Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Qupperneq 17

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2012, Qupperneq 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2012 til æviloka. Barn Sigríðar og Jóns var: Sigríður, f. 1777 eða 1778 á Þorbrandsstöðum, d. 19. mars 1839 í Blöndudalshólum í Blöndudal, húsfreyja í Brekkukoti íÞingi 1816, gift Jóni Bjarnasyni. Barnsfaðir: Sveinn Jónsson, f. um 1706 eða um 1713, d. 10. jan. 1784 í Finnstungu, bóndi í Finnstungu 1744 til æviloka. Óvíst er um foreldra hans, en hann var aðfluttur í Bólstaðarhlíðarhrepp og hafði að eigin sögn búið þar í sveit um 29 ára skeið árið 1771. (Dómab. Hún. 21. júní 1771). í Manntali á íslandi 1762 er hann sagð- ur 56 ára gamall, og ætti eftir því að vera fæddur um 1706, en í Kirkjubók Blöndudalshólaprestakalls er hann sagður 71 árs gamall við andlát, og ætti eft- ir því að vera fæddur um 1713. Sömuleiðis taldi hann sig sjálfur „að aldri 58 ára" árið 1771. (Dómab. Hún. 21. júní 1771). Sé byggt á eldri aldursákvörð- uninni, má láta sér til hugar koma, að Sveinn kunni að hafa verið barn það, sem Jón Sveinsson og Vilborg Pétursdóttir áttu saman í lausaleik í Húnavatnssýslu 1705 eða 1706, væntanlega í Auðkúluprestakalli, en sé byggt á yngri aldursákvörðuninni, má láta sér til hugar koma, að Sveinn kunni að hafa verið barn það, sem Jón Geirmundsson og Helga Oddsdóttir áttu saman í hórdómi í Húnavatnssýslu 1713 eða 1714, væntanlega í Auðkúluprestakalli. Jafnvel má gera því skóna, að Sveinn kunni að hafa verið skilgetinn sonur Jóns Geirmundssonar, sem átti barn í lausa- leik með Þórdísi Sigurðardóttur í Svínavatnssókn 1708 eða 1709, og má hún vel hafa orðið kona hans. Þórdís bjó í Sólheimum í Svínavatnshreppi 1734- 1738, í Mýrarkoti á Laxárdal fremri 1738-1757 og á Mánaskál á Laxárdal fremri 1757-1763, en andaðist í Finnstungu 15. ágúst 1773. Þessar bollaleggingar um uppruna Sveins eru þó, eins og sjá má, helberar getgátur. Barn Sigríðar og Sveins var: Helga, f. 15. okt. 1780 í Finnstungu, d. 8. febr. 1860 í Litladal í Blönduhlíð, vinnukona á Valabjörgum á Skörðum 1801 og íLitlabæ í Blönduhlíð 1845, ógift, en átti son með Jóni Jónssyni bónda á Framnesi í Blönduhlíð. Að lokum er freistandi að velta því fyrir sér, hvort einhverjar vísbendingar megi finna til að renna stoðum undir þá tilgátu, að skyldleiki Halldóru Ljósrit úr Manntalsbók Húnavatnssýslu við árið 1781. Hér er efst á blaði fjallað um barneign Sveins Jónssonar og Sigríðar Símonsdóttur. Barn Sigríðar og Sveins var Helga, f. 15. okt. 1780 í Finnstungu, d. 8. febr. 1860 í Litladal í Blönduhlíð, vinnukona á Valabjörgum á Skörðum 1801 og í Litlabæ í Blönduhlíð 1845, ógift, en átti son með Jóni Jónssyni bónda á Framnesi í Blönduhiíð. Þorsteinsdóttur við Skeggsstaðafólkið, hafi verið á eftirfarandi hátt: Jón [faðir Bjargar húsfreyju á Skeggsstöðum] ? Björg Jónsdóttir, f. 1718, húsm. á Skeggsstöðum ? Eyjólfur Jónsson, f. 1743, b. á Eiríksstöðum, fóstri Halldóru Þorsteinsdóttur Halldóra Þorsteinsdóttir, f. um 1779, vk. á Brandsstöðum. Þeirri spurningu virðist vera hægt að svara ját- andi, að gefinni þeirri forsendu, að tilgáta Magnúsar Björnssonar fræðimanns á Syðra-Hóli um faðerni Bjargar á Skeggsstöðum eigi við rök að styðjast. Magnús gat sér þess til, að faðir Bjargar kynni að hafa verið Jón Eiríksson (f. um 1665), sem var með móður sinni og systkinum á Fjósum í Svartárdal 1703. Bróðir hans varTómas Eiríksson (f. um 1662), sem stóð fyrir búi móður sinnar og systkinaáFjósum 1703, en sonur hansvarJónTómasson (f. 1709eða 1710,d.áárunum 1787-1790) bóndi á Eyvindarstöðum 1744 til ævi- loka. Valgerður húsmóðir á Ytri-Löngumýri og Jón bóndi á Eyvindarstöðum hefðu þá verið bræðrabörn, og hún leitað skjóls hjá honum vegna frændsemi þeg- ar hún hætti búskaparbaslinu í Svínavatnshreppi. Helstu heimildir: Annálar 1400-1800, VI, 276; Húnvetningasaga II, 607; Saga frá Skagfirðingum II, 70; Jarðabók Arna Magnússonar og Páls Vídalíns IX, 90-92; Dómab. Hún. 9. maí 1750, 1. maí 1760, 27. apríl 1770 og 21. júní 1771; Dómab. Skag. 3. mars 1764 og 26. júní 1766; Hreppsb. Svínavatnshr. 1735-1777; Manntalsb. Hún.; Manntalsb. Skag.; Skiptab. Hún. 21. apríl 1845 (dánarbú Sigurðar Sigurðssonar í Þórormstungu); Biskupsskjalasafn B. Hólabiskupsdæmi, V, nr. 33 (hjúskaparleyfi Jóns JónssonarogMargrétarSveinsdóttur 1788);Skjalasafn RentukammersY,l 1 -45(legorðsmálaskjöl);Skjalasafn Stiftamtmanns III, 239 (legorðsmálaskjöl); Sýsluskj. Hún. X, nr. 3.b (legorðsmálaskjöl); Sýsluskj. Hún. XV, nr. 3.b (dánarbú Jóns Jónssonar á Refsstöðum); Lbs. 696, 8vo (minnisbók Jóns Espólíns); Ættatölub. Jóns Espólíns, 1177-1178, 1843-1845, 3960-3962, 4732 og 5569; Ættatölub. Ólafs Snóksdalíns, 724-725 (viðbætur); Eiðsstaðaætt (handrit Björns Bjarnasonar annálaritara á Brandsstöðum); Sóknarmannatal Bergsstaðaprestakalls; Kirkjubækur og Manntöl. Valgerður Jónsdóttir, f. nál. 1715, húsm. á Ytri-Löngumýri Þorsteinn Símonsson, f. um 1747 [1749 eða 1750?!] b. á Skinnastöðum http://www.ætt.is 17 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.