Litli Bergþór - 01.12.1998, Blaðsíða 31
SÍÐASTA FJALLFERÐIN AÐ SEYÐISÁ 1936
- og fleira af fjöllum -
byggð og óbyggð til að tefja fyrir útbreiðslu
mæðiveikinnar sem þá var að flæða yfir. Ein af þeim
varnarlínum var á Kjalarsvæðinu, það er á milli
Hofsjökuls og Langjökuls. Þá varð sú breyting á að hætt
var að rétta fé uppi á hálendinu og draga í sundur. Við
það má segja að rofnað hafi öll tengsl milli gangnamanna
norðan og sunnan hálendisins og var þar miklu að tapa.
Eftir að sauðfjárveikivarnimar komust á má segja að
nýtt viðfangsefni hafi myndast í þjóðarkerfinu. Staðsetja
þurfti verði og girðingar víðs vegar um landið. Þá voru
fjallvegir ekki eins greiðfærir og þeir eru nú.
Til gamans má geta þess að greinarhöfundur var einn
af þeim sem var við fjárvörslu á Kili fyrsta sumarið sem
þar var varsla og var með í að tjalda fyrsta
varðmannatjaldi þar 1937, eftir að hafa verið þrjá daga að
komast neðan úr Biskupstungum með tuttugu
reiðingshesta undir böggum sem var viðlegubúnaður og
matvæli manna sem áttu að annast fjárvörslu á þessu
svæði. Ráðgert var að komið yrði með matvæli aftur
eftir tvær vikur og mun það hafa staðist.
Fljótlega kom í ljós að erfitt var að halda nokkuð
ömggum vömum á þessu svæði án girðinga því oft var
þoka dögum saman og féð vant að vera frjálst ferða
sinna. Þess vegna var farið að huga að undirbúningi við
að koma upp girðingu, í fyrsta áfanga austan frá Blöndu
og áleiðis vestur í Tjarnadalafjöll.
Viðbót um Gránunes.
Árið 1950 verður sú breyting á að farangur
fjallmanna yrði fluttur með bíl. Þá varð að velja nýjan
náttstað sem næst bílveginum og urðu Svartárbotnar fyrir
valinu. Þar var gist í tjöldum fyrst í stað en fáum ámm
síðar var settur upp hermannabraggi. Hann þjónaði
fjallmönnum og öðrum ferðamönnum til ársins 1978 er
byggt var vandað sæluhús, sem rúmar alla fjallmenn og
meira til. Eftir að fjallmenn hættu að gista í Gránunesi
hefur verið þar mikil kyrrð yfir öllu. Þar heyrast ekki
lengur ættjarðarljóð, og gamanvísur eru þar ekki lengur
kveðnar, þegar haustar að og fjallmenn eru komnir til
sinna starfa. Aðeins fossinn í ánni heldur sínum tónum
sem fyrr. Þeir tónar breytast ekki nema komi til
veðurbreytingar.
Örlítið um vegaframkvæmdir á Kjalvegi
Þegar hér var komið sögu var komin brú á Hvítá fyrir
norðan Bláfell og þá haldið áfram að teygja sig lengra
upp á hálendið með ökufæra braut. Ótrúlegt hvað verkið
vannst með svo ófullkomnum verkfærum sem þá var um
að ræða, en vegavinnuflokkur var einmitt kominn til
starfa og skyldi halda verkinu áfram. Herti það nokkuð
á að koma þurfti bílum með girðingarefni í fyrrnefnda
girðingu.
A þessum tíma voru ekki farsímar komnir í notkun og
vissum við sem vorum við fjárvörsluna lítið hvað var að
gerast í byggð. Starf varðmannanna var fólgið í því að
reka norðanfé norður og sunnanfé til suðurs. Mátti segja
að þetta væri þrotlaus rekstur sitt á hvað. Það mun hafa
verið snemma í ágúst sem greinarhöfundur var að koma
sunnan frá Blöndukvíslum að reka fé til suðurs og var
staddur á melunum suðaustur af Rjúpnafelli. Þar bar
fyrir augu óvanalega sýn á þessum slóðum, því þarna
voru tveir vörubflar á ferð, annar með boddí, hinn með
farangur á pallinum. Við nánari athugun kom á daginn
að þarna var vinnuflokkur sem var á leið til varðmanna á
Kili og átti að hefjast handa um að koma upp girðingu á
einhverjum hluta varðlínunnar. Þeir voru allir ókunnugir
á þessum slóðum og vissu tæpast hvert stefna átti.
Vegavinnuflokkur var sunnan undir Fjórðungsöldu á leið
með að ryðja braut til Hveravalla en þessir bílar héldu
áfram eftir óruddum melunum og gekk hægt.
Eftir að hafa rætt málin verður það að samkomulagi
að greinarhöfundur skuli vera í fylgd með þeim norður á
girðingarstæðið sem var fyrirhugað austan frá Blöndu,
yfir mýrarflóann Biskupstungur, fyrir norðan
Dúfunefsfell, vestur yfir Djöflasand og eitthvað upp í
fjöllin. Þetta var þeim uppálagt af æðstu ráðamönnum.
En nú skyldi haldið til norðurs og stefnan tekin á
Dúfunefsfell. Enginn götuslóði var til að fara eftir og
ekkert nema grjót. Stöku blettir voru greiðfærari en aðrir
og var reynt að rekja sig eftir þeim og krækja fram hjá
r
LEIF & ÆVAR
V
Hársnyrtistofa
Leifs og Ævars
Austurvegi 21 Selfossi,
r
v
Opið:
Opið:
mán.-miðv. 9-18,^
fímmtud. 9-20,
föstud.9-19,
og laugard. 9-14.
J
sírni 482-1455
fax 482-2898
______________)
Litli - Bergþór 31