Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Blaðsíða 20

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2008, Blaðsíða 20
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2008 Guðfinna Ragnarsdóttir: Mörg er matarholan Síminn hringir um kvöldmatarleytið. Það er sam- kennari minn og vinur Kolbeinn Sæmundsson latínu- kennari sem er á línunni. Þú þarft að hjálpa mér, segir hann ákafur. Geturðu fundið út hver Dúa Filippus- dóttir var. Hún fæddist um 1910 og dó um 2000. Það er hjá mér frönsk kona, Claudine Sacquet-Panciroli, sem kynntist þessari Dúu og þótti svo undur vænt um hana. Sú franska er hér aðeins í nokkra daga og langar svo að leggja lítið blóm á leiði þessarar konu sem var henni svo góð þegar hún ung stúlka kynntist henni á Grandaveginum um 1970. Það var árið 1973 sem Claudin, þá rúmlega tvítug, kom af einskærri ævintýraþrá til Islands, en hafði þá lagt stund á landafræði og heillast af þessu norðlæga landi. Efnin voru heldur rýr og því fór hún að vinna í Bæjarútgerðinni. En ekki leið á löngu fyrr en hún kynntist afar elskulegri og skemmtilegri konu sem bjó andpænis fiskvinnslunni. Það var Dúa. Til Dúu var hún alltaf velkomin, þar fékk hún að borða og fara í bað, þar var henni alltaf tekið opnum örmum. Claudine kom nokkrar ferðir til Islands síðar og átti góðar stundir með Dúu, en þrátt fyrir ártuga tengsl og bréfaskriftir var aldrei annað nafn inni í myndinni en gælunafnið Dúa. Því var úr vöndu að ráða þegar Claudine ætlaði að vitja leiði þessarar vel- gjörðarkonu sinnar. Hún vissi að Dúa hafði mikil og íbúaskrár, símaskrár, Morgunblaðið, garöur.is... Já, það er mörg matarholan, það sannreyndi Kolbeinn Sæmundsson í leit sinni að Dúu Filippusdóttur. (Ljósmynd Guðfmna Ragnarsdóttir) sterk tengsl við Grindavík. Hún byrjaði því á að leita hennar þar en hafði ekki erindi sem erfiði. Prestur- inn var ungur og þekkti enga Dúu. Þá var að athuga Reykjavrk. Það var þá sem Kolbeinn vinur okkar hringdi til mín. Eftir mikla leit í mínu takmarkaða og götótta gagnasafni varð ég að gefast upp. Þó er Filippusar- nafnið ekki algengt. Annað sem sú franska Claudine vissi var að Dúa átti systur sem Dísa var kölluð og barnabarn sem Belinda hét. Ekki fleytti sú vitneskja okkur neitt á leið. Þá datt Kolbeini það snjallræði í hug að athuga gamlar götuskrár frá 1970-1975. Hann brá sér snarlega í Þjóðarbókhlöðuna og viti menn; hver bjó á Grandavegi 29 árið 1972 ef ekki Filippus Amundason, faðir Dúu! Filippus Ámundason járnsmíðameistara, fann ég í mínu gagnasafni, sagður fæddur 1877 á Bjólu í Ásahreppi Rangárvallasýslu, en á hann var aðeins einn sonur skráður svo ekki græddum við mikið á því. Sú franska mundi vel eftir gamla Filippusi sem þá var orðinn karlægur og bjó hjá Dúu dóttur sinni á Grandaveginum. Hún hafði meira að segja aðstoðað Dúu og þær systur við að hugsa um gamla manninn. En hvað gat Dúa heitið fullu nafni? Systirin Dísa hét líka eitthvað annað og meira. Samkvæmt Islend- ingabók hét móðir Filippusar Ragnheiður, en ekki reyndist Dúa vera stytting á því. Þá var það gardur.is sem var næstur á dag- skrá. Enginn Filippus í Fossvogskirkjugarði, enginn í Gufuneskirkjugarði. Þá var það „allir garðar“. Bingó! Filippus Ámundason var grafinn í Hólavalla- garði og dáinn 1975, þá 97 ára að aldri. Kolbeinn beið á línunni og eftir að ég hafði fundið leiðið á ágætu korti á gardur.is þaut hann ásamt þeirri frönsku út í Hólavallakirkjugarð. Það var farið að rökkva en fyrr en varði stóðu þau hjá leiði D 0016 andspænis steini sem á var letrað: Filippus Ámunda- son járnsmíðameistari f. 2. 8. 1877 d. 31. 1. 1975. Og hver var það sem lá við hliðina á föður sínum ef ekki Þuríður Filippusdóttir, alías Dúa, f. 21. 11. 1908 d. 21. 10.2000. Morguninn eftir stóð hin franska Claudine aftur við leiði Dúu sinnar og nú með rauðar rósir. Bestu þakkir, kæra Dúa. Merci, ma chére Dúa. En Kolbeinn lét ekki þar við sitja. Með dánar- daginn á hreinu var Morgunblaðið næst á dagskrá. Þjóðarbókhlaðan aftur. í minningargreinunum um Dúu gat ýmislegt að lesa, m.a. að hún hefði verið stoð og stytta frænku sinnar, Guðrúnar Helgadóttur rithöfundar og alþingismanns og hugsað um heimil- ið fyrir hana árum saman. Þar kom einnig fram nafn http://www.ætt.is 20 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.