Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Page 7

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Page 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2008 Minning Indriði Indriðason ættfræðingur frá Ytrafjalli í Aðaldal f. 17. apríl 1908 d. 4. júli 2008 Með Indriða Indriðasyni er genginn einn af merk- ari ættfræðingum þessa lands. Indriði var heiðurs- félagi Ættfræðifélagsins, einn af stofnendum þess og formaður um skeið. Frá blautu barnsbeini og til hinstu stundar, á 100 ára ævi, var ættfræðin hans helsta áhugamál. Hann átti ekki langt að sækja þann áhuga, sonur Indriða Þórkelssonar bónda, skálds og ættfræðings á Ytra-Fjalli í Aðaldal, en það var hann sem lagði grunninn að Ættum Þingeyinga, því mikla riti, sem enn er verið að fullvinna og gefa út undir styrkri stjóm Brynjars Halldórssonar. Sjálfur helgaði Indriði Indriðason verkinu allar frístundir sínar áratugum saman. í 20-30 ár safnaði hann fróðleik í verkið og vann á Þjóðskjalasafninu dag hvem eftir vinnu og eyddi þar flestum laugardög- um og sumarfríum. Seinustu árin helgaði Indriði sig samantekt á Þingeyingum sem fluttu til Vesturheims. Áhuginn var ótrúlegur, minnið gífurlegt og þekking- in einstök. Með Indriða er lokið merkum kafla í sögu ættfræðinnar á Islandi. Hann var samtíða öðrum stór- mennum ættfræðinnar eins og Pétri Zophaníassyni, Guðna Jónssyni og Einari Bjarnasyni og saman áttu þeir Pétur hugmyndina að stofnun Ættfræðifélagsins. Indriði hugsaði stórt og fáir hafa lýst gildi ættfræð- innar betur en hann: „Ættfræðin, þekkingin á ættum okkar og uppmna, gerir okkur mun skyggnari á lífið sjálft. í ættfræðinni sjáum við kynslóðirnar renna fram hverja af annarri, skynjum lífsbaráttuna og hin kröppu kjör alþýðunnar, sorgina og gleðina. Við finnum að við erum öll hlekk- ir í langri keðju sem fléttast í samofið net ættanna. Ættfræðin gerir okkur víðsýnni, glöggskyggnari og umburðarlyndari. Ættfræðin gerir okkur einnig ríkari tilfinningalega og sýnir okkur að við erum öll hluti af sögunni og lífinu sjálfu. Um leið er ættfræðin spennandi eins og gestaþraut sem aldrei verður leyst til fulls. Stöðugt bíða óhnýttir endar sem enginn veit hvert leiða fyrr en við fikrum okkur eftir þeim á vit nýrra spurningamerkja. Ættfræðin heldur til haga fróðleik og þekkingu og tengir okkur sögunni, þjóð- inni og menningunni." Ættfræðifélagið þakkar Indriða Indriðasyni langa og gæfuríka samfylgd. Breytt fyrirkomulag Ættfræðifélagið mun í vetur breyta að nokkru starfsemi sinni. í stað félagsfundanna sem und- anfarna vetur hafa verið fremur illa sóttir, hyggst félagið standa fyrir ráðstefnum um ættfræði. Fyrsta ráðstefnan verður haldin laugardaginn 25. október. Hún verður haldin undir nafninu: Hin ómissandi ættfræði. Ráðstefnan verður haldin í samvinnu við Reykjavíkurakademíuna og Þjóð- skjalasafnið og verður haldin í húsnæði Reykja- víkurakademíunnar. (Sjá nánar um dagskrána á baksíðu.) OPIÐ HUS verður með svipuðu sniði og áður, en einu sinni í mánuði er stefnt að því að kynna ákveðin svæði eða sýslur. Þá verða til staðar sérfróðir menn sem aðstoða þá sem þess óska. Áfram verður heitt á könnunni og góðir félag- ar, bókasafnið, tölvan og ættfræðiforritin innan seilingar. Úr Vísnabók Káins Alls aumast Eitt er sem að mœðir mest mig í velgengninni, það er að eiga engan prest í œttartölu minni. Þegar Þ.B. kandídat svaf hjá mér Efmér skyldi andlœgt fœðast afkvœmi, um það vildi fólkið frœðast faðerni. Pað er ekki því að neita og því er ver, að sveitin öll og sýslan veit, þú svafst hjá mér. Sendandi Hólmfríður Gísladóttir http://www.ætt.is 7 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.