Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Síða 2
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2008
FRETTABREF
ÆÉTTFRÆÐIFÉLAGSINS
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
© 588-2450
aett@aett.is
Heimasíða:
http://www.ætt.is
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
© 568-1153
gudfragn@mr.is
Ólafur H. Óskarsson
© 553-0871
oho@internet.is
Ragnar Böðvarsson
© 482-3728
holholt@eyjar.is
Umsjónarmaður
Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4, 105 Reykjavík
© 568-1153
gudfragn@mr.is
Ábyrgðarmaður:
Anna Guðrún Hafsteinsdóttir
formaður Ættfræðifélagsins
annagunnah@simnet.is
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Svar við fyrirspurn í Fréttabréfi Ættfræði-
félagsins, 2. tbl. mars 2008:
Rodger Shaver spyr um langafa sinn Halldór Halldórsson f. 30. ágúst
1861 á íslandi. Halldór Kristinn Halldórsson var fæddur 30. ágúst 1861 á
Hraunhálsi í Helgafellssveit, Snæfellsnessýslu. Foreldrar hans voru: Hall-
dór Kristjánsson f. 6. des 1820 á Leyningi í Eyjafirði, dó 3. maí 1886 í
Bjarnarhöfn í Helgafellssveit, Snæf. og Þórunn Jónsdóttir f. 3. aprfl 1820
í Lögmannshlíð í Eyjafirði, dó 17. mars 1904 á Þingvöllum í Helgafells-
sveit.
Foreldrar Halldórs voru Kristján Hallgrímsson meðhjálpari og Þuríður
Halldórsdóttir búandi hjón á Leyningi. Foreldrar Þórunnar voru Jón Jóns-
son hreppsstjóri og Þórey Stefánsdóttir búandi hjón í Lögmannshlíð. For-
eldrar Jóns Jónssonar hreppsstjóra voru Jón Jónsson og Guðrún Jónsdóttir
er bjuggu á Hlöðum í Glæsibæjarhreppi, Eyjafj. 1801.
Halldór Kristjánsson og Þórunn Jónsdóttir bjuggu á Munkaþverá í
Eyjafirði 1845 og eiga þá eina dóttur Kristjönu Þuríði f. um 1843. Þau eru
komin að Hraunhálsi um 1860 og búa þar fram yfir 1880.
Það sem ritstjóri finnur í íslendingabók um ættir Jórunnar Christólínu
Jónsdóttur er allt samhljóða Hjarðarfellsætt. Þórður Kárason gaf út Hjarð-
arfellsætt 1972. Hann fór til Kanada þegar hann var að vinna bókina og
hitti þar frændfólk sitt. Allt um bræður Vilborgar, Kristján og Halldór er
í Hjarðarfellsætt. Það eru ýmsar gloppur í Hjarðarfellsætt sem auðvelt er
að fylla og hef ég gert svolítið af því. Það má segja að mér renni blóðið
til skyldunnar.
Hólmfríður Gísladóttir
Nettengd með nýjar tölvur
í síðasta tölublaði auglýsti Ættfræðifélagið eftir tölvu. Sú auglýsing bar
ríkulegan árangur, því félagið hefur nú fengið tvær tölvur ásamt prentara.
Það var Klæðning ehf sem gaf félaginu aðra tölvuna, og færir Ættfræði-
félagið Klæðningu ehf bestu þakkir fyrir. Hin var keypt á mjög svo sann-
gjörnu verði. Nú er félagið nettengt og fært í flestan sjó! Verið velkomin á
Opið hús og nýtið ykkur tölvurnar, ættfræðiforritin og bókasafnið.
Efni sem óskast
birt í blaðinu berist
umsjónarmanni á rafrœnu
formi (tölvupósturldisketta)
Prentun: Oddi
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 700
eintökum og sent öllurn
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 300 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
Munið félagsgjöldin!
Ættfræðifélagið þakkar öllum þeim sem hafa greitt
félagsgjöldin og minnir þá sem eiga eftir að greiða á
að gera það hið fyrsta.
Kynning á verkefni Þjóðskjalasafns
Islands um stafræna gerð manntala
Kynningin fer fram að Laugavegi 162, í Norðursal á 3. hæð, fimmtudaginn
16. október, kl. 20:00. Eiríkur G. Guðmundsson sviðsstjóri upplýsinga- og
útgáfusviðs og Benedikt Jónsson vefstjóri munu kynna verkefnið.
http://www.ætt.is
2
aett@aett.is