Litli Bergþór - 01.04.2006, Qupperneq 20
Bréf frá Halldóri Kristjánssyni fh. Afþreyingar-
félagsins, dags. 7. nóv. 2005, þar sem óskað er eftir því
að sveitarstjórn Bláskógabyggðar beiti sér fyrir breytin-
gu á aðalskipulagi fyrir Skálpanes. Oddvita falið að
senda Samvinnunefnd um svæðisskipulag Miðhálendis
Islands erindi þar sem óskað er eftir breytingu á
svæðisskipulaginu til samræmis við óskir Afþreyingar-
félagsins.
Bréf frá Kára Jónssyni fh. Umf. Laugdælings, dags.
25. okt. 2005, þar sem óskað er eftir samstarfssamningi
við Bláskógabyggð. Byggðaráð leggur til að gerður
verði samstarfssamningur við Umf. Laugdæla og Umf.
Biskupstungna, með það að markmiði að efla íþrótta-
og æskulýðsstarf innan sveitarfélagsins. Gert er ráð
fyrir að framlag til ungmennafélaganna verði 2,6
milljónir króna árið 2006, sem skiptist jafnt á félögin.
Bréf frá Gunnari Haraldssyni, dags. 24. okt. 2005,
þar sem óskað er eftir íbúð til leigu. Þar sem Gunnar
var eini umsækjandinn um íbúðina Kistuholt 5B, sem
auglýst var laus til útleigu nýlega, þá hefur verið gerður
leigusamningur við hann um þá íbúð.
Bréf frá Gunnari Sverrissyni, dags. 26. okt. 2005,
þar sem óskað er eftir því að veitt verði fjármagn til að
byggja upp tækjasal (þreksal) í íþróttahúsinu í
Reykholti. Byggðaráð tekur vel í erindið. Ekki verður
gert ráð fyrir framlagi til tækjakaupa á árinu 2006, en
hafinn verði undirbúningur að því að gera þreksal í því
rými sem nú er notað undir gufubað og handmennta-
kennslu. Gert verði ráð fyrir fjármagni til þeirra
framkvæmda af rekstrarfé Eignasjóðs á næsta ári.
Bréf frá Ola Fjalari Böðvarssyni, dags.l. nóv. 2005,
fh. Hestamannafélagsins Trausta þar sem óskað er eftir
fjárstyrk til lagfæringar á reiðvegi frá Apavatni, inn
Laugardal allt að Brúará. A þessum tíma getur
byggðaráð ekki samþykkt ákveðna upphæð til þessa
verkefnis. Byggðaráð kallar eftir ítarlegri upplýsingum
um fyrirliggjandi verkefni innan sveitarfélagsins, bæði
til lagfæringa á núverandi reiðvegum og nýbyggingu
reiðvega, svo og tjármögnun þeirra. Einnig óskar
byggðaráð eftir upplýsingum um, að hvað miklu leyti
LH [Landssamband hestamannafélaga] kemur að
verkefnum sem lúta að viðhaldi reiðvega.
Bréf frá Svæðisvinnumiðlun Suðurlands, dags. 2.
nóv. 2005, varðandi aðgang fólks á atvinnuleysisskrá
að sundstöðum. Byggðaráð sér ekki ástæðu til að fjölga
frekar undanþágum frá núgildandi gjaldskrá.
Viðaukasamningur, dags. 15. nóv. 2005, milli
Landgræðslu ríkisins og Landgræðslufélags
Biskupstungna annars vegar og eigenda Hóla og
Tunguheiðar í Biskupstungum hins vegar. Byggðaráð
leggur til að samningurinn verði staðfestur.
Bréf frá Björgunarsveitum Báskógabyggðar, dags. 4.
október 2005, þar sem óskað er eftir styrk frá sveitar-
félaginu til rekstrar sveitanna. Byggðaráð leggur til að
veittur verður styrkur að upphæð kr. 1.000.000 árið
2006, sem skiptist jafnt á milli björgunarsveitanna,
enda verði gerður samstarfssamningur milli
Bláskógabyggðar og björgunarsveitanna
51. fundur byggðaráðs 6. desember 2005.
Mætt voru: Margeir Ingólfsson formaður byggða-
ráðs, Snæbjörn Sigurðsson og Drífa Kristjánsdóttir auk
Valtýs Valtýssonar sem ritaði fundargerð.
Bréf frá Kolbeini Sveinbjörnssyni og Borghildi
Litli Bergþór 20 ___________________________________
Guðmundsdóttur, dags. 4. des. 2005, þar sem óskað er
eftir umsögn sveitarstjórnar um stofnun lögbýlis á
14.500 fm lands sem þau hafa fest kaup á í landi
Skálabrekku í Þingvallasveit. Byggðaráð gerir ekki
athugasemd við stofnun þessa lögbýlis.
Fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar fyrir árið 2006.
Valtýr kynnti drög að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs
Bláskógabyggðar fyrir árið 2006 og yfirfór forsendur
hennar.
50. fundur sveitarstjórnar 13. desember 2005.
Mættir voru allir sveitarstjórnarmenn nema Kjartan
Lárusson en fyrir hann Kristján Kristjánsson. Einnig
Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Málefni veitna: Tengigjöld kaldavatnsveitu.
Margeir Ingólfsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
Lágmarksheimæðagjald kaldavatnsveitu
Bláskógabyggðar verði kr. 180.000 fyrir sumarhús og
íbúðarhús í skipulögðu þéttbýli m. v. allt að 32 mm
þvermál og allt að 25 metra lengd heimæðar.
Heimæðargjald hækkar í samræmi við aukinn sverleika
og /eða lengd heimæðar. Gjaldið breytist um sama hlut-
fall og byggingarvísitala miðað við 1. jan. 2006.
Lágmarksheimæðagjald fyrir býli að meðtöldu
íbúðarhúsnæði verði kr. 295.000 miðað við allt að 63
mm þvermál heimæðar. Gjaldið breytist um sama hlut-
fall og byggingarvísitala miðað við 1. jan. 2006.
Gjaldskráin taki gildi frá og með 1. janúar 2006.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar 2006.
Sveitarstjóri lagði fram yfirlit yfir áætlaðan rekstrar-
og efnahagsreikning ásamt sjóðstreymi ársins 2006.
Ekki var búið að færa inn áætlun um framkvæmdir á
árinu. Fjárhagsáætlun 2006 er vísað til síðari umræðu,
en haldinn verður fundur í sveitarstjórn þriðjudaginn
20. desember n.k. þar sem gert er ráð fyrir að
fjárhagsáætlun verði afgreidd.
Laun nefnda og stjórna árið 2005.
Lögð fram tillaga um að laun fyrir nefndarstörf hjá
sveitarfélaginu verði þau sömu og á árinu 2004.
Samþykkt samhljóða.
Skólatúnið á Laugarvatni. Bréf Menntaskólans að
Laugarvatni, dags 31. ágúst 2005.
I bréfi skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni
er vakin athygli á lélegu ástandi slitlags á götunum
Skólatúni og Garðstíg á Laugarvatni, en ríkið hefur séð
um uppbyggingu og viðhald gatnanna til þessa. Við
þessar götur stendur starfsmannahúsnæði skólans.
Óskað er eftir því við sveitarfélagið að það sjái um
viðhald og endurbætur á slitlagi umræddra gatna.
Sveitarstjóm tekur vel í erindið og lýsir sig
reiðubúna að taka þessar götur inn í það gatnakerfi á
Laugarvatni sem er í umsjá sveitarfélagsins. Forsenda
þess er þó sú, að greidd verði gatnagerðargjöld að sama
marki og aðrir eigendur íbúðarhúsnæðis í þéttbýli innan
marka sveitarfélagsins, þar sem götur eru í umsjá þess.
Astand gatna, undirbygging, ástand holræsa m.m. þarf
að skoða til þess að hægt verði að meta forsendur
álagningar gatnagerðargjalds. Einnig þarf að skoða
stöðu óbyggðra lóða við umræddar götur gagnvart
álagningu gatnagerðargjalda.
Ráðning oddvita í hlutastarf.
Sveinn Sæland vék af fundi við umræður og
afgreiðslu þessa liðar.