Litli Bergþór - 01.07.2011, Page 29
hrossabjúgu með kartöflum, rófum, gulrótum,
grænum baunum og uppstúf. Þetta var fjörug og
skemmtileg samkoma og voru menn ólatir að kveða
sér hljóðs með sögur og ræður. Menn tóku í meira
lagi hraustlega til matar síns.
Rauða fjöörin:
Rauðu fjaðrar söfnunin fór fram á kosningadaginn, 9.
apríl. Þetta er söfnunarátak Lionshreifingarinnar á
landsvísu. Nú rennur söfnunarféð til kaupa á
hugbúnaði sem les tölvutæk skjöl og mun koma að
miklu gagni fyrir blinda og sjónskerta og aðra þá
sem ekki geta lesið skrifaðan texta. Yið kunnum
sveitungum okkar miklar þakkir fyrir góðar
undirtektir við þetta mikilvæga verkefni.
F ramundan:
Seinna í vor verður farin enn ein fræðsluferð. Þá
verður ekki farið langt yfir skammt, heldur að
Drumboddsstöðum þar sem er mjög myndarlegur
búskapur, eins og menn vita.
Svo verður inntaka nýrra félaga, aðalfundur,
gróðursetningarferð og fleira. Það má sjá á þessari
samantekt að það er líf og fjör í Lionsklúbbnum
Geysi, eins og svo mörgum góðum félögum, hér í
sveitinni okkar. Örn Erlendsson, ritari
.....................................mimmmimmmmimii.......mmmmiim.........mmmmmimmii....................mimm
Um starf eldri borgara í Ðiskups-tungum
I gamni og alvöru
Félag eldri borgara í Biskupstungum var stofnað
11. maí 1992. Félagsstarfið stendur með miklum
blóma. Eftir Tungnaréttir er byrjað að tálga í tré og
spila á spil. Þeir, sem hafa listræna hæfileika, tálga,
en hinir spila. Þá eru þeir sem koma bara til að
spjalla við hringborðið eða prjóna. Ragnhildur í
Gýgjarhólskoti er auðvitað kennari í tálguninni og
hjálpar hún nemendum sínum ef þeir lenda í
ógöngum í sinni listsköpun og setur plástur á sár
þeirra þegar þeir skera sig. Ometanlegt er að hafa
þvílíkan snilling innanborðs. Jón, bóndi hennar,
aðstoðar við ýmislegt. Allt er þetta gert í sjálfboða-
vinnu hjá þeim hjónum, þar eru ekki bankastjóralaun.
Nokkur hávaði berst iðulega úr hinum salnum, þar
sem spilafíflin eru. Þar er ástandið stundum eins og
hjá Goðmundi á Glæsivöllum, „Horn skella á nösum
og hnútur fljúga um borð, höfug fylgja orð“. Þá er
bannað að fara á salerni, nema í ýtrustu neyð.
A hverjum fimmtudegi fer fram sú starfsemi sem
hér er nefnd að ofan. Fyrsta fimmtudag í hverjum
mánuði er síðan meiriháttar samkoma með ýmsum
skemmtiatriðum, svo sem: upplestri, tónlist og
eftirhermum og alltaf í lokin kemur vísa dagsins frá
Jóni í Koti. Þá er veisla á eftir að hætti Fríðu og Jóns
í Aratungu. Svo er stundum staup af rauðvíni og
söngur við undirleik Sigurðar Erlendssonar.
Biskupstungur hafa að geyma marga listamenn bæði
eldri og yngri.
Ekki má gleyma fimleikunum. Þangað mætir fólk á
hverjumjmðjudegi í hvaða veðri sem er, það er svo
gaman. A meðan beðið er eftir Helga Kjartanssyni,
kennara, er rætt af miklum móð um allt milli himins
og jarðar, allt frá pólitík niður í búskap, svo sem
hross í tamningu frá Guðjóni í Tjarnarkoti og Halla í
Einholti. Alltaf heyrist hæst í þeim sem eru af
Reykjaætt, en þeir eru þó nokkrir. Eftir leikfimina
fara svo þeir í heita pottinn sem löngun hafa til.
Nokkuð þykir bera á stórmennskubrjálæði hjá
þessum hópi sem stundar fimleikana, en það er bara
vegna þess að fólk yngist upp og verður ánægðara
með sig. Það lýsir sér best á því að formaður
félagsins, Sigurður á Heiði, hélt að hann væri
eitthvað að eldast og ætlaði að hætta, en hætti síðan
við að hætta, og hefur aldrei verið sprækari. Þetta á
ekki aðeins við um leikfimina heldur allt starfið
innan félagsins.
Svo er það vorferðalagið, sem er alveg frábært.
Farið er landshorna á milli, gist í þrjár nætur,
semsagt verið á ferð í fjóra daga alls. Sumir félags-
menn höfðu aldrei komið til Hólmavíkur, hvað þá
meira. Alltaf gerist eitthvað ævintýralegt og
skemmtilegt í hverri ferð. Svo er farið í leikhúsferð á
hverju ári, alltaf gaman, oft brosað að ýmsu. Enda
segir Einar Ben. „Eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt.“
Síðan er þorrablótið, alltaf vel heppnað með alls
konar skemmtiatriðum og þorramat að hætti Jóns og
Fríðu og hennar fólks. Þá eru heimboðin á hverju ári
í Úthlíð, á Klettinn og nú síðast að Flúðum. Þá var
„Brúin“ með stórum staf opnuð. Jón í Koti orti
auðvitað vísu um það:
Nú má sigla blíðan byr,
byggðin þrædd á festi.
Yfir fljótið áður fyr,
öslaði ég á hesti.
Síðasta haust var haldin mjög góð árshátíð, sem
vonandi verður oftar.
Á þessari upptalningu má sjá að það ríkir engin
lognmolla í þessum ágæta félagsskap. Hér með er
komið á framfæri hvatningu til fólks á besta aldri,
þ.e. 60 ára og eldri, að ganga í félagið. Félagsgjaldið
er eiginlega hlægilega lágt. Svo erum við auðvitað
öll sammála um það að Island er besta og fallegasta
land í heimi með allar sínar auðlindir. Við megum
bara ekki láta gleypa okkur í einum bita af
stórveldunum í austri, þá er hættan sú að við missum
okkar dýrmæta sjálfstæði!
Guðrún Guðmundsdóttir.
29 Litli-Bergþór