Litli Bergþór - 01.12.1998, Page 3
Ritstjómargrein
Nú er byggingu íþróttahússins næstum lokið en áætlað er að vígja það þann 9. janúar 1999. Ekki voru
allir sammála um ágæti þess að byggja íþróttahús í Biskupstungunum, en þar sem það hefur nú verið gert þá
liggur fyrir að láta húsið verða til ánægju og uppbyggingar fyrir alla.
Formaður íþróttadeildar Ungmennafélagsins, Sigríður Jónína, óskaði eftir umræðu, í grein sinni hér í
blaðinu, um hvemig við skyldum nú standa að málum. Með íþróttahúsinu skapast ný sóknarfæri. Hægt
verður að veita öllum sem það vilja, aðstöðu til hreyfingar og afþreyingar ásamt heilbrigðri samveru þeirra
sem þess óska. Skólinn þarf að nýta sér aðstöðuna vel. Hreyfing er börnum nauðsynleg. Meginundirstaða
góðrar heilsu er mikil og holl hreyfing. íþróttakennslu má stórefla og við verðum að fá aðila á staðinn sem
vill og getur þjónað skólanum og Ungmennafélaginu. Mikill kraftur hefur verið í borðtennisþjálfun og við
verðum að fá þá strákana sem voru mest að æfa fyrir nokkrum árum til að koma og þjálfa ungu krakkana. Ég
minni á eldri íþróttamenn sem jafnvel hafa skarað framúr á sínum tíma. Þótt aldurinn hafi færst yfir þá má
ætla að þeir kunni enn undirstöður sinna íþróttagreina. Því ekki að reyna að fá þá til að standa að þjálfun og
kennslu í sínum kjörgreinum. Hvernig er það með Þóri, glímukappann og fimleikamanninn, nú eða Ólaf
með um 100 landsleiki í handbolta að baki. Gunnar í Hrosshaga hleypur mikið hér á veginum. Ef til vill eru
fleiri aðilar sem hafa stundað fþróttir eða eru jafnvel með kennslugráður í íþróttakennslu búsettir í sveitinni.
Nú þarf bara að hvetja fólk til að taka höndum saman og fara vel af stað. Auðvitað hafa allir nóg að gera en
ég er viss um að með nýrri aðstöðu er hægt að fá fólk til að kenna og þjálfa þá sem þess óska.
Það er mikilvægt að fara af stað með starf í íþróttahúsinu með krafti, nýta þá krafta og hæfileika sem í
samfélaginu eru og fá fólk til að vera innan handar í að þjálfa þá sem vilja ná árangri.
Sameining sveitarfélaganna var mikið til umræðu á síðasta ári enda var kosið tvisvar á árinu um hana.
Ljóst er að kjósendur hér í Biskupstungunum eru fylgjandi sameiningu við nágrannasveitarfélögin og er það
sveitarstjómar að vinna að sameiningarmálum samkvæmt vilja meirihlutans. Það er ekki eftir neinu að bíða.
Það er bara tap að draga málið. Við Biskupstungnamenn vorum komin í yfirburðastöðu varðandi
sameiningarmálin þegar dómur kjósenda lá fyrir. Frestun á málinu er fyrst og fremst tap. Tapaður tími til
nýrra sókna og viðnáms á stjómvöld í Reykjavík. Við verðum að hugsa í sóknarfærum og það er ekki eftir
neinu að bíða. Þrátt fyrir vilja ríkisvaldsins til að færa sveitarstjómum meira vald þá er dregið úr þeirri
áherslu þegar hagsmunamál eins og virkjunarmál eru til umfjöllunar. Stjórnvöld vilja hafa yfirráð yfir
einstökum landshlutum eða vatnasvæðum þegar þeim finnst það henta samanber tillögu um að færa
stjómsýslu vatnasvæðis Þingvallavatns til Þingvallanefndar, þótt skipulagsmál og stjómsýsla eigi samkvæmt
sveitarstjórnarlögum að vera í höndum sveitarstjórnar. Slíkur málflutningur og lagasetning er tvískinnungur
og sameinað sveitarfélag er sterkara en 50 manna sveitarfélag til að taka á því. Öll stjórnsýsla er að auki
miklu auðveldari og einfaldari. I dag þurfa 8 hreppar, hver með sínum oddvita, að ræða mál
heilsugæslustöðvarinnar þegar breytingar eða fjárhagsáætlanir liggja fyrir. Breyting á tilhögun og stjórnun
skóla þarf mikil fundarhöld og samningavinnu, en með sameinuðu sveitarfélagi fengjum við eina stjóm sem
gæti auðveldlega gert breytingar sem væm til hagsbóta fyrir nemendur og skóla. Það segir sig sjálft að
samfélag 2000 manna er einfaldara í sniðum með einni sveitarstjóm en með átta sveitarstjómum.
D.K.
/ A
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. um öll leyfi fyrir heimtaug að
Efnissala og varahlutaþjónusta. sumarhúsum og lagningu raflagna.
Fljót og góð vinna.
Jens Pétur Jóhannsson Heimasími 486-8845 vzwl) —r Verkstæði sími 486-8984 W* LOGGILTUR RAFVERKTAKI Bílasími 853-7101 V /
Litli - Bergþór 3