Litli Bergþór - 01.12.1998, Side 10
Hreppsnefndarfréttir
, Hreppsnefnd
Guðmundur greindi frá innihaldi skýrslu varðandi
þetta efni. Birgir fjallaði um úrbætur vegna neysluvatns,
fráveitumála og sorpmála. Birgir lagði fram
minnispunkta um umhverfismál - Staðardagskrá 21. o.fl.
til kynningar.
Tillaga kom frá Sigurlaugu, svo hljóðandi:
Hreppsnefhd telur nauðsynlegt að gerð verði könnun
meðal Laugarásbúa á nauðsyn þess að gera úrbœtur á
gámasvœði í Laugarási. íframhaldi afþvíþarfað gera
tillögur um framtíðarskipan þessara mála með fyrirvara
um óbreytt gámasvœði. Felur hreppsnefnd sveitarstjóra
að vinna að þessu ásamt umhverfisnefnd".
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Páil lagði fram eftirfarandi tillögu:
samþykkir það sem hluta afstefnu sinni í
skipulagsmálum að ekki verði heimiluð
stœkkun lóða í þéttbýli frá því sem
gert er ráðfyrir í skipulagi“.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Alagning gjalda 1998. Ragnar
gerði grein fyrir viðmiðunartölum
félagsmálaráðuneytisins vegna útreikninga á
tekjujöfnunarframlagi 1999. Lagði Ragnar fram
eftirfarandi tillögur:
a) Hreppsnefnd samþykkir að útsvarsprósenta
vegna álagningar 1999 verði 12,04 sem er jafnframt
viðmiðunartillaga félagsmálaráðuneytisins vegna
framlaga úr jöfnunarsjóði fyrir árið 1999. Tillagan
var samþykkt samhljóða.
b) Lagt er til við hreppsnefnd að hún íhugi alvarlega
að miða fasteignagjöld við það viðmið sem gefið er upp
af jöfnunarsjóði sem viðmið að útreikningi við álagningu
fasteignagjalda.
Sveini er falið að kynna efni tillögunnar í
nágrannasveitarfélögunum með tilliti til samræmingar og
í framhaldi þess vinni hreppsráð að afgreiðslu þessa
máls.
Samþykkt að Margeir Ingólfsson verði fulltrúi
Biskupstungnahrepps í sameiginlegri ferðamálanefnd
uppsveitanna og Sveinn Sæland til vara. Agla
Snorradóttir sat hjá við afgreiðslu þessa máls.
Samþykkt var að Ragnar S. Ragnarsson, Sigríður
Jónsdóttir og Svavar Sveinsson sitji í húsnæðisnefnd
Biskupstungnahrepps. Varamenn eru Margrét
Baldursdóttir og Margeir Ingólfsson. Agla Snorradóttir
sat hjá við afgreiðslu þessa máls.
Ragnar kynnti fjárhagslega stöðu á framkvæmdum
vegna íþróttahúss. Samþykkt var að leita tilboða til að
fjármagna greiðslur vegna íþróttahússbyggingar.
Samþykkt var að hreppsnefnd veiti
fararstjórum í ferð 9. og 10. bekkjar til
Danmerkur ferðastyrk, þannig að þeir beri ekki
beinan kostnað af flugfargjaldi. Sveinn A.
Sæland og Páll Skúlason sátu hjá vegna tengsla
við málið.
Páll Skúlason lagði fram svohljóðandi
tillögu: „Hreppsnefiid samþykkir að brýna
rœkilega fyrir lóðarhöfum, að þeim sé með
öllu óheimilt að stunda aðra starfsemi á lóðum
sínum en skipulag geri ráðfyrir. Allar
'hugmyndir „ um breytta nýtingu þuifa þá
umfjöllun sem gert er ráð fyrir í skipulagslögum “
Tillagan var samþykkt með öllum atkvæðum.
Frá Kvenfélaginu.
Miðvikudagskvöldið 25.
nóvember s.l. hittumst við
núverandi og fyrrveradi
formenn Kvenfélagsins til að
ræða um hvað við ættum að
gera í tilefni af 70 ára afmæli
Kvenfélagsins á næsta ári
1999. Urðu umræður
allfjörugar og ýmislegt var
ákveðið. - Eiginmenn, verðið
ykkur úti um vinnufólk, því
við verðum lítið heima á
árinu! -
Föstudaginn 23. apríl
verður hátíðarfundur haldinn
á góðum stað og verður teygt
úr honum fram yfir helgi.
Litli - Bergþór 10
Magga á Iðu og Erna á Tjörn ánœgðar
með sig á Bjössaróló í Kvenfélagsferð.
Þann 23. júní verður farin
Jónsmessu-, Færeyja-,
Grænlands-, Grímseyjar-,
Vigur- og/eða óvissuferð.
Heimkoma óákveðin. Skráning
hjá formönnum. Allir
fyrrverandi, núverandi og
væntanlegir félagar velkomnir.
Hristum nú af okkur slenið
og komumst í gamla góða
Kvenfélagsandann og sýnum að
við séum til í hvað sem er.
P.S. Aðalfundur verður
haldinn í febrúar eins og
venjulega og þá verður rætt
nánar um þetta allt. Sjáumst og
heyrumst.
______________Oddný, formaðuny