Unga Ísland - 01.01.1944, Blaðsíða 19
iE3
Kaj Munk og Nordahl Grieg
Þessi tvö skáld, sem þið sjáið hér
myndir af, hafa bæði fallið í valinn í
vetur. Nordalh Grieg fór sem fregnrit-
ari með flugvél til árásar á Þýzkaland
og var meðal þeirra, sem ekki komu
i aftur. („Unga ísland“ sagði lítið eitt
frá honum í októberblaði 1942). Kaj
Munk var mvrtur. Þjóðverji nokkur og'
tveir danskir nazistar komu kvöld eitt
heim til hans, höfðu hann með sér út í
*
Nordahl Grieg.
Kaj Mmik,
skóg og skutu hann þar. Hafði hann
lengi verið þyrnir í augum nazista
vegna þess „að hann hafði gerzt tals-
maður gegn þeim anda lýginnar og
ranglætisins, mannhaturs og kúgunar11
sem þjóð hans á við að búa um þessar
mundir.
Kaj Munk er þekktastur hér á landi
fyrir tvö leikrit, sem útvarpið hefur
flutt. Annað þeirra heitir ,,Orðið“ en
hitt ,,Niels Ebbesen“. Kannast margir
lesendur vafalaust við þau,
UNGA ÍSLAND
9