Litli Bergþór - 01.03.2004, Qupperneq 22
12.400.000. Kostnaðarauki vegna málaflokka grunnskóli
kr. 7.000.000, framhaldsskóli 2.100.000, alls kr.
9.100.000. Samþykkt og skoðast sem breyting á
fjárhagsáætlun.
Ráðning í starf forstöðumanns við Þjónustumiðstöð
B láskógaby ggðar.
Sveitarstjóri lagði fram eftirfarandi greinargerð:
í framhaldi af auglýsingu eftir starfsmanni í Þjón-
ustumiðstöð Bláskógabyggðar hefur sveitarstjóri leitað
ráðgjafar um ráðningu viðkomandi starfsmanns en fjórar
umsóknir bárust um starfið.
Sveitarstjóri leggur til að Loftur Jónasson kt.
180953-2649 verði ráðinn. Astæður þess eru m.a. þær að
Loftur hefur mikla starfsreynslu í viðkomandi starfi eða
rúmlega 12 ár og getið sér gott orð fyrir að vera hagsýnn,
vandvirkur og traustur starfsmaður. Loftur hefur á
löngum starfsferli aflað sér þekkingar á fjölmörgum
atriðum verklegra framkvæmda.
Öllum umsækjendum verður svarað skriflega.
Samþykkt með 4 atkvæðum en 3 sátu hjá.
Bókun Bjarna: Oddviti, sveitarstjóri og formaður
byggðaráðs eru allir Tungnamenn, svo er og um fóðure-
ftirlitsmann sveitarinnar, forstöðumann veitna og
tjárhaldsmann hitaveitunnar. Tungnamaður var ráðinn
skólastjóri án auglýsingar. Skrifstofu sveitarfélagsins var
fundinn staður í Reykholti. Ahaldahúsið á Laugarvatni
var lagt niður og starfsmanni sveitarfélagsins sagt upp
störfum. Nú á að ráða Tungnamann í nýtt starf
forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar Bláskógabyggðar.
Aðeins tveir umsækjenda hafa menntun til að gegna
starfinu og hvorugan þeirra ætlar meirihlutinn að ráða. í
ljósi þess hvernig þetta mál er allt í pottinn búið hjá
meirihlutanum og niðurstaðan fyrirfram ákveðin, kýs ég
að sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.
Bókun Þ-lista: Þ-listinn harmar þann málflutning sem
fram kemur í bókun Bjama Þorkelssonar. Þ- listinn hefur
haft hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og mun halda
áfram að starfa í þeim anda með hagræðingu í huga.
Kosning fulltrúa í sameiginlega skipulagsnefnd
uppsveita Arnessýslu.
Lagt til að Sveinn A. Sæland verði aðalmaður og
Snæbjörn Sigurðsson verði varamaður. Samþykkt með 4
atkvæðum en 3 sátu hjá.
Deiliskipulagstillaga að miðkjarna Laugaráss.
Svæðið afmarkast af Skúlagötu í suðri, Skálholtsvegi í
vestri, Ferjuvegi í norðri og Bæjarholti í austri. Um er að
ræða 10 garðyrkjulóðir sem allar eru þegar byggðar.
Umrætt svæði er síðasta svæðið í Laugarási, sem ekki
hefur verið skipulagt.
Samþykkt að skipulagsfulltrúi auglýsi skipulagið.
Kosning í nefndir. Drífa, Kjartan og Bjarni leggja til
að endurkosið verði í nefndir á vegum sveitarfélagsins
enda hafi valdahlutföll í sveitarstjórn breyst.
Lagt er til að fresta málinu til næsta fundar sveitar-
stjómar þar sem fyrir liggur breyting á samþykktum
sveitarfélagsins. Samþykkt með 4 atkvæðum og 3 sitja
hjá.
Tillaga frá Drífu um gerð jafnréttisáætlunar fyrir
sveitarfélagið.
Samþykkt og oddvita falið að taka málið upp í odd-
vitanefnd uppsveitanna með það fyrir augum að gera
sameiginlega jafnréttisáætlun fyrir allar uppsveitirnar.
Fyrirspurn frá Drífu og Kjartani um stöðu gatna-
framkvæmda í Reykholti og Laugarási.
í svari oddvita kom fram að framkvæmdum
samkvæmt útboði er að fullu lokið á báðum stöðum.
Asvélar ehf, sem önnuðust verkið, stóðu að öllu leyti
mjög vel að málum og skiluðu verkinu um það bil
mánuði á undan umsömdum tíma.
Lagningu holræsa og lagna sem Þjónustumiðstöð
Bláskógabyggðar mun hafa umsjón með hefur verið
frestað fram á næsta ár en verður framkvæmd um leið og
færi gefst á nýju ári.
Tillaga frá Kjartani Lárussyni: Sveitarstjórn sam-
þykkir að stefna að sameiningu Hitaveitu Laugarvatns og
Biskupstungnaveitu sem allra fyrst, helst um áramótin,
eða í byrjun árs 2004.
Greinargerð: Það hlýtur að vera mikill hagur fyrir
veiturnar að sameinast með því sparast mikill kostnaður
við að vera bara með einn ársreikning í stað tveggja. Vera
með sameiginlegan lager fyrir báðar veiturnar og sam-
eiginlega gjaldskrá. Þannig verður veitan mun öflugri en
ella og mikil hagræðing. Tillagan feld með 4 atkvæðum
gegn 3.
Bókun Þ-lista.
A fundi sveitarstjómar 15. júlí 2003 var samþykkt að
taka upp viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um
orkumál. Þær viðræður eru nú í gangi og leggur Þ-listinn
til að ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag veitna sveitar-
félagsíns verði frestað þar til niðurstaða þeirra viðræðna
liggur fyrir.
27. fundur byggðaráðs 6. janúar 2004.
Mættir voru byggðaráðsfulltrúar auk Ragnars S.
Ragnarssonar, sem ritaði fundargerð.
Bréf frá Barnavernd Reykjavíkur dags. 8. des. 2003
þar sem óskað er eftir námsvist fyrir barn í Grunnskóla
Bláskógabyggðar, Reykholti. Þar sem tryggt er að
Reykjarvíkurborg greiðir með baminu þá leggur
byggðaráð til að baminu verði veitt námsvist, en vill þó
gera þann fyrirvara að ef í ljós kemur að veita þurfi barn-
inu viðbótarþjónustu þá verði hún einnig greidd.
Bréf frá Héraðssambandinu Skarphéðni dags. 5. des.
2003, þar sem óskað er eftir fjárstyrk. Byggðaráð leggur
ekki til að Héraðssambandið Skarphéðinn verði styrkt
umfram það sem Bláskógabyggð gerir í gegn um
Héraðsnefnd Arnesinga. Frekari umræðu vísað til gerðar
fjárhagsáætlunar Héraðsnefndar Amesinga.
Bréf frá Golfklúbbi Dalbúa, dags. 11. des. 2003, þar
sem óskað er eftir samstarfi við Bláskógabyggð.
Byggðaráð leggur til að sveitarstjóri fundi með fulltrúum
þeirra og fari yfir málið.
Bréf frá Óbyggðanefnd dags. 1. des. 2003, þar sem
tilkynnt er um meðferð hennar á landi í Bláskógabyggð.
Byggðaráð vill benda á samþykkt aðalfundar SASS frá
14. og 15. nóv. 2003 þar þar sem ríkisvaldið er hvatt til
að stöðva málarekstur fyrir Óbyggðanefnd þar til endan-
legur úrskurður dómstóla liggur fyrir í Biskupstungum.
Niðurfelling skulda. Byggðaráð leggur til að af-
skrifaðar verði útistandandi skuldir við sveitarsjóð
Bláskógabyggðar að upphæð kr. 84.558-. Einungis er um
að ræða þjónustugjöld sem ranglega voru skráð sem
útstandandi skuldir.
Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 3. des. 2003 þar
sem fram kemur að endurgreiðsla ríkisins til sveitarfélaga
vegna refa- og minkaveiða skerðist úr 50% í 30% á árinu
2003. Byggðaráð mótmælir harðlega þessari skerðingu á
framlagi ríkisins og bendir á að nær hefði veri að ríkið
hefði aukið sinn hlut þar sem umhverfisráðherra hefur
m.a. boðað herferð gegn minknum þar sem reyna á að
útrýma honum. Byggðaráð hvetur umhverfisráðherra til
að auka fjármagn til þessa málaflokks þannig að hægt
verði a.m.k. að standa við gefin fyrirheit um 50% endur-
greiðslu. Auk þess vill byggðaráð benda á að þetta er ein-
ungis einn af fjölmörgum málaflokkum þar sem ríkis-
valdið ætlast til aukinnar þátttöku sveitarfélaga án þess
að tekjur komi á móti. Að lokum skorar byggðaráð á
Litli Bergþór 22