Litli Bergþór - 01.11.2002, Blaðsíða 16

Litli Bergþór - 01.11.2002, Blaðsíða 16
Hreppsnefndarfréttir I samræmi við 1. tölulið 4. fundar byggðaráðs frá 31. júlí hefur verið kannað hvemig niðurgreiðslum sé háttað vegna vistunar barna á leikskólaaldri á einkaheimilum. Ekki eru slrkar greiðslur á Suðurlandi þar sem eftir því var leitað. Byggðaráð leggur ekki til að teknar verði upp slíkar greiðslur til annarra en forgangshópa eins og verið hefur. 6. fundur byggðaráðs Bláskógabyggðar haldinn 24. september 2002. Bréf frá úttektaraðila Vegagerðarinnar vegna skemmda á Tungufljótsbrú. Bréfið hefur verið sent áfram til Steypustöðvarinnar og farið fram á að gert verði við brúna samkvæmt áliti sérfræðinga Vegagerðarinnar. Byggðaráð telur að verulegur dómgreindarbrestur hafi orðið hjá ökumanni og telur vítavert hvemig aksturslag bifreiðarstjóra fór með brúna. Farið hefur verið fram á það við Steypustöðina að brúin verði komin í samt lag innan mánaðar. Bréf frá Umhverfisráðuneytinu vegna stjórnsýslu- kæru á úrskurði Skipulagsstofnunar frá 19. júlí um mat á umhverfisáhrifum vegna háspennulínu, Sultartangalínu. Oskað er eftir umsögn Bláskógabyggðar. Um er að ræða kæru frá Böðvari Jónssyni frá 18. ágúst 2002, Guðmundi Guðmundssyni og Salóme H. Björnsdóttur dags. 23. ágúst og fjórar kærur frá TAXIS lögmannsstofu dags. 22. ágúst 2002. Byggðaráð ítrekar fyrri samþykktir sveitarstjóma Bláskógabyggðar um samþykki fyrir lagningu línunnar. Aðalfundur SASS haldinn að Hótel Selfossi 30. og 31. ágúst 2002. A fundinum voru samþykktar allar helstu áskoranir sem borist höfðu frá Bláskógabyggð m.a. í samgöngumálum, þjóðlendumálum og uppbyggingu Iþrótta- og Olympíumiðstöðvar á Laugarvatni. Kynnt. Fjárlaganefnd Alþingis ráðgerir að gefa sveitar- stjórnarmönnum kost á að eiga fund með nefndinni vegna fjárlagaársins 2003. Kynnt, sveitarstjóra falið að mæta f.h. sveitarstjómar og kynna fyrir fjárlaganefnd viðhaldsþörf Héraðsskólahúsnæðisins að Laugarvatni og senda mennta- málaráðherra ítrekað bréf þar sem bent er á ábyrgð ríkisins í þeim efnum. Sveitarstjóri kynnti að daganna 1.-3. október n.k. munu fara fram viðtöl vegna úttektar Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri á skólastarfi í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi. Upplýst hefur verið um úttektina í Bláskógafréttum fyrr í mánuðinum. Lagt fram bréf sem lýsir sundurliðun á viðtölum sem verða tekin þessa daga. Byggðaráð leggur til að sveitarstjóri verði tengiliður við úttektaraðila meðan á úttekt stendur. Kjör fulltrúa í Almannavarnarnefnd, í nefndina var valið af oddvitum viðkomandi svæða. Aðalmenn Gunnar Þorgeirsson, Grímsnes- og Grafningshreppi og Ólafur F. Leifsson Hlemmiskeiði. Til vara: Ragnar Sær Ragnarsson Bláskógabyggð og Stefán Helgason Vorsabæ, Gaulverja- bæjarhreppi. Munnlegar ábendingar um friðun rjúpustofnsins í Bláskógabyggð næstu 2-3 ár. Byggðaráð vísar því til lan- deiganda á hverjum stað að taka afstöðu til erindisins. Samkvæmt bréfi frá Lánasjóði sveitarfélaga dags. 26. júlí 2002 er samþykkt samkvæmt skilyrðum sem fram koma í bréfi sjóðsins að taka krónur 6.000.000,- lán fyrir Hitaveitu Laugarvatns með tryggingu í tekjum sveitar- félagsins vegna lántökunnar sbr. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og 13. gr. laga um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 35/1966. Erindi þetta hefur áður fengið umfjöllun byggðaráðs 31. júlí 2002, samkv. 2. lið. Bókað til að ítreka fyrri ákvörðun sveitarfélagsins á að taka lánið. Umræður um skipulag á snjómokstri veturinn 2002- 2003. Samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við Vegagerð og verktaka Vegagerðarinnar um hreinsun akstursleiða skólabíla þegar snjóalög verða mikil. Eftirfarandi samþykkt er lögð fyrir sveitarstjórn til staðfestingar vegna vinnuregla við snjómokstur. Til að fyrirbyggja allan mis- skiling er rétt að kynna vinnulag Vegagerðar og sveitar- félagsins um snjómokstur. Fjóra daga í viku mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og laugardaga sér Vegagerðin um að moka Biskupstungnabrautina frá Selfossi upp að Gullfossi (vegur 35), Laugarvatnsveg (vegur 37) og Þing- vallaveg (vegur 36). Eystri - Tungan (358), Reykjavegur (355) og Uteyjarvegur (364) eru mokaðir af sveitarfélaginu og Vegagerð í jafnri kostnaðarhlutdeild en það þarf samþykki Vegagerðarinnar til þess að þessar leiðir séu rud- dar. Það er gert þegar nauðsyn krefur, annars ekki. Séð er til þess að öll grunnskólabörn komist 1 skóla enda hvílir lagaleg skylda til þess á sveitarfélaginu. Því er reynt að halda akstursleiðum skólabíla opnum. Ekki eru mokaðar heimreiðar að einstaka bæjum. Því eru þessar reglur gerðar opinberar að allir viti hvaða reglum er unnið eftir og geti undirbúið sig fyrir veturinn samkvæmt því. Enginn mok- stur er sjálfvirkur á vegum sveitarfélagsins og er eingöngu mokað þegar sýnt þykir að eitthvað mikið sé að færð. Bréf frá félagsmálanefnd uppsveita Arnessýslu um að starfshlutfall félagsmálastjóra farí úr 80% í 100%. Byggðaráð leggur til að aukning á starfshlutfalli verði samþykkt. Akvörðun um þátttöku Bláskógabyggðar í verkefn- inu, uppbygging Gaddstaðaflata. Samþykkt að sveitar- félagið taki þátt í verkefninu í heild sinni með fyrirvara um aðkomu rfkisins að verkefninu. Frá Ibúðalánasjóði. Upplýsingar um tímamörk á umsóknafresti til að taka lán til byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði á komandi ári. Kynnt og sveitarstjóra falið að sækja um leyfi fyrir byggingu tveggja íbúða þó svo að ekki sé gert ráð fyrir því að nýta það á árinu. Einnig bréf þar sem minnt er á að samkv.^-"' /yjj reglugerð skulu sveitarstjórnii-/ kólnar ílielli mínum, \ gera þriggja ára áætlun umiget eg sótt um íbúðalán? ) þörf á viðbótarlánum. Litli Bergþór 16

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.