Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1998, Blaðsíða 17
Minning
Kristín Guðmundsdóttir frá Skiphyl.
Kristín Guðmundsdóttir lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 9. nóvember 1997. Hún var fædd á
Skiphyl í Hraunhreppi í Mýrarsýslu 19.des. 1916. Kristín ólst upp á Skiphyl hjá foreldrum
sínum. Hún stundaði nám í Héraðsskólanum í Reykholti í tvo vetur 1935-1937. Kristín vann
ýmis störf í sveit og borg, en lengst við saumaskap í verkssmiðjum í Reykjavík og var þar lengi
verkstjóri. Þegar hún lét af störfum um 1993 hafði hún unnið við saumaskap í um 50 ár.
Kristín var rnikil félagsmálamanneskja, hún starfaði í Borgfirðingafélaginu í Reykjavík,
sérstaklega kvennadeildinni. Hún var í Sögufélagi Borgarijarðar og aðstoðaði við æviskrár
Borgfirðinga. Hún starfaði einnig í Kvenfélagi Hallgrímssóknar. Kristín hafði mikinn áhuga á
íslenskum fróðleik, var búin að vera lengi í Ættfræðifélaginu. Hún varí stjóm Ættfræðifélagsins
1988-1995 lengst afritari. Þegar félagið fór að vinna í Manntalinu 1910 kom Kristín þar til starfa
og var með okkur í allri yfirferðinni, þetta var gmnnvinna og kornu oft fyrir sérkennileg orð sem
við ekki skildum, en Kristín gat oftast leyst úr því, hún var fróð um það sem eldra var.
Kristín var hreinskilin kona, fróð og skemmtileg, alin upp í íslenskri menningu og stóð fostum
fótum á íslenskri jörð.
Hinn rammi safi rennur frjáis ígegn
um rót, er stóð í sinni moldu kyr,
en öðrum fmnst sig vanta vaxtarmegn,
þótt vorið íljúgi í lofti hraðan byr.
(Jón Helgason, prófessor).
Ættfræðifélagið þakkar Kristínu vel unnin störf. Við sendum systram hennar og frændfólki
samúðarkveðjur.
Við hjónin þökkum henni vináttu.
Hólmfríður Gísladóttir.
J
Og meira úr penna Ásmundar:
Undanfamar vikur hef ég verið að velta eftirfar-
andi fyrir mér, og auðvitað engin svör fengið.
Getur það verið rétt?..Að Hjörtur sá er bjó
í Álfatröðum í Hörðudal Ögmundsson 1926 og til
æviloka, fæddur 27. apríl 1893, dáinn 28. janúar
1985, giftur Kristínu Helgadóttur frá Ketilsstöðum í
Hörðudal, (Dalamenn 1. bindi, bls. 20), sé samu
Hjörtur Ögmundsson, sem bjó í Öxney og átti fyrir
konu Ragnheiði Vigfúsdóttur, dóttur Vigfúsar
Reykdals Eiríkssonar prests í Stafholti í
Staflioltstungum, og konu hans Sigríðar Jónsdóttur.
Mikið yrði ég þakklátur hverjum þeim sem getur
leitt mig í sannleikann í þessu máli, auðvitað á síðum
Fréttabréfsins.
Það er raunar vitað að Hjörtur í Álfatröðum bjó í
Fremri-Vífilsdal tvisvar og í Stykkishólmi auk Álfa-
traða, sem var síðast í ábúðarröðinni, segir í
Dalamönnum
Nú er stóra spumingin:
EfHjörtur í Álfatröðum og Hjörtur í Öxney vora
einn og sami maðurinn, þá hefur hann verið tvígiftur.
Hvaða upplýsingar er þá fyrir hendi um konu hans
Ragnheiði og hugsanleg böm?
Nú bíð ég í ofvæni eftir svari frá félögum mínum
í Ættfræðifélaginu, sem ég veit að bregðast munu við
all snarlega, og veita félaga sínum úrlausn mála
sinna.
Verið öll blessuð og sæl.
Ásmundur U. Guðmundsson
Suðurgötu 124, 300 Akranesi
17