Litli Bergþór - 01.06.2005, Qupperneq 21
Hreppsnefndarfréttir
Úr fundargerðum sveitarstjórnar og byggðaráðs Bláskógabyggðar
42. fundur byggðaráðs 12. apríl 2005.
Mætt voru Margeir Ingólfsson, formaður byggðaráðs,
Snæbjöm Sigurðsson og Drífa Kristjánsdóttir.
Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga dags 8. mars 2005 þar
sem staðfest er lánsumsókn Bláskógabyggdar til sjóðsins í
samræmi við fjárhagsáætlun ársins 2005. Einnig lagt fram
bréf sveitarstjóra og oddvita um að farið verði í skuld-
breytingu allra óhagstæðra lána sveitarfélagsins og félaga í
eigu Bláskógabyggðar í kjölfar breyttra aðkomu Lánasjóðs
sveitarfélaga að lánafyrirgreiðslu.
Bréf frá Kristni Kárasyni og Ingibjörgu Leósdóttur
dags 4. mars 2005 með ósk um að Kjaranstaðir II verði
gert að lögbýli. Byggðaráð gerir ekki athugasemd við það
að Kjaranstaðir II verði gert að lögbýli en bendir bréfritu-
ram á að snúa sér með erindið til landbúnaðarráðuneytisins
því þessi mál falli undir ráðuneytið.
Bréf frá Lögmönnum Suðurlands, dags. 10. mars 2005
og Ragnari Aðalsteinssyni, dags. 9 mars 2005, vegna
mögulegrar kæru vegna þjóðlendumála um afrétt
Biskupstungna til Mannréttindadómstóls Evrópu (ME).
Sameiginleg niðustaða lögmannanna er að slík kæra til ME
teldist ekki meðferðarhæf og yrði vísað frá. Astæða þessa
er sú að ME hefur vísað frá kærum sveitarfélaga á þeirri
forsendu að sveitarfélög gegni opinberu hlutverki og fari
með opinbert vald. ME hefur ekki talið það sitt hlutverk að
skera úr um ágreining tveggja opinbera aðila þ.e. rikis og
sveitarfélaga. I ljósi þess að kostnaður við kæru til ME yrði
verulegur og ekki líklegt að kæran yrði tekin til meðferðar
þá leggur byggðaráð til að ekki verði farið út í frekari
málaferli. Byggðaráð bendir á að sveitarfélagið verði að
aðlaga sig að breyttu eignarhaldi á afréttinum en bendir
jafnframt á að sveitarfélagið hefur ákveðin réttindi og skyl-
dur á svæðinu sem huga þarf að hér eftir sem hingað til.
Lokatillögur sameiningarnefndar félagsmála-
ráðuneytisins frá 31. mars 2005, um að eigi síðar en 8.
október 2005 verði kosið um sameiningu sveitarfélaganna í
uppsveitum Amessýslu. Erindið er kynnt og vísað til næsta
fundar sveitarstjómar.
Bréf sveitarstjóra frá 4. aprfl 2005, til Vegagerðarinnar,
þar sem óskað er eftir fé úr styrkvegasjóði vegna nýrrar
aðkomu að Fremstaveri, fjallaskála á afrétti Biskupstungna.
Lagt fram til kynningar.
Bréf frá Tónlistaskóla Árnesinga, dags. 31. mars 2005,
og kostnaðarskipting sveitarfélaga vegna launakostnaðar.
Samkvæmt því hækkar framlag Bláskógabyggðar úr kr.
5.156.503 í kr. 5.912.669. Færist þessi hækkun sem breyt-
ing á fjárhagsáætlun ársins 2005.
Kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við
kirkjugarðinn í Skálholti og beiðni sóknamefndar um
þátttöku sveitarfélagsins í hluta af þeim framkvæmdum.
Bréf dags. 12. mars 2005. Byggðaráð leggur til að
Bláskógbyggð styrki verkefnið um kr. 300.000 og verði sú
upphæð tekin inn á fjárhagsáætlun ársins 2006.
Bréf frá aðalfundi félags eldriborgara í Biskupstungum
frá 17. mars 2005, þar sem óskað er eftir því að lögð verði
gangbraut milli Kistuholts og Aratungu. Byggðaráð tekur
vel í erindið og leggur til að umsjónarmanni fasteigna
verði falið að gera kostnaðaráætlun fyrir sltka framkvæmd
og leggja fyrir næsta fund byggðaráðs.
Fundargerð lögð fram til staðfestingar:
Fundargerð 18. fundar veitustjómar, sem haldinn var 9.
mars 2005.1 3. lið fundargerðarinnar er fjallað um kalda-
vatnsmál og nýframkvæmdir í þeim málaflokki. Byggðaráð
tekur undir með veitustjóm þar sem lagt er til að farið
verði í framkvæmdir í samræmi við áætlun Benedikts
Skúlasonar og Hannibals Kjartanssonar.
41. fundur sveitarstjórnar 19. aprfl 2005.
Mættir voru allir sveitarstjómarmenn og Ragnar Sær
Ragnarsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Athugasemd við dagskrá. T-listinn gerir eftirfarandi
athugasemd við dagskrá fundarins. Kjartan Lárusson full-
trúi T-listans sendi oddvita Bláskógabyggðar laugardaginn
16. apríl kl. 15:42 beiðni um að malamám í landi Grafar
yrði tekið á dagskrá í tölvupósti. Svar oddvita: Þessi
dagskrártillaga og tímasetning er ekki í samræmi við
samþykktir sveitarstjómar Bláskógabyggðar og var því
hafnað.
Bókun T-lista. T-listinn lýsir yfir furðu sinni á vinnu-
brögðum oddvitans og fordæmir höfnun hans á að fá
umfjöllun um málið á fundinum. T-listinn hefur aldrei
neitað Sveini A. Sæland að leggja fram mál á fundinum,
þótt þau hafi ekki verið á dagskrá fundarins.
Fundargerð byggðaráðs frá 12. aprfl 2005. Viðbótar
gögn við 3. tölulið. Lögð fram samþykkt Búnaðarþings frá
21. mars 2005 vegna stuðnings við hugsanlega áfrýjun
Hæstaréttardóms um þjóðlendumál til
Mannréttindadómsstóls Evrópu. Að öðm leyti kynnt og
staðfest.
Greinargerð vinnuhóps um skipulag þéttbýlis á
Laugarvatni. Gestir fundarins vegna þessa máls voru
Sigmar Ólafsson og Halldór Páll Halldórsson. Sigmar
Ólafsson formaður vinnuhópsins kynnti tillögur hópsins
ásamt Halldóri Páli og Drífu sem einnig vom í vinnuhóp-
num. Nefndarmenn sögðu frá því hugarflugi sem hópurinn
leyfði sér að fara í. Farið yfir byggingarvalkosti á
Laugarvatni og þörf á rannsóknum vegna þessa. Sagt frá
að hópurinn hefði haldið fund með fulltrúum
Vegagerðarinnar m.a. vegna aðkomu Gjábakkavegar. Lögð
fram greinargerð sem hópurinn hefur tekið saman auk fun-
dargerða hópsins.
Sveitarstjóm samþykkir að fylgja eftir tillögum vinnuhóps
um skipulagsmál á Laugarvatni með því að kjósa þriggja
manna vinnuhóp. Aðalhlutverk vinnuhópsins verði: a). Að
ná samningi við ríkið um að það gefi sveitarfélaginu heim-
ild til að vinna skipulagstillögumar. b) fylgja eftir
breytingum á aðalskipulagi Laugarvatns. c) tillögur að nýju
deiliskipulagi Laugarvatns. Eftirtaldir aðilar voru kosnir í
vinnuhópinn: aðalmenn Sveinn A Sæland, Snæbjöm
21 Litli Bergþór