Litli Bergþór - 01.03.2004, Qupperneq 12
Skírn í Stóra-Núpskirkju við kveðjumessu sumarið 1970, eftirfimm ára þjónustu þar. Taliðfrá vinstri: Sigurjón Kristinn (foreldrar
Guðmar Guðjónsson og Kolbrún Sigurjónsdóttir, Stóra-Hofi), Jóhann (for. Björn Jóhannsson og Kistín Guðmundsdóttir, Skriðu-
felli), Jóhann Þór (for. Sigurður Rúnar Andrésson og Jóhanna Haraldsdýttir, Haga), Björn Ingi (for. Sigurgeir Guðmundsson og
Steinunn G. Björnsdóttir, Skáldabúðum), Hörður (for. Unnur Zophaníasdóttir og Hákon Halldórsson, Selfossi) og Gunnar (for.
Runólfur Guðmundsson og Guðný Gunnarsdóttir, Skáldabúðum).
þangað til báturinn birtist sem bóndinn eða sonurinn
var á. Þá settust þær loks niður og gátu átt notalega
rabbstund. A þessum árum voru aðeins gerðir út 3
litlir bátar frá Súðavík og þeir fórust allir árin eftir að
við fórum þaðan. Það var mikil blóðtaka fyrir þetta
litla samfélag, þar sem í senn fóru feður, bræður, synir.
Og síðan snjóflóðið 1995.
Við höfum enn góð tengsl við Súðvíkinga, flestir
þeirra eru nú fluttir hingað suður, en sumir hafa breytt
gömlu húsunum sínum vestra í sumarhús, því það er
bannað að búa í þeim á vetuma. - Það var vissulega
erfitt að fara frá Súðavík, við skildum eitthvað af
okkur eftir þar.
En árið 1965 deyr sr. Gunnar í Skarði og ég fæ
hvatningu frá ýmsu sóknanefndarfólki Skeiða- og
Gnúpverjahrepps að sækja um Stóra-Núpsprestakall.
Fór svo að ég var eini umsækjandinn og var því
kosinn! Þegar ég kom að Skarði vegna úttektarinnar
og til að taka við prestssetrinu, Var húsið að sjálfsögðu
galtómt, nema á skrifstofunni hékk hempa sr. Gunnars.
Þá varð mér það ljóst að menn koma og fara, en
þjónustan /embættið (hempan) blífur.
I Stóra-Núps prestakalli voram við samtals í 5 ár, til
1970, en auk Stóra-Núpskirkju tilheyrðu því líka
Hrepphólakirkja og Ólafsvallakirkja. Það var gott að
vera á Skarði, ég þekkti til á flestum bæjum og þar
fæddist eldri sonur okkar, Magnús Þorkell þann 7. des.
árið 1966. Eg man að það var ófærð og snjókoma og
ég flýtti mér svo á fæðingadeildina að ég keyrði útaf á
leiðinni suður og reyndar aftur á leiðinni heim. Þetta
var fyrir daga stikanna.
Skarði fylgdu 2 kúgildi, eða 12 ærgildi. Ég var
vanur sveitastörfum að sumri til, en hafði lítið vit á
búskap að vetri. Fékk ég góð ráð hjá sveitungunum
þegar ég fór í húsvitjanir fyrsta haustið. Þau dugðu
því að þyngsti dilkurinn í sláturhúsinu í Laugarási
næsta haust var frá bóndanum í Skarði. Dagblaðið
Vísir birti fyrirsögn um að þarna væri prestur í feitu
brauði, en það fylgdi reyndar ekki sögunni að lambið
fæddist á þorranum!
Seinna höfðum við makaskipti við skólastjórann í
Brautarholti, sem var búfræðikandidat. Hann flutti að
Skarði, en við í skólastjórahúsið í Brautarholti, sem var
þá nýbyggt. Það var í rauninni léttir því ég hafði
hvorki tól, tíma né kunnáttu til að halda við húsum og
jörð sem skyldi og vildi ekki að Skarð darkaðist niður.
Svo kenndi ég líka á Brautarholti í unglingaskólanum,
svo þetta var þægilegra. Eins vorum við á þessum
tíma töluvert í Skálholti með sumarbúðir. Rannveig
var heimavinnandi með bömin og það var mikill gesta-
gangur.
Rannveig: Við áttum yndislegt nágrenni í Skarði,
með fólkinu á sömu símalínu. Við konurnar vorum í
saumaklúbb saman og fjölskyldumar á línunni sáu um
þorrablótið eitt árið. Þetta var eins og ein fjölskylda.
Þegar Bemharður var fjarverandi, kom höfðinginn,
Ingvar í Þrándarholti, ítrekað á hesti sínum til að kanna
hvort ekki væri allt í lagi hjá okkur Svövu. Slíkt
gleymist ekki.
Skarð átti þá kirkjusókn til Hrepphóla, þótt það
tilheyrði Gnúpverjahreppi. Ég var í Hrepphólakórnum
og þar eignuðumst við gott vinafólk. Kirkjan í
Hrepphólum er svo yndislega falleg og Elísabet og Jón
í Hrepphólum hugsuðu svo vel um hana.
Það var líka gott og skemmtilegt að búa meðal
Skeiðamanna. A okkar tíma þarna var byggt við
Ólafsvallakirkju á Skeiðum og málaði Baltasar
altaristöflu af heilagri kvöldmáltíð á nýja kórvegginn.
Hafði hann áður málað altaristöflu í Flateyjarkirkju og
heitið því að skreyta kirkju fyrir hvert barn sem Guð
gæfi honum! Nú áttu þau hjónin annað bam í vændum
og hann var spurður hvort áheit hans stæði með tilliti
Litli Bergþór 12