Litli Bergþór - 01.07.1998, Qupperneq 31
Frá Slysavarnadeild
Ég ætla að greina frá því helsta sem fram hefur farið
hjá Slysavamadeild og sveit Biskupstungna á síðastliðnu
ári.
Lítið var um æfingar hjá okkur, þar sem tveimur
stórum æfingum sem halda átti inni á Kili í vetur var
frestað um ótiltekinn tíma vegna snjóleysis.
Magnús, Rex (hundurinn hans Magnúsar) og ég
fórum á æfingu vestur á Reykjanes í Isafjarðardjúpi sem
stóð yfir í fimm daga. Þetta var svokallað
sumamámskeið Björgunarhundasveitar Islands.
Námskeiðið var þannig upp sett að á daginN vom
haldnar æfingar í víðavangsleit í fjöllunum í kring þar
sem mönnum og hundum var skipt niður eftir getu í
byrjendahópi og lengra komna. Kennslan í
byrjendahópnum fólst mest í því að hópurinn var í því að
láta hundana gefa merki um að þeir hefðu fundið mann.
Hópur þeirra sem lengra voru komnir var látinn taka fyrir
ákveðin stór svæði til að leita, þar sem einn til þrír aðilar
voru faldir, áttu maður og hundur að leysa það verkefni á
ákveðnum tíma til að standast prófið. Á kvöldin héldu
leiðbeinendumir fyrirlestra um ýmislegt tengt
hundaþjálfun. Leiðbeinendumir vom þrír og komu frá
Englandi.
Magnús og Rex stóðust prófið með glans og em nú
fullgildir í víðavangsleit, þeir einu frá Reykjavík, austur
á firði.
Þrisvar sinnum var beðið um aðstoð sveitarinnar
vegna fastra bfla. Þetta er orðinn fastur liður í starfsemi
sveitarinnar, en óvenjulegt er að allir bflamir skyldu vera
innansveitar, en ekki uppi á Kili.
Leitir voru óvenju fáar þetta árið, aðeins em skráðar
hjá mér þrjár leitir. Ein að rjúpnaskyttu í kringum
Þingvelli en hinar tvær vom utan svæðis þar sem
Magnús og Rex tóku þátt.
Við tókum að okkur að vakta "-----
gmnninn á nýja íþróttahúsinu f Ekkert um
meðan verið var að grafa uppúr ( aðalfundinn!
honum.
Snjótroðsla í Haukadal átti að vera
eins og áður en sökum snjóleysis var það aðeins
hægt tvisvar.
Kær kveðja
Fyrir hönd Slysavamadeildar Biskupstungna,
Ingvi Þorfinnsson
VELDU
BÍLINN
OG VÍS
f ii ■»
fW'
i*l'
Allar tryggingar
á einum stað
■ í traustu félagi
Austurvegi 10- 800 Selfossi - Sími 482 2266 - Fax 482 2836
Litli - Bergþór 31