Litli Bergþór - 01.12.1998, Page 23
Nýr skólastjóri kynnir sig
Arndís Jóhanna Jónsdóttir
Ritnefnd Litla-Bergþórs fór þess á leit við nýráðinn skólastjóra Reykholtsskóla að
segja lesendum í stuttu máli frá sér og uppruna sínum, um leið og hún er boðin
velkomin til staifa.
Undirrituð er fædd í Nýjabæ
í Garðahverfi þann 29. des.
1945, elst af sex systkinum.
Foreldrar mínir voru Jón
Guðmundsson bflstjóri og
Laufey Ámadóttir húsmóðir, en
þau eru bæði látin. Jón var
sonur Guðmundar
Magnússonar frá Hvaleyri sem
lengi rak verslun og sláturhús í
Hafnarfirði og Ragnheiðar
Magnúsdóttur frá Stardal.
Laufey var dóttir Árna
Magnússonar sem var þriðji
ættliður sem bjó í Nýjabæ og
Jóhönnu Jóhannsdóttur sem var
dóttir Halldóru Sigurðardóttur
frá Skammbeinsstöðum og
Jóhanns Bjamasonar frá Höfða.
í skíminni voru mér gefin nöfn
afa og ömmu, sem ég dvaldi
mikið hjá fyrstu árin, og
heiti því fullu nafni
Arndís Jóhanna.
Góðar minningar á ég
um æskuheimilið, en ég
gekk í bamaskóla á
Álftanesi og var Ármann
Kr. Einarsson minn fyrsti
kennari. Eftir
gagnfræðapróf í
Flensborgarskóla settist
ég í Kennaraskóla íslands
og lauk þaðan
kennaraprófi 1967. Á
skólaárunum var
sumarvinna mín við verslunarstörf og fiskvinnu í
Hafnarfirði. Eitt sumar starfaði ég á sjúkrahúsi í
Kaupmannahöfn.
Eftir kennaraprófið tók við kennsla í
Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í sjö ár þangað til ég
fluttist að Selfossi, er ég giftist Sigurði Sigurðarsyni
árið 1973. Á Selfossi kenndi ég við
Gagnfræðaskólann, sem nú
nefnist Sólvallaskóli. Veturinn
1980 til '81 dvaldi ég með
fjölskyldu minni í
Bandaríkjunum en þá voru tvö
börn okkar hjóna fædd, en þau
eru Stefanía fædd 1974 og nú
starfandi á Hjúkrunarheimilinu
Skjóli og Jón Magnús fæddur
1977 og nú nemandi í Háskóla
Islands. Einn dótturson höfum
við svo seinna eignast, Sigurð
Edgar.
Skólaárið 1988 til '89
stundaði ég nám í
Kennaraháskóla íslands í
stærðfræði.
Árið 1994 fluttist ég í
Skálholt og kenndi hlutastöðu í
stærðfræði skólaárin 1996 til
1998. Nú í ár var ég svo ráðin
skólastjóri þess skóla.
í gegnum árin hef ég nokkuð sinnt
félagsstörfum. Bæði í Hafnarfirði og á
Selfossi tók ég þátt í starfi
kirkjukvenfélaga og á Selfossi sat ég í
félagsmálaráði í tólf ár. Frá
unglingsaldri tók ég nokkum þátt í
félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins og var
varaþingmaður fyrir Suðurlandi í átta ár
og fjögur ár formaður Landssambands
Sjálfstæðiskvenna, árin 1991 til 95.
Eftir það hef ég tekið mér kærkomna
hvfld frá öllu stjómmálastarfi.
Um áhugamál mín er að öðru leyti
ekki margt að segja. Alla tíð hef ég samt
haft nóg að gera. Mér hefur alltaf fallið vel að
stunda kennslu og skólastarf og get sagt að ég hafi
verið svo lánssöm að áhugamálin og starfið hafa
farið vel saman. Nýja starfið fellur mér vel og ber
þá ósk í brjósti að geta dugað vel í því um einhvern
tíma.
Arndís Jónsdóttir
Skólastjóri Reykholtsskóla og eiginmaður
hennar, vígslubiskup Skálhóltsstiftis.
Arndís og Sigurður Edgar
dóttursonur hennar á jólum 1992.
Litli - Bergþór 23