Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1998, Side 20
- aðsent - aðsent - aðsent - aðsent - aðsent - aðsent - aðsent -
Úr Keflavík
barst eftirfarandi bréf skrifað 23. nóvember 1997:
Ágætu ættfræðiáhugamenn!
Nú langar mig að segja ykkur frá vandræðum
mínum og biðja ykkur urn hjálp. Svo er mál með
vexti, að ein langalangamma mín hefur reynst mér
erfið. Hún hét Anna Christiansdóttir Olsen og bjó
með manni sínum, Ólafi Jónssyni, í Flatey við manntal
1845. Þar er hún reyndar rangnefnd og kölluð Anna
Ólafsdóttir.
Anna var fósturbam Ebenezers Þorsteinssonar
sýslumanns í Hjarðardal í Önundarfirði og Guðrúnar
Þórðardóttur, konu hans. Hún fermist frá þeim 1822
í Holti í Önundarfirði og er þá sögð fædd 1808 í
Eyrarsókn í Skutulsfirði. Foreldra hennar er ekki
getið. Nú hefst kirkjubók Eyrarsóknar ekki fyrr en
1816 og því fínnast foreldrar hennar ekki þar. Eg hef
ekki getað fundið hvenær hún fór að Hjarðardal.
Hennar er ekki getið í bókinni Önfirðingar.
Það er merkilegt að Önnu og Ólafs er ekki getið í
Eylendu. Samt bjuggu þau í Flatey um alllanga hríð
og þar fæddust þeim eftirtalin börn: Jakob eldri
(1843) (hann er ekki nefndur í manntali 1845 og mun
því að líkindum hafa dáið ungur), Guðrún (f. 1845
eftir manntal), Jakob yngri (1847) og Ebenezer (1851).
Þetta gefur til kynna búsetu í Flatey um nálægt því
heilan áratug, og er því skrýtið að þeirra skuli ekki
getið í Eylendu. Þau áttu tvö eldri böm, sem koma
fram í manntali 1845, voru það Hannes Chr. (um
1837) og Óli Kristján eldri (1839). Þeir bræður eru
fæddir í Nesþingum (Fróðársókn/Ingjaldshólssókn).
Þar fæddust einnig Óli Kri stj án yngri (1842) og Ólína
Kristín (1840), en þeirra er ekki getið í manntalinu
1845. Ólafur og Anna bjuggu í tómthúsi 12 í Flatey og
var Ólafur beykir og þilskipsformaður. Ekki hef ég
enn fundið hvenær Anna dó, en 1867 fæðist Ólafi
Jónssyni og seinni konu hans, Guðrúnu Helgadóttur,
sem bjuggu í Hagakoti í Ögurhreppi, sonurinn Jón.
Hann bjó síðar í Flatey og byggði þar að minnsta kosti
tvö hús, enda er hans getið í Eylendu. Að líkindum er
Anna dáin fyrir 1865, en það er bara ágiskun mín.
Fyrir stuttu var ég svo heppinn að komast í
svokallaðar Mormónaskrár. Leitaði ég í þeim að
Ólafí og Önnu og fann þau nefnd við fæðingu sex
yngstu bamanna. Einnig skoðaði ég alla Olsena í
þeirri von að fínna foreldra hennar. Skemmst er frá
því að segja að í Eyrarsókn í Skutulsfírði er enginn
slíkur. Það getur hugsanlega stafað af því að
kirkjubókin er ekki til fyrr en 1816. Hins vegar fann
ég hjón í Hrafnagilssókn í Eyjafírði, sem hétu Chris-
tian Olsen og Guðrún Jónsdóttir. Þau giftust þar árið
1802. Þeirra er getið við fæðingu sona sinna tveggja,
sembáðirhétuJakob. Sáeldrifæddist 1802,skömmu
fyrir giftingu foreldra sinna, en sá yngri fæddist
1807. Meira veit ég ekki um þau.
Nú gat ég ekki varist þeirri tilgátu að hér væm
foreldrar Önnu. Til þess bendir allavega nafnið Chris-
tian Olsen, einnig sú staðreynd að þessi hjón áttu tvo
Jakoba eins og Anna og svo það að Anna lét heita
Guðrún (þó að það geti að vísu verið eftir fósturmóður
hennar). Hins vegar verður þá að fínna svör við
spumingum sem vakna ef maður gefur sér að þetta
séu réttir foreldrar:
1. Hvemig stendur á því að þau (eða allavega
Guðrún) fara vestur í Eyrarsókn í Skutulsfirði?
2. Hvers vegna fór Anna í fóstur? Dóu foreldrar
hennar, annað eða bæði? Skildu þau?
3. Hvers vegna fer hún í fóstur til Ebenezers
sýslumanns?
Það veit ég um Ebenezer að um tíma (1801 -
1802) var hann aðstoðarmaður Jóns Jakobssonar,
sýslumanns á Espihóli. Gæti hann þá hafa kynnst
þeim Christian og Önnu, sem hafa verið á svipuðum
aldri og hann eða lítið eitt yngri.
Eins og sjá má er hér mikið um getgátur, en lítið
fast í hendi. Nú vona ég að einhverjir fróðir lesendur
geti sagt mér eitthvað meira um hjónin Christian og
Guðrúnu, sem geti hjálpað mér að leysa gátuna um
það hvort þau hafí verið foreldrar Önnu Olsen í
tómthúsi 12 í Flatey.
Til gamans fyrir einhverja fylgir hér ættrakning
frá Önnu og Ólafí til mín:
1. Anna ChristiansdóttirOlsen og Ólafur Jónsson
í Flatey (bæði f. 1808)
2. Óli Kristján Ólafsson eldri, (f. 1839),
vinnumaður á Skarði í Ögursókn og víðar
3. Ólína Kristín Óladóttir (f. 1882 á Skarði í
Ögursókn)
4. Þorgerður Magnúsdóttir f. 1925 í Hattardals-
koti í Álftafírði
5. Magnús Ó. Ingvarsson f. 1949 í Reykjavík
Með bestu kveðju,
Magnús Ó. Ingvarsson
20