Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1998, Page 15
aðsent - aðsent - aðsent - aðsent - aðsent - aðsent - aðsent
Kæra Ættfræðifélag.
Hvað úr hverju fer ég að öfúnda Asmund Una yfír
öllu plássinu sem hann fær í fréttabréfinu! Síðastlið-
inn vetur sendi ég fyrirspum í bréfið og fékk hana
ekki birta (varð reyndar dulítið fúl um stundarsakir).
Loks sá ég að það þýddi lítið að sitja með hundshaus
öllu lengur! Úr því Ásmundur Uni fær hverja
blaðsíðuna á fætur annari undir sína forvitni hví
skyldi ég þá ekki fá nokkra sentimetra? Reyni því
aftur.
Afasystir mín Guðlaug Jónsdóttir Thordarson
(fædd í Mosfellssókn árið 1879 og ólst upp að
Reynisvatni sömu sókn) flutti til Kanada árið 1909
með manni sínum Guðmundi Þórðarsyni
(Thordarson). Nú höfum við ættingjarnir alveg týnt
þessum ættaranga og hér með bið ég um hjálp ykkar
til þess að endurheimta hann.
Ég hef undir höndum ljósrit úr ættartölu Þorsteins
Borgfjörð (1874-?) sem gerð var árið 1932 með
viðauka frá Solveigu Joan Borgfjörð dags. 16. okt.,
1981 í Winnipeg. Þar segir í viðauka: "Guðmundur
Þórðarson. Fyrri kona (yfirstrikað en ekkert nafn):
Böm þeirra: 1. Kjartan, deceased (dáinn). 2. Otto.
EarFalls. Ont. Canada. 3. Þór, deceased. 4. Svava. 5.
Gunnar, ? 6. Viggo, deceased."
Fyrsta bam Guðlaugar og Guðmundar var Ottó
Marinó (1905-?) og það næsta var Svava Marín
(1907-1985). Þau hjónin skildu Svövu Marín eftir
hér á landi þegar þau fluttu til Kanada en tóku Ottó
með sér. Allt fram til ársins 1990 hafði fjölskyldan
hér samband við Amy Thordarson (1909-?), konu
Ottós en hún var af sænskum ættum. Líklega er Amy
dáin því bréfúm héðan hefur ekki verið svarað eftir
1990. Þau hjónin áttu a.m.k. einn son (fósturson?)
Brian Thordarson en sá á tvo syni Scott (tannlæknir
frá háskólanum í Winnipeg 1988-90?) og Mark, en
kona Brians heitir Ina.
Ég hef heimilisfang og símanúmer Brians Thord-
arson í Kanada (283 Algoma St N Thunder bay,
Ontario, T7A5A7. Tel. 001-807-346-8402) en svo
virðist sem hann hafi ekki áhuga á því að svara
bréfum mínum og ykkur að segja hef ég ekki geð í
mér til þess að hringja í hann eftir öll bréfaskrifm!
Samkvæmt viðauka við ættartölu Þorsteins Borg-
fj örð var Guðmundur Thordarson sonur Þórðar Jóns-
sonar (1850-?) og Vigdísar Þorsteinsdóttur (1850-?)
Felixsonar. Þórður var frá Syðstu-Fossum, Andakíl,
Borgarfírði. Fyrri kona var áðumefnd Vigdís en sú
seinni hét Ásta.
Ég hef einnig sent fyrirspumir um þetta fólk til
The Icelandic Canadian club of Toronto, en ekkert
svar fengið til þessa.
Örlítil bón að auki: Þekkir nokkur til bama og eða
niðja Eyjólfs Jónassonar (1794-1859) frá Gili, Svart-
árdal, Húnavatnssýslu (Fjárdráps-Eyjólfs) í Mos-
fellssveit. Eijólfureignaðista.m.k. 5 böm í Mosfells-
sveitinni á ámnum 1832-1841 (eftir að hann flúði
Húnavatnssýsluna tímabundið) en nokkur böm átti
hann fyrir í heimahögunum. Mig sárvantar sannanir
fyrir því að Fjárdráps-Eyjólfur hafi verið faðir Jóns
"Jónssonar" (1832-1894) í Mosfellssveit en móðir
Jóns var líklega Valgerður Erlendsdóttir (1798-?)
Bjamasonar á Minna-Mosfelli.
Kærar kveðjur með þakklæti fyrir fróðlegt og
skemmtilegt fréttabréf.
Sesselja Guðmundsdóttir
Urðarholti 5, Mosfellsbæ
sími: 566-8786
Bókagjafir:
Ættfræðifélaginu hafa borist margar og góðar bókagj afir á
síðastliðnu ári.
Stelpurnar á stöðinni, íslenskar talsimakonur. Gefandi:
Ásthildur G. Steinsen.
Rauðholtsætt í Ölfusi. Gefandi: Þóra Guðjónssen.
Póstsaga íslands. Gefandi: Þjóðsaga.
Krákustaðaætt. Gefandi: Þjóðsaga.
Verkfræðingatal. Gefandi: Þjóðsaga.
Saga Njarðvíkur. Gefandi: Þjóðsaga.
Vélstjóra- og vélfræðingatal. Gefandi: Þjóðsaga.
Vestfirskir slysadagar 1880-1940. Gefandi: Sögufélag
ísfirðinga.
Frá Aðalvík til Ameríku. Gefandi: Ólöf S. Bjömsdóttir.
Ættarbók Stígs Jónssonar og Jóhönnu Guðmundsdóttur.
Gefandi: Sigurbjartur Jóhannsson.
Ljósmæður á Islandi. Gefandi: Ragnhildur Óskarsdóttir.
Veteransoflcelandic descent world warll. Gefandi: Dóra
Sigurðsson í Kanada.
Eylenda I og II. Gefandi: Þorsteinn Jónsson.
Viðskipta- og hagfræðingatal I-III. Gefandi: Þjóðsaga.
Æviágrip Sigurveigar og Þorbergs á Litlulaugum. Gefandi:
Hrólfúr Ásvaldsson.
Niðjatal Sigríðar Sæunnar. Gefandi: Jarþrúður Péturs-
dóttir og Anna Guðrún Hafsteinsdóttir.
Samtök bókagerðarmanna í 100 ár 3. bindi. Gefandi:
Þjóðsaga.
Húsafellsætt. Gefandi: Mál og mynd.
Stjóm Ættfræðifélagsins þakkar höfðinglegar gjafir og
vinarhug í garð félagsins.
15