Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2006, Blaðsíða 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2006
íslensks bókasafns í Spanish Fork. Hann tók sér aðra
konu vestra, Guðnýju Erasmusdóttur sem fyrr er
nefnd. Magnús fór í trúboðsferð til Islands árið 1873
og skírði m.a. Jón bróður sinn. Magnús lést 18.
janúar 1905 í Spanish Fork og Þuríður lést 1. febrúar
1891.
Jón bróðir Magnúsar var fæddur 20. október
1817. Hann bjó lengst á Oddsstöðum í Vestmanna-
eyjum, var fyrst kvæntur Guðríði Þorleifsdóttur frá
Hólmum og síðar Guðbjörgu Jónsdóttur, en var orð-
inn ekkill í annað sinn er hann skírðist til mormóna-
trúar 1. maí 1874. Jón flutti til Spanish Fork 1876 og
þar lést hann á götu úti af hjartaslagi þann 22. apríl
1887, eftir að hafa setið heila nótt á tali við Jón son
sinn sem daginn áður hafði komið ásamt fjölskyldu
sinni til bæjarins eftir langa för heiman frá Islandi.
Fjölskylda Einars Jónssonar
Einar Jónsson fæddist 15. ágúst 1839 á Sámsstöðum,
sonur Jóns Halldórssonar bónda þar og konu hans
Guðrúnar Jónsdóttur. Hann kvæntist Guðrúnu Jóns-
dóttur sem einnig var Rangæingur, fædd 24. júlí
1849, dóttir Jóns Jónssonar og Sigríðar Brynjólfs-
dóttur, ógiftra vinnuhjúa í Stórumörk.
Einar og Guðrún bjuggu í Vestmannaeyjum og var
Einar verslunarþjónn. Þau hjón skírðust til
mormónatrúar 1874, en greinilegt er að húsmóðirin
hefur um skeið verið nokkuð treg til þess að ganga
hinum nýju trúarbrögðum á hönd. Þegar Jóhanna
dóttir þeirra hjóna var færð til skírnar í júlí 1874 ritar
presturinn sr. Brynjólfur Jónsson þessa klausu í
kirkjubókina. „Hér við athugist að faðirinn sem
kveðst vera Mormóni hefur látið það eftir konu sinni,
sem er Lútherstrúar að barn þetta mætti skírast til að
uppfræðast í trú móðurinnar.“ Og aftur ritar hann
athugasemd við skírn dótturinnar Guðrúnar í október
1875: „Faðirinn hefur gefið nafn þessu barni, án
skímar, en tjáð að sér stæði á sama hvort það væri
skírt eður ei.“ Jóhanna var fædd 2. júlí 1874. Guðrún
var fædd 5. október 1875. Þriðja dóttirin var
Ágústína, fædd 9. ágúst 1878. Við skím hennar er
engin athugasemd gerð, þess aðeins getið að foreldr-
amir séu mormónar.
Öll fjölskyldan flutti til Utah 1880. í New York, á
leiðinni til fyrirheitna landsins, eignuðust Einar og
Guðrún fjórða bamið, son að nafni Nikulás, en af
honum hef ég engar fregnir. Einar dó í trúboðsferð á
íslandi 1889 og Guðrún ekkja hans giftist skömmu
síðar Þórði Þórðarsyni sem nýfluttur var frá Eyjum
til Utah. Þórður dó í Spanish Fork 10. september
1902, 36 ára gamall, Guðrún átti áfram heima í
Spanish Fork og lést þar 8. maí 1931.
Um afdrif Jóhönnu dóttur hennar vestra er ekki
vitað, en Guðrún dó fjórtán ára gömul 2. nóvember
1889. Ágústína giftist Guðmundi syni Þorsteins
Jónssonar læknis í Eyjum. Þau bjuggu í Spanish
Fork þar sem Guðmundur vann við járnbrautimar.
Böm þeirra voru tvö.
Fjölskylda Eiríks frá Brúnum
Sá trúhneigði ferðalangur og prestaskelfir Eiríkur
Ólafsson frá Brúnum tók sig upp frá heimili sínu í
Mosfellssveit árið 1881 og flutti með konu, dóttur og
dóttursyni til Utah. Rúnveldur kona Eiríks dó í
Nebraska og ekki er ástæða til að rekja sögu Eiríks
hér.
Dóttir hans Ingveldur var fædd 9. ágúst 1851 í
Leirum undir Eyjafjöllum, en þar bjuggu þau Eiríkur
og Rúnveldur til 1853 er þau fluttu að Kaldrananesi
í Mýrdal. Eins og flestir aðrir í fjölskyldunni tók
Ingveldur mormónatrú árið 1881 og með sér vestur
um haf hafði hún ársgamlan son sinn og stórbóndans
Þorvaldar Bjömssonar á Eyri. Sonurinn hét Þorbjöm,
fæddur 1. maí 1880.
Vestra giftist Ingveldur Jóni Jónssyni úr Húna-
þingi, sem líklega hefur verið samferða Brúnafólki
vestur. Mikill aldursmunur var á þeim hjónum, Jón
var fæddur árið 1828. Þau Ingveldur bjuggu í
Spanish Fork og þar dó Jón 13. júlí 1901. Ingveldur
giftist aftur manni að nafni Jones. Hún dó 30. mars
1930 í Spanish Fork. Þorbjöm sonur Ingveldar átti
konu er Ada Lena Dixon hét. Hann lést 25.
september 1965 í Payson í Utah.
Árið 1856 fluttu Eiríkur og Rúnveldur að Brúnum
og 13. desember það ár fæddist þeim sonurinn
Ólafur. Hann flutti til Utah 1885 og kvæntist þar
Sigurbjörgu Einarsdóttur frá Nýborg í Eyjum sem
vestur kom árið 1889. Ólafur var málari og skyldfólk
hans segir hann listamann. Þau Sigurbjörg fluttu til
Blaine í Washingtonfylki og dánardagur er óþekktur.
Sveinn sonur Eiríks og Rúnveldar var fæddur 15.
desember 1856. Hann skírðist til trúarinnar 26. júlí
1885 og hélt stuttu síðar til Spanish Fork þar sem
hann átti heima um skeið en seinna flutti hann til
Indepence, Missouri. Sveinn var listfengur eins og
margir ættmenn hans og stundaði útskurð og skreyt-
ingar. Um 1920 hættu bréf að berast frá honum til
systur hans og ekki er vitað til að hann hafi gifst. Öll
fjölskylda Eiríks á Brúnum yfirgaf kirkju mormóna
eftir nokkra dvöl innan hennar.
Fjölskylda Guðmundar Einarssonar
Guðmundur Einarsson fæddist 31. október 1848 í
Hólminum í Austur-Landeyjum, sonur Einars Jóns-
sonar bónda þar og konu hans Sigríðar Árnadóttur.
Hálfbróðir Guðmundar sammæðra var Þórður
Diðriksson mormónabiskup, einn þekktasti foringi
íslenskra mormóna. Guðmundur var giftur Auð-
björgu Bjamadóttur af Suðumesjum og bjuggu þau í
Sjólyst í Vestmannaeyjum. Þau skírðust til
mormónatrúar 1881 og fluttu til Utah ári síðar með
bömum sínum fimm.
Guðmundur dó þann 23. ágúst 1882, aðeins fám
dögum eftir komuna til Utah. Auðbjörg ekkja hans
giftist aftur ekkjumanninum Hjálmari Björnssyni,
skósmið úr Húnaþingi og bjuggu þau í Spanish Fork.
Auðbjörg dó 15. júní 1921.
http://www.vortex.is/aett
7
aett@vortex.is