Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2006, Síða 20

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2006, Síða 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2006 raða saman. Það þýðir að nú þarf að finna sögu fólks- ins sem við höfum rakið ættir frá og afkomenda þeirra. Við þurfum að skrifa ættarsögur en það eru kollegar okkar á Norðurlöndum farnir að gera fyrir mörgum árunr. Þar hafa verið gefin út rit um persónu- sögu sem heita Personhistorisk leksikon eða Personal- historisk tidskrift eða eitthvað í þá áttina. Þetta eru rit um ættir, ættarhöfðingja eða bara einstaklinga sem eitthvað er vitað um. Slíkt rit höfum við ekki hér á landi nú en höfum þó gefið út rit í svipuðum dúr svo sem Islenskar æviskrár, Samtíðarmenn, Islenska samtíðarmenn og fleiri. Það rná segja líka að stéttatöl séu í ætt við þessi skandinavísku rit. Það eru samt enn til heimildir um marga íslendinga í gegn um aldimar sem aldrei hefur verið skrifað um. Það hefur ekki ver- ið nógu merkilegt fólk í hugum margra, en nú er öldin önnur og venjulegt almúgafólk á sér ekki ómerkilegri sögu en hinir meira áberandi í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Það er kominn tími á slika söguritun hér bæði fyrir sagnfræðinga og leikmenn. Að lokum vil ég þakka samstarfsmönnum mínum í stjórn frábært samstarf og þolinmæði á árinu og býð þau sem endurkjörin voru til stjórnarstarfa hér í kvöld velkomin í stjómina þegar þar að kemur í dagskránni hér á eftir. Eiríkur Þ. Einarsson. Ættfræðifélagið á safnanótt Guðfinna Ragnarsdóttir ritstjóri Fréttabréfs Ætt- fræðifélagsins flutti erindi á Borgarskjalasafninu á safnanótt Reykjavíkurborgar nýlega. Guðfinna fjall- aði um „Ættfræðinnar ýmsu hliðar“ og undirstrikaði að nú þegar Islendingabók er aðgengileg öllum og alls kyns ættfræðiforrit hjálpa okkur við að halda utan um, rekja og varðveita ættrakningamar, þá sé tími til korninn fyrir okkur að setja kjöt á beinin og skrá persónusöguna. Guðfinna hefur lengi leitast við að víkka ættfræðihugtakið og undirstrikað hinar mörgu hliðar ættfræðinnar. Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur og var vegna fjölda áskoma endurtekinn viku síðar. Guðfinna kynnti einnig Ættfræðifélagið, fundi þess, útgáfustarfsemi og Opið hús. Guðfinna setti einnig upp ættfræðisýningu á Borgarskjala- safninu með munum og myndum, ættargripum, skjölum og bréfum auk sýnishomum ótal aðferða við að rekja ættir. Má þar nefna ættrakningar í karllegg og kvenlegg og eftir búsetu og nöfnum. Sýningin var opin í fjórar vikur. Hér fer á eftir stuttur útdráttur úr erindi Guðfinnu, en þar undirstrikaði hún ábyrgð hvers og eins, „þar sem við erum öll hlekkir í langri keðju kynslóðanna og þegar einn hlekkur slitnar eða bregst glatast svo margt“: „Fyrir mér hefur vakað tvennt í mínu ættfræði- grúski, í fyrsta lagi að safna saman öllum þeim ættarfróðleik sem ég kemst yfir varðandi ættirnar mínar og í öðru lagi að bera þá vitneskju áfram á ýmsu formi til næstu kynslóða, m.a. með því að vekja áhuga ættmenna minna á sögu okkar og upp- runa. Þetta er verðugt verkefni sem mér þykir afar vænt um. Ættfræðin er eins og orðið ber með sér allur fróðleikur um ættina; sögur og sagnir, einkenni bæði til munns og handa, útlit og lundarfar, hæfileikar og gáfur, sjúkdómar, veikleikar og styrkur, fróðleikur um búsetu og líf forfeðranna, ættargripir, myndir, störf, áhugamál, nöfn og fleira. Já, ættfræðin á sér sannarlega margar hliðar og okkur ber að leggja rækt við þær allar. Safna fróðleik og halda honum til haga, varðveita gamlar sögur og sagnir, ljóð og lausavísur. Við skulum muna að fara mjúkum höndum um gamla ættargripi og skrá sögu þeirra. Merkja og skrá gamlar nryndir og geyrna skjöl, dagbækur, kvittanir og minnismiða sem segja sögu kynslóðanna. Nú þegar svo auðvelt er orðið að halda utan um ættrakn- ingamar í alls kyns forritum er næsta skref að fylla í eyðumar og ljá forfeðrunum líf með því að setja þá í samhengi og skrá sögu þeirra eins vel og okkur er unnt. Því öll erum við partur af þeim og saga þeirra saga okkar. Það eru mikil auðæfi að eiga sér traustar rætur, að þekkja uppruna sinn, finna nið aldanna, heyra sög- una hvísla úr hverjum hól, að vera hlekkur í langri keðju þeirra kynslóða sem byggt hafa þetta land. Að finna fortíðina í nútíðinni, í fólkinu, náttúrunni, sögunni. Og ekki síst að færa fortíðina og nútíðina til framtíðarinnar. Gleymum ekki að við getum oft sagt barnabörnunum okkar frá öfum okkar og ömmum, jafnvel langöfum og ömmum og spannað þannig 5-6 kynslóðir eða hátt í 200 ár. Og það er ekki svo lítið þegar við hugsum til þess að við höfum aðeins búið hér í rúm 1100 ár. Hér hríslast rótarþræðir okkar um flóa og firði, fjöll og dali. Og öll berum við ábyrgð á að ekkert glatist sem vert er að varðveita, öll eigurn við okkar ætt, okkar sögu. Þekkingin veitir okkur ekki bara styrk og samkend, hún veitir okkur líka innsýn í lífið sjálft og gerir okkur hæfari til þess að skilja okkur sjálf og aðra um leið og hún sýnir okkur margbreyti- leik lífsins. Það er hverjum manni styrkur að finna trausta rót, að vera grein á gömlum en þó síungum meiði og finna hlýjan blæ löngu liðinna tíma strjúka vangann.“ http://www.vortex.is/aett 20 aett@vortex.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.