Litli Bergþór - 01.12.1998, Side 9

Litli Bergþór - 01.12.1998, Side 9
Hreppsnefndarfréttir boða til fundarins. Opnunartími hreppskrifstofu Biskupstungna- hrepps Frá 1. nóv. verður opnunartími hreppsskrifstofu kl. 10-12 og 13-16. Viðtalstími oddvita verður mánudaga frákl. 13-15. Ráðningarsamningur sveitarstjóra Ragnars S. Ragnarssonar. Oddviti, formaður hreppsráðs ásamt sveitarstjóra hafa unnið að gerð ráðningarsamnings við sveitarstjóra. Hreppsráð fór yfir samninginn og samþykkti hann. Starf oddvita í október. Akveðið að starf hans sem umsjónamanns með íþróttahúsbyggingunni og aðstoð við sveitarstjóra verði metið sem hálft starf í október. Tekjujöfnunarframlag 1998 hefur borist og nemur 7,4 milljónum en var áætlað 5,5 millj. Kynnt stefna Hrefnu Markan gegn Menntamála- ráðuneytinu og Biskupstungnahreppi þar sem henni var synjað um kennarastöðu við Reykholtsskóla 1994-1995. Bótakrafa tæpar 4milljónir auk vaxta og málskostnaðar. Lögmanni sveitarfélagsins hefur verið falið að athuga málið. Bréf skólastjóra þar sem tilkynnt er kjör í Kennararáð Reykholtsskóla 1998-1999 kjörnir voru Valbjörg Jónsdóttir, Margrét Bóasdóttir, Agla Snorradóttir, til vara Signý Guðmundsdóttir og Egill Hallgrímsson fulltrúi kennara í skólanefnd. Jafnframt er óskað greiðslu fyrir fundarsetu í þessum ráðum samkvæmt ákvæðum í kjarasamningum. Kaupsamningur vegna landspildu úr Norðurbrún þar sem Bergrós Gísladóttir og Hermann Guðmundsson Norðurbrún Bisk. kaupa af þrotabrúi Einars Páls Sigurðssonar 13 ha. Hreppsráð leggur til að fallið verði frá forkaupsrétti á þeim forsendum að skipulag sumarhúsabyggðar á svæðinu verði fellt út úr aðalskipulagi. Uppgjör Stefáns Böðvarssonar vegna vörslu á afrétti. Heildartekjur um 1 milljón kostnaður við gæslu um 1/2 milljón. Umsókn Björgunarsveitar Biskupstungnahrepps vegna erfiðleika við að borga hitaveitugjöld sem eru ógreidd kr. 145 þús. Hreppsráð tekur jákvætt í erindið og mun taka málið upp við gerð næstu fjárhagsáætlunar. Hreppsnefndarfundur, 13. okt.1998, samþykkir að skora á þingmenn Suðurlands að þeir beiti sér fyrir því að gamla Tungufljótsbrúin verði látin standa og henni verði haldið inni á vegaáætlun Vegagerðar ríkisins. Einnig að Vegagerðin sjái um viðhald á brúnni. Greinargerð: Þráttfyrir nýja brú á Tungufljóti yfir í Brœðratunguhverfi er gamla brúin enn afar mikilvœg samgönguleið milli ytri og eystri Tungunnar. Nýlegar og fyrirhugaðar vegabœtur liggja íytri Tungunni og með lokun gömlu Tungufljótsbrúarinnar yrði þeim vegabótum kippt úr sambandi við eystri Tunguna og eftir stœði lengri og verri vegur um að fara. Vegurinn suður í Tunguhverfi er heldur lélegur malarvegur sem lítið eða ekkert hefur verið gert fyrir undanfarin ár þrátt fyrir tilkomu nýju brúarinnar. Sá vegur verður jafnvel ófœr á vorin og slæm skiptifyrir bundið slitlagfrá Heiði. Auk þessa skal bent á að gamla Tungufljótsbrúin er forsenda þess að hœgt sé að rétta í Tungnaréttum. Hreppsráðsfundur 2. nóvember 1998. Fundur verkefnastjórnar um stefnumótun í ferðaþjónustu í uppsveitum Arnessýslu. Ákveðið var að leggja til að semja við Ásborgu um að halda starfinu áfram næstu árin auk þess að stofna sameiginlega ferðamálanefnd með fulltrúa frá hverju sveitarfélagi sem verða 7. Fundargerðir byggingarnefndar íþróttahúss frá 13. okt., 20. okt., 22. okt., 30. okt. Sveinn fór yfir fundargerðirnar og skýrði þar með gang byggingarinnar. Áætlaður vígsludagur 9. jan. 1999 og heildarkostnaður 64 milljónir. Ragnar sveitarstjóri sótti um stofnframlag til tengibyggingar milli sundlaugarbyggingar og íþróttahúss til Jöfnunarjóðs sveitarfélaga. Bréf frá Kjartani Sveinssyni formanni byggingarnefndar íþróttahúss þar sem hann fer fram á að Sveinn Sæland verði ráðinn í 1/2 starf sem framkæmdastjóri við byggingu íþróttahússins til áramóta. Hreppsráð samþykkir þessa beiðni. Bréf Margrétar Baldursdóttur og Sigurlaugar Angantýsdóttur. Þar er skorað á hreppsráð að laga aðgengi að Bergholti, það er að endurnýja snjóbræðslukerfi og laga tröppur og stétt. Samþykkt að fara í þessar framkvæmdir á næsta ári. Tillaga sveitarstjóra til hreppsráðs og hreppsnefndar: Hér með er það lagt til við hreppsnefnd Biskupstungnahrepps að formanni skólanefiidar Reykholtsskóla og Ragnari S. Ragnarssyni sveitarstjóra verðifalið að leita samninga um samvinnu og sameiningu grunnskólanna í Reykholti og Grunnskólans að Laugarvatni og/eða Grímsnesi og Grafningi. Þeim umrœðum yrði ekki gefinn langur tímafrestur eða til 15. febrúar 1999. Hreppsráð samþykkir tillöguna. Minnispunktar frá fundi félagsmálanefndar uppsveita Ámessýslu (haldinn í Skálholti 18. okt. 1998). Þar sem meðal annars er farið fram á ráðningu starfsmanns til starfa (félagsráðgjafa). Oddvita veitt umboð sveitarstjómar til að ráða þeim málum til lykta á næsta oddvitafundi. Bréf Skólaskrifstofu Suðurlands. Þar er kynntur úrskurður ráðuneytisins um að foreldraráðsmaður megi ekki vera í skólanefnd nema sem áheyrarfulltrúi. Vísað til skólanefndar og foreldraráðs. Bréf Hrossaræktarfélags Biskupstungna. Þar er farið fram á 50 þús. kr. styrk til gerðar heimasíðu á Internetinu. Tekið er jákvætt í erindið en vísað til næstu fjárhagsáætlunar. Hreppsnefndarfundur 10. nóvember 1998. Mættir voru hreppsnefndarmenn, ásamt Birgi Þórðarsyni heilbrigðisfulltrúa, Guðmundi Olafssyni og Guttormi Bjarnasyni. Kynning á verkefninu „Hreint Suðurland“. Litli - Bergþór 9

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.