Litli Bergþór - 01.03.2000, Side 7

Litli Bergþór - 01.03.2000, Side 7
Hreppsnefndarfréttir hreppsnefndar. í 16-lið 6. gr. er rétt að fram komi að kvörtunum verði komið skriflega til sveitarstjóra. Kjör oddvita og varaoddvita Biskupstungahrepps. Samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998, ber að kjósa oddvita og varaoddvita árlega. Sveinn Sæland var kjörinn oddviti og Margrét Baldursdóttir varaoddviti næsta árið. Samþykkt með 6 atkvæðum, Agla Snorradóttir sat hjá við afgreiðslu málsins. Drög að samningi og sameiningu Biskupstungna- hrepps og annarra sveitarfélaga um brunavamir með nýjum sameiningar- og samstarfssamningi. Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps felur Ragnari S. Ragnarssyni sveitarstjóra, Margeiri Ingólfssyni og Sveini Sæland að vinna frekar að málinu. Forsendur þess hljóta að vera bættar brunavamir í Biskupstungum. Miðað við að sameinaðar bmnavamir fjárfesti í nýrri slökkvibifreið og eftirlit með bmnavörnum aukist telur hreppsnefnd að skoða eigi vel það samstarf sem felst í sameiningu við Brunavamir Amessýslu. Fundargerðir fræðslunefndar frá 25.10.99 og 24.11.99. Bent var á nauðsyn þess að taka ákvörðun um framtíð farfuglaheimilisins á næsta fundi hreppsnefndar. Beiðni um auknar fjárheimildir til snjómoksturs. Samþykkt að halda áfram snjómokstri en gæta ítrasta aðhalds. Hreppsráðsfundur 11. janúar 2000. Bréf frá Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands um að komið verði á fót eignarhaldsfélagi Suðurlands sem verði í eigu Atvinnuþróunarsjóðs. Til félagsins er stofnað vegna úthlutunar ríkisins í atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Kynnt. Bréf frá SASS um málefni Náttúrustofu Suðurlands og Kirkjubæjarstofu. SASS telur sér ekki fært að mæla með auknum útgjöldum vegna þessa, en skorar á rfkisstjórn og Alþingi að beita sér fyrir áframhaldandi uppbyggingu Náttúmfræðistofu. Kynnt. Lagðar fram starfs- og vinnureglur um félagslega heimaþjónustu í Biskupstungum. Hreppsráð leggur til við hreppsnefnd að hún staðfesti reglur um félagslega heimaþjónustu. Farið yfir fundarboð borgarafundar sem haldinn verður miðvikudaginn 12. janúar og mun fjalla um skipulagsmál sveitarinnar. Tilboð vegna sorphirðu í fjórum sveitarfélögum, Grímsnes- og Grafningshreppi, Laugardalshreppi, Þingvallasveit og Biskupstungum hafa verið opnuð. Alls bárust fimm tilboð. Lægsta tilboðið átti Gámaþjónustan 8,632 milljónir árlega, en tilboðið gerir ráð fyrir sex ára samningi við viðkomandi verktaka. Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá 14.490.000. og því er lægsta tilboðið um 59% af kostnaðaráætlun verksins. Fundur haldinn 10. janúar með framkvæmdastjórum og oddvitum ofangreindra sveitarfélaga leggur til við hreppsnefndir viðkomandi sveitarfélaga að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, þ.e. Gámaþjónustuna, og að jafnframt verði tekið frávikstilboði þeirra um söfnun landbúnaðarplasts 2-3 sinnum á ári hjá lögbýlum. Hreppsráð telur að tilboð Gámaþjónustunnar sé hagstætt og leggur til við hreppsnefnd að hún samþykki að ganga til samninga við þá. Minnispunktar vegna moltugerðar frá 10. janúar 2000, kynntir. Bréf frá heilbrigðiseftirliti Suðurlands þar sem kemur fram að heilbrigðisnefnd samþykkir gjaldskrá Biskupstungna vegna sorpflutninga og sorpeyðingar fyrir árið 2000. Ekki var heldur gerð athugasemd við samþykktir um sorphirðu. Bréf frá Umhverfisráðuneyti þar sem fjallað er um sorphirðu og gjaldskrármál. Bréf frá Umhverfisráðuneytinu um allt að 20% styrk vegna fráveituframkvæmda í sveitarfélaginu fyrir árið 1999. Jafnframt bent á að stvrkumsóknir vegna ársins 2000 þurfi að berast fvrir 1, maí n.k. Sveitarstjóra falið að kynna málið íbúum sveitarinnar. Svarbréf frá Umhverfisráðuneytinu frá 13. desember 1999, þar sem fram kemur að ekki er gert ráð fyrir athugasemdum ráðuneytisins vegna lagningar nýs vegar vegna væntanlegs flutnings Svartárbotnaskála. Náttúruvernd ríkisins hafði gert athugasemdir við flutninginn og var vegagerðin helsti Þrándur í götu þess. I framhaldi af svari Umhverfisráðuneytisins þarf að Ijúka við að svara öðrum framkomnum athugasemdum Náttúruverndar Ríkisins. Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um viðbótarframlag ríkisins í jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Vegna þessa fékk Biskupstungnahreppur 2.557.659,- krónur í árslok 1999. Bókast sem breyting á fjárhagsáætlun vegna ársins 1999. Ekki verður haldinn sérstakur kynningarfundur um fjárhagsáætlun 2000 að þessu sinni en íbúum gefinn kostur á að koma með athugasemdir og tillögur að því sem betur má fara í sveitarfélaginu og snertir gerð fjárhagsáætlunar, miðvikudaginn 19. janúar. Þádaga mun sveitarstjóri taka á móti þeim sem hafa tillögur fram að færa í þeim efnum og koma á framfæri við hreppsnefnd við síðari umræðu fjárhagsáætlunar, 25. janúar n.k. Samningur um fjargæslu/öryggisvörslu allan sólarhringinn í þrem húsum í eigu Biskupstungnahrepps. Húsin eru Reykholtsskóli, íþróttamiðstöð og félagsheimilið Aratunga. Með samningi þessum er nú fylgst með brunaboðum allan sólarhringinn í stjómstöð Vara. Kostnaður vegna samningsins er um 90.000 ,- krónur árlega. Umsögn sveitarstjórnar um áframhaldandi útleigu Landbúnaðarráðuneytis á jarðarparti úr jörðinni Laug, Biskupstungum. Lagt til við hreppsnefnd að hún staðfesti jákvæða umsögn. Hreppsráð leggur til að álagning vatnsskatts árið 2000 verði óbreytt frá fyrra ári eða 0,2% af álagningarstofni fasteignar. Samþykktir um stjórn og fundarsköp Biskupstungnahrepps lagt fram til kynningar. Fyrri umræða verður á febrúar fundi hreppsnefndar. Einnig kynnt skipurit fyrir Biskupstungnahrepp. Litli - Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.