Litli Bergþór - 01.03.2000, Page 4
Formannsspjall
Það hefur alltaf verið höfuðverkur þegar sest er niður og saminn formannspistill. Mér finnst ég alltaf vera að
kvarta undan félagslegum doða hjá Tungnamönnum. I þetta sinn vil ég hrósa ykkur því nú er veisla, leikritið er í gangi
frábær sýning þar sem gott fólk hefur virkilega staðið í ströngu til að fá hlutina til að ganga upp.
Að sjálfsögðu mætti betur gera á öðrum sviðum. En
við erum ekki nema rúmlega 500 manns sem búum hérna.
Þess vegna er erfitt að ráða við fjölbreytnina í íþróttum og
öðru félagslífi. íþróttadagurinn tókst þó með eindæmum
vel og er það dæmi um að ungir sem aldnir geta haft gagn
og gaman af íþróttaaðstöðunni sem hér hefur tekist að
byggja upp.
Það er alkunna að Islendingar gerast heilsuræktaróðir
strax eftir áramót ár hvert. Væri það vonandi að við
Tungnamenn gætum tekið þátt í þessari hefð en til þess
þarf frumkvöðla. Þá eigum við nokkra, einnig aðstöðuna.
Notið þetta og komið ykkur af stað.
Bingóvél og spjöld voru keypt í samvinnu við flest
félög í Biskupstungum og Hreppinn. Væntanlega verðum
við dugleg við að nota þessar nýju græjur þannig að sem
flestir fái notið góðra vinninga, (og Jón þurfi að mjólka
sem víðast fyrir bændur).
Að lokum vil ég koma með ábendingu eða tillögu.
Það er um fjármál og hvernig þau hafa áhrif á félagslegan áhuga hjá okkur.
Frá stofnun Ungmennafélagsins hefur allt starf innan þess verið í sjálfboðavinnu. Eru það ekki orðin úrelt
vinnubrögð. Að fá greitt fyrir verk er krafa samtímans um betri gæði, betri vinnubrögð, aukin afköst. Spyrjið ykkur
sjálf að því hvort þið vilduð ekki frekar sinna félagsmálum innan sveitarinnar ef þið fengjuð greitt fyrir það.
Er ekki bara kominn tími á að ráða æskulýðsfulltrúa inn á svæðið eða aðila til að sjá um skipulagningu og umsjón
með félagsstarfi barna og unglinga?
Spáið í þessi mál og látið álit ykkar í ljós, því hvernig geta þeir sem stjóma vitað hvað hinn almenni félagsmaður
vill nema fá að heyra álit viðkomandi.
Heyrumst síðar,
Magnús Ásbjömsson
Litli - Bergþór 4