt fyrir okkur að eiga dómara með réttindi.
Þeir voru fjóri frá okkur sem náðu prófinu. Það voru
Sveinn Svavarsson, Axel Sæland, Birgir Páll
Marteinsson og Bóas Kristjánsson.
í lok tímabilsins gerðum við okkur það til
skemmtunnar að fara á einn úrslitaleik í íslandsmótinu í
körfubolta karla, þar sem spiluðu Njarðvíkingar og
Keflvíkingar. Keflvrkingar sigruðu í þessum leik.
Fannar Ólafsson spilaði með þeim í vetur og er
hann reyndar núna einnig kominn í
landsliðið. Til hamingju Fannar.
Eg vil svo að lokum þakka öllum sem
hafa stutt okkur og þá sérstaklega dómarana
sem dæmdu leikina fyrir okkur og foreldrana
■ :. m þurftu að keyra bæði á leiki og á æfíngar
í allan vetur. Ég vona að strákamir sem
spiluðu með hafi haft gagn og gaman af og
vonandi sjáum við stelpur líka í
körfuboltanum næsta vetur. Sjáumst í
nýju íþróttahúsi á næsta
körfuboltatímabili.
Kveðja Áslaug
Sveitarstjórnar- og sameiningarkosningar frh...
Urslitin voru á þessa leið:
Atkvæði greiddufjöldi
Þingvallasveit:
Laugardalur:
Biskupstungur:
Hrunamannahr.:
Skeiðahreppur:
Samtals
ifjöldi % Já sögðu: fjöldi % Nei sögðu: fjöldi % Auðir og ógildir:
24 75,0 Þing 16 66,67 Þing. 8 33,33 Þing. 0
82 50,0 Laug. 66 80,49 Laug. 16 19,51 Laug. 0
211 60,0 Bisk. 151 71,56 Bisk. 59 27,96 Bisk. 1
246 56,8 Hrun.. 151 61,38 Hrun. 92 37,40 Hrun. 3
120 69.4 Skeið. 23 19.17 Skeið. 97 80.83 Skeið. 0
683 Samtals 407 59,59 Samtals 272 39,82. Samtals 4
Formaður sameiningarnefnda, Sigurður Ingi Jóhannsson, hafði þau ummæli eftir að þessi úrslit lágu fyrir að þau
væru áskorun til sveitarstjómarmanna í hreppunum , sem sameiningin var samþykkt í, að halda áfram undirbúningi að
sameiningu. Oddvitar Hmnamanna-og Biskupstungnahrepps hafa ekki tekið undir það.
A. K.
Litli - Bergþór 13