Litli Bergþór - 01.03.2000, Qupperneq 12

Litli Bergþór - 01.03.2000, Qupperneq 12
Frá íþróttadeild U.M.F.B. Heiöursgestimir Orn Arnarson, nýkjörinn íþróttamaður Talsverðar annir hafa verið hjá stjórn íþróttadeildar síðan um jól. Fyrst ber að telja flugeldasöluna sem við stóðum fyrir milli hátíða eins og verið hefur undanfarin ár. Að þessu sinni fengum við aðstöðu í áhaldahúsi hreppsins og var það fyrir velvilja Lofts, starfsmanns hreppsins, og Ragnars sveitarstjóra að það var hægt. Ég vil nota tækifærið og færa þeim þakkir okkar. Aðstaðan var mjög góð þó það væri kannski full þröngt. Salan gekk nokkuð vel, en hefði þó mátt vera meiri. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja eins og allir vita og það er erfitt að venja Tungnamenn á nýja siði eins og það að þeir þurfi að koma til okkar til að kaupa flugeldana, en þetta er nú að smá koma. Salan minnkaði heil mikið þegar við hættum að keyra um sveitina en hefur smá aukist aftur. íþrótta- og heilsudagur var haldinn með tilþrifum 8. janúar. Þar var ýmislegt til gamans gert, yngstu skólabörnin fóru í leikfimi, hreppsnefndir Grímsnesinga Iþróttaálfurinn Magnús Scheving sprellaði með okkur. og Tungnamanna kepptu í ýmsum greinum, Örn Arnarson nýkjörinn íþróttamaður ársins 1999 og Lára Hrund Bjargardóttir sundkona íslands 1999 heimsóttu okkur. Síðast en ekki síst þá kom sjálfur íþróttaálfurinn Magnús Scheving og sprellaði með okkur, öllum og þá ekki síst börnunum til mikillar ánægju. Á eftir var „heilsukaffi" í Aratungu. Mig langar að nefna það hér að þáttur Jóns í Aratungu er okkur mikils virði og færum við honum bestu þakkir, einnig öllum öðrum foreldrum sem aðstoðuðu okkur. Samkoman þótti takast mjög vel og allir(!) fóru glaðir heim. Reyndar grét önnur litla dóttir mín alla ársins 1999 og Lára Hrund Bjargardóttir, sundkona heimleiðina þegar hún komst að því að systir hennar íslands 1999 ásamt Ragnari Sæ og Siggu Jónu. var með eiginhandaráritanir frá Erni og Magnúsi. Hún hafði misst af því, vegna þess að hún flýtti sér svo mikið að fara í sund með Erni. Um leið og íþróttadeginum var lokið tókum við til við að undirbúa bingó, sem síðan var haldið í Aratungu 4. febrúar. Þarna vorum við að vígja nýja bingóvél sem nokkurfélög hafa keypt í sameiningu. Mörgum finnst gaman að spila bingó og var þetta hin besta skemmtun. Hápunkturinn var þegar spilað var um ferð til Kanarýeyja, en það var Droplaug Guttormsdóttir í Skálholti sem vann hana. Nú sem stendur er stjórn íþróttadeildar að undirbúa aðalfund sinn, sem halda á í lok febrúar. Það Yngri og eldri kynslóðir er þvf, nógU að snúast, því auk þess, sem að ofan er leysa þrautir sinar. talið þá er alltaf visst starf í gangi til að sjá um íþróttaæfingarnar, sem eru núna með sama sniði og fyrir áramót, utan það að jiu-jitsu er ekki lengur æft. Þátttaka var ekki næg í því og er það miður, því að hluti þeirra sem það æfðu voru krakkar sem fundu sig ekki í neinum íþróttum áður en byrjað var að æfa jiu-jitsu. Það er að mfnu mati einmitt tilgangurinn með íþróttastarfinu að allir geti fundið íþrótt við sitt hæfi og þroskað síðan sína hæfileika innan hennar. Litli - Bergþór 12 F.h. Iþróttadeildar Umf. Bisk. Sigríður J. Sigurfinnsdóttir.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.