Litli Bergþór - 01.12.1998, Síða 11
Lionsklúbburinn Geysir
Nokkur orð um starfið á liðnu starfsári.
Frumskylda hvers Lionsklúbbs er að láta gott af sér
leiða. - Fyrst í sínu næsta nágrenni en einnig með
alþjóðasamstarfi.
Lítill klúbbur eins og Lionsklúbburinn Geysir skilur
að sönnu ekki eftir sig nein stórvirki á einu ári, en
jafnvel lítill neisti geymir allan kraft hins mikla elds.
Við notuðum starfsárið aðallega til sinna tveim
föstum meginverkefnum: Að styrkja innviði klúbbsins og
að halda gangandi hefðbundnum verkefnum. Sem
sérstakt átak ársins völdum við tilraun til að vekja
umhugsun og umræður um viðbúnað heimilanna í
jarðskjálftum. Af því tilefni var boðað til opins fundar
um þau mál. Hafþór Jónsson, fræðslufulltrúi
Almannavarna ríkisins og Páll Bjamason frá
Verkfræðistofu Suðurlands fluttu erindi í Aratungu og
kynntu viðbúnað og varnir. Þrátt fyrir ágæta boðun í
þrem sveitarfélögum mættu ótrúlega fáir. Ef það þýðir að
viðbúnaður heimilanna sé með ágætum, og ekki þurfi
neina fræðslu hér um, þá er það gott. (Samt munu nú enn
hanga myndir undir gleri yfir bamarúmum!)
Þeirra viðhorfa gætir nokkuð, að forðast skuli allt sem
veldur óþarfa hræðslu við hugsanlegan stóran skjálfta.
Það er hægt að vera alveg sammála því, en endurskoða
samt skipulag innanstokksmuna á heimili sínu.
Frægasta söfnun Lionshreyfingarinnar, kennd við
hina rauðu fjöður, fer í gang á næsta ári. Undirbúningur
er þegar hafinn. Að þessu sinni er gert ráð fyrir því að
söfnunaféð nytist meir en áður nálægum verkefnum.
Eðlilegt er að hafa mjög náið samstarf við
nágrannaklúbbana um þessa söfnun og fylgja þannig eftir
samstarfí þeirra sem þegar er hafíð. Mest ríður þó á að
finna nýja klúbbfélaga til að hjálpa okkur hinum að
ganga saman undir kjörorði hreyfingarinnar: Við
leggjum lið.
Næstu stjóm skipa: Gylfi Haraldsson, formaður,
Bjarni Kristinsson, gjaldkeri, Sigurður Guðmundsson,
ritari..
Skálholti íjúlí 1998,
Kristján Valur Ingólfsson,
fráfarandi formaður.
Það þarf ekki að vera flókið að spila í happdrætti. Þú kemur eða hringir
og velur happanúmer.
* Greiðir eirui mánuð í einu.
* Greiðir allt árið.
* Greiðir inn á bankareikning.
* VISA eða EURO raðgreiðslur
Allir vinningshafar fá vinninginn lagðan sjálfkrafa inn á bankareikning.
Um 1,5 milljón var greidd í vinninga árið 1997 hjá umboðinu.
Umboðsmaður i Biskupstungum: . SveinnnA. Sæland S Espiflöt ^ Sími: 486 8955 og 486 8813 WL HAPPDRÆTTI Mjj) HÁSKÓLA ÍSLANDS w vænlegast til vinnings
\ J
Litli - Bergþór 1 1