Litli Bergþór - 01.12.1998, Qupperneq 22
Nýr sveitarstjóri kynnir sig
Ragnar Sær Ragnarsson
íbúar Biskupstungnahrepps fengu nýjan sveitarstjóra um miðjan september. í tilefni þess þykir
ritnefnd við hæfi að bjóða Ragnar Sœ velkominn til staifa og aðfá hann til að kynna lesendum
Litla-Bergþórs hver hann sé.
Ég er fæddur í Reykjavík
3. ágúst 1961. Égernæst
elstur úr fjögurra
systkinahópi. Ég ólst upp við
nokkuð fjölbreyttar aðstæður
bæði norður í Húnavatnssýslu
og suður með sjó. íþróttir
voru mitt líf og yndi á
uppvaxtarárum mínum. Ég
stundaði frjálsar íþróttir fyrir
norðan en spilaði knattspymu
með félögum eins og Víði í
Garði og Grindavík fyrir
sunnan. A menntaskólaárum
fór mikið fyrir bridge áhuga
og ég varð íslandsmeistari í
þeirri íþrótt. Ég fór í
Fósturskóla fslands 1983, með
námi starfaði ég hjá íþrótta-
og tómstundaráði við að
skipuleggja frítíma unglinga. Ég starfaði einnig
sem dagskrármaður hjá rás 2 og las ljóð í
kvöldvökuþáttum hjá ríkisútvarpinu. Árið 1988
stofnaði ég eigið fyrirtæki, í vesturbæ Reykjavíkur á
sviði skólaþjónustu sem hafði það að
meginmarkmiði að skipuleggja frítíma bama. Þetta
fyrirtæki rak ég til 1. ágúst s.l.
Ég fór einn vetur í nám í hótelstjórnun 1989 -
1990 og rak á sama tíma hótel Jörð í miðbæ
Reykjavíkur.
Árin 1995-1997 var ég í námi í rekstrar- og
viðskiptarfræðum í endurmenntunardeild Háskóla
Islands. Á seinni árum hefur áhugi minn færst yfir á
samfélagslega þætti. Uppeldismál, umhverfismál
og öll útivist eru efst á blaði í dag. Ég hef tekið þátt
í mjög mörgum verkefnum í
gegnum tíðina. Áður en ég kom
sat ég sem varamaður í stjóm
Dagvista barna í Reykjavík,
byggingamefnd skóla í
Reykjavík og stjóm skólanna á
Kjalamesi.
Ég hef verið mjög lánsamur í
gegnum tíðina. Ég var valin af
Norrænu ráðherranefndinni til
að kynnast stöðu unglinga á
Norðurlöndunum 1995 og til
mánaðardvalar í Bandaríkjunum
á vegum Rotary International í
apríl á þessu ári, þar sem ég
heimsótti yfir 40
menntastofnanir og iðnfyrirtæki.
Ég er mjög ánægður með að
vera komin í Biskupstungurnar
og vona að ég geti látið gott af
mér leiða. Það er að mínu mati nauðsynlegt að
styrkja alla þjónustu sem sveitarfélögin veita með
sem mestri samvinnu sveitarfélaganna í
uppsveitumÁmessýslu. Það er von mín að greidd
verði atkvæði um sameiningu sveitarfélaganna sem
það vilja innan tveggja ára. Það mun styrkja þau
sveitarfélög töluvert en aðrir sitja eftir.
Konan mín er Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og eigum við eina dóttur,
Katrínu.
Foreldrar mínir eru Ragnar Þór Ágústsson
kennari og Hrafnhildur Oddsdóttir, starfsmaður
Iþrótta- og tómstundaráðs í Reykjavík.
Ragnar Sær Ragnarsson.
Sveitastjórafjölskyldan.
Litli - Bergþór 22