Litli Bergþór - 01.03.2000, Qupperneq 5
Hvað segirðu til?
Hér verður greint frá því, sem fréttnæmt telst úr
Tungunum frá byrjun jólaföstu og fram á góu.
Snjórinn, sem kominn var, er desember gekk í garð,
var að angra vegfarendur af og til fram yfir áramót. Með
töluverðum mokstri tókst yfirleitt að halda aðlavegum
færum, en víða var torfært á útvegum og afleggjurum.
Lítið var um vont veður þó laus snjór væri á jörð, þar
sem vindur var oftast hægur. I janúar gerði góða hláku,
sem stóð fram undir lok þess mánaðar, og hvarf þá
snjórinn af flatlendi, en víða fyllir hann enn skurði og
skaflar eru í lægðum. Hlákan tók enda, og í febrúar hefur
snjóað öðru hvoru, skammvinir blotar en vindurinn oft
feykt lausum snjó í burt, og hefur stundum gert allsnarpa
bylji, sem hafa þó staðið stutt. Töluverður snjór hefur
safnast fyrir hér um slóðir í febrúar og var snjódýpt
áætluð 40 - 50 cm í Hjarðarlandi í fyrstu viku góu
Undir lokfebrúar og í byrjun mars gerði snarpa bylji
með miklum skafrenningi. Þá urðu tvö böm, 11 og 13
ára, undir snjóhengju í Austurhlíð. Þau fundust fljótlega
með aðstoð björgunarsveitarmanna úr Laugardal og
varð ekki meint af.
Kirkjulegt starf á jólaföstu og um jól og áramót var
með hefðbundnum hætti. Aðventukvöld var í
Skálholtskirkju, þar sem landbúnaðarráðherra hélt ræðu,
Skálholtskórinn, Bama- og Kammerkór Biskupstungna
sungu og ýmsir söngvarar og hljóðfæraleikarar komu
fram. Miðnæturmessa var í Skálholtskirkju á jólanótt og
þar var hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Á annan dag jóla
var messað í Haukadal og Bæðratungu og á Torfastöðum
á nýársdag. Fastir þættir í kirkjulegu starfi em messur í
Skálholtskirkju kl. 11 hvem sunnudag og
bamaguðsþjónustu í Torfastaðakirkju annan hvem
sunnudag kl. 14.
Heilsufar hefur verið fremur gott í sveitinni í
skammdeginu, þó nokkuð hafi borið á inflúensu einkum
um jól og áramót.
Helstu sýnilegar verklegar framkvæmdir eru að
skemma er risin á Hábrún og unnið er að hótelbyggingu í
Brattholti.
Þorri var blótaður á öðm kvöldi hans í umsjá
sóknarbarna í Bræðratungusókn. Þau skemmtu með
fmmsömdu efni í bundnu og óbundnu máli, mæltu fram
og sungnu. Að því loknu var dansað fram eftir nóttu við
tónlist tveggja manna hljómsveitar. Gestir munu hafa
verið full þrjú hundmð.
I fyrstu viku þorra var í Aratungu fundur um
Frá þorrablóti 2000. Valur á Gýgjarhóli, Guðmundur í
Kistuholti og Arnór í Arnarholti.
þjóðlendur, og var kröfu fulltrúa ríkisins um að hluti af
þinglýstum eignarlöndum yrðu gerð að þjóðlendum í
eigu ríkisins mótmælt þar harðlega. Fundarmenn voru
um 150, flestir íbúar í uppsveitum Ámessýslu, en þar var
einnig fólk lengra að, ráðherrar landbúnaðar og fjármála
og nokkrir alþingismenn.
Nokkrar kindur hafa heimst við Hlíðarnar síðustu
mánuðina. Fimm voru sóttar í Kálfársporða á
þorláksmessu og tveir lambhrútar komu í
æmar í Uthlíð upp úr miðjum janúar.
Var talið líklegt að þeir hefðu verið í
skógræktargirðingu í nágrenninu en skafl
á girðingu og fiðringur í kropp þeirra hefði
valdið því að þeir komu þaðan. Síðan sáust kindur
fyrir ofan Neðradal í febrúar, og reyndust það tvær á
öðrum vetri með sitt lambið hvor. Allar þessar
kindur voru frá Austurhlíð nema annar hrúturinn
sem kom að Uthlíð, en hann var þaðan. Féð var
yfirleitt vel haldið. Nokkrar kindur sáust við
Selgil innarlega í Efstadalshögunum um miðjan
febrúar, og gera einhverjir fjárbændur á
Hlíðarbæjnum sér vonir um að heimta þar enn.
Erla Lárusdóttir, húsfreyja á
Reykjavöllum, lést í janúar. Hún var jarðsett á
Kotströnd í Ölfusi.
Jón Bjarnason, fyrrum bóndi í Auðsholti 1
í Skálholtssókn, lést í febrúar. Hann var jarðaður í
Skálholti.
A. K.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. um öll leyfi fyrir heimtaug að
Efnissala og varahlutaþjónusta. sumarhúsum og lagningu raflagna.
Fljót og góð vinna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Heimasími 486-8845
Verkstæði sími 486-8984
Bílasími 853-7101
Litli - Bergþór 5