Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1998, Qupperneq 21
-aðsent-aðsent-aðsent-aðsent-aðsent - aðsent - aðsent -
Á karfaveiðum
í Rósagarðinum
nóvember 1997
Mikinn fróðleik er ætíð að fínna í fréttabréfínu og
er alltafgaman að lesa það. Með það í huga sendi ég
hér nokkrar fyrirspurnir til félaga minna í
Ættfræðifélaginu. Það varðar forfeður mína, en þeir
eru margir úr Staðarsveit eg einnig víðar á Snæfells-
nesi. Vonast ég til að einhver hafi eitthvað í poka-
horni sínu til að miðla til mín.
Langalangalangafi og amma mín voru Ámi Ól-
afsson og Margrét Gísladóttir, hjón á Bjamarfossi í
Staðarsveit, frá því um 1765 - 1806. Þau vom fædd
um 1741, en ég veit ekki hvar, Árni er dáinn 1806 á
Bjamarfossi, en Margrét er dáin 1819 í Oddsbúð á
Búðum. Ég hef verið að skrá niðja þeirra urn
nokkum tíma. Veit einhverum forfeður þeirra, fæð-
ingardaga - og stað?
Sonur Áma og Margrétar var Gísli Ámason f.
1785, bóndi í Hraunhöfn í Staðarsveit. Kona hans
var Ragnhildur Jónsdóttir f. 1800 í Breiðuvík, dóttir
Herdísar Þorgeirsdóttur fædd um 1762 og Jóns
Péturssonar stórbónda í Ólafsvík (Saga Búða og
Hraunhafnar). Herdís var dóttir Þorgeirs Jónssonar
bónda í Öxl í Breiðuvík. Veit einhver um móður
Herdísar, forfeður hennar, fæðingardag og dánardag?
Veit einhver um Jón Pétursson, forfeður hans,
fæðingardag og dánardag?
Ámi fæddur um 1811, Andrésson formaður á
Hellissandi, sá sem varð bráðkvaddur í báti á
Breiðafirði og nokkrir ungir menn komust við það í
sjávarháska (Breiðfirskir sjómenn). FaðirÁmavar
Andrés fæddur um 1784 á Völlum, Jónsson, en hann
var meðhjálpari í Langhryggju (1834) í Rifi á Snæ-
fellsnesi. ímanntali 1801 erAndrésíFróðársóknhjá
afa sínum og ömmu, Jóni Steindórssyni og Guðrúnu
Skúladóttur, sagður dóttursonur þeirra. Kona
Andrésar var Guðrún Guðbrandsdóttir fædd um 1788
á Fróðá. Veit einhver um foreldra hans og forfeður,
einnig um fæðingardag og dánardag?
Guðbjörg Gilsdóttir fædd um 1810 í Ingjaldssókn,
býr á Gröf í Staðarstaðasókn 1845 og er kominn í
Lónsbæ 1855 og er húskona þar og niðursetningur í
Gröf í Bervík 1880. Hún var dóttir Gils Gilssonar
fæddur 1781 í Stafholtssókn, bóndi áÖndverðanesi.
Seinni kona Gils var Oddný Magnúsdóttir fædd um
1798 húsmóðir í Bjömsbúð í Ólafsvík. Veit einhver
hver móðir Guðbjargar var og forfeður vom?
Ögmundur Jóhannesson sonur Guðbjargar og
Maríu Ámadóttir, Andréssonar vora sambýlisfólk í
Rifi og áttu böm saman. Eitt þeiiTa var Jóhanna
Ögmundsdóttir en hún mun hafa flutt til Færeyja og
átt afkomendur þar og í Danmörku. Veit einhver
deili á þeim, eða hvert best væri að snúa sér með þetta
í Færeyjum?
Með Kveðju
Þórður Ámason, Borgarholtsbraut 63
200 Kópavogi
Kjamaætt
í októberhefti Fréttabréfsins er spurt hvort
Kjamaætt úr Eyjafirði sé í vinnslu. Ekki veit ég það,
en hitt veit ég, að margir, þeirra á meðal ég, hafa
safnað efni um þessa fj ölmennu og raunar þekktu ætt.
Má þar nefna ÓÞK (trúlega Ólaf Þ. Kristjánsson),
sem gerði niðjaskrá Þórðar og Bjargar á Kjama 1943
“ að langmestu leyti eftir safni þeirra Þorvalds Kol-
beins ogHalldórsStefánssonar”.HjálmarVilhjálms-
son, ráðuneytisstjóri, og Vilhjálmur Ámason, hrl.,
auglýstu í Morgunblaðinu um miðjan 8. áratuginn
eftir upplýsingum um niðja þeirra Kjamahjóna.
Hjálmar flokkaði ágætlega þær upplýsingar, sem
bárast, en vann ekki frekar úr þeim. Freymóður
Jóhannesson er nefndur í fyrirspuminni í Fréttabréf-
inu, en safn hans hef ég ekki séð. Aðra mætti nefna
til sögunnar, en ég tel ekki rétt að gera það að þeim
forspurðum. Þó get ég ekki látið ónefndanjarðfræð-
ing í Langley, BC, Kanada, John Herbert Arnason,
sem hefur verið óþreytandi að ná saman upplýsing-
um um skyldfólkið vestan hafs.
Enda þótt safnið mitt sé orðið býsna stórt, þori ég
ekki fyrir mitt litla líf að gefa það út, bæði er það
götótt og eins eru þar áreiðanlega margar villur, sem
ég get ekki borið ábyrgð á, og engar era í því
myndimar. Nafnaskráin ermeð 6500 - 7000nöfnum,
og er þó sleppt úr þeim, sem ólíklegt er, að leitað sé
að, svo sem börn, sem dóu ung og ungmenni, sem
lítið er um segja annað en fæðingardagur þeirra.
Jón Steingrímsson
Laugateig 15
105 Reykjavík
21