Unga Ísland - 01.01.1944, Side 28
oliuiýteiói
Heima:
Hjálpaðu foreldrum þínum og gerðu
allt, sem í þínu valdi stendur til að
gleðja þau. Vertu góður og hjálpsam-
um við systkini þín. Forðastu að vera
eigingjarn. Farðu snemma að hátta og
kastaðu ekki fötunum þínum út um
hvippinn og hvappinn. Leggðu þau
snyrtilega frá þér. Hafðu allt, sem þér
viðkemur, í röð og reglu.
í skólanum:
Sýndu kennurum þínum virðingu og
tiaust, en forðastu að leita eftir hylli
þeirra með smjaðri eða á kostnað
bekkjarfélaga þinna. Reyndu að fylgja
þeim reglum, sem þér eru settar. Séu
þær þér ógeðfelldar, skaltu vekja
máls á því með hógværð og rökstyðja
mál þitt. Mundu, að þú þarft ekkert
að óttast, farir þú með rétt mál. Við-
urkenndu síðan með hreinskilni, ef
þú kemst að raun um, að þér hefur
skjátlazt. Tálgaðu ekki borðið með
vasahnífnum þínum. Krassaðu ekki út
skólabækurnar þínar.
í leik:
Taktu tillit til óska leikfélaga þinna
o'g lofaðu þeim að ráða með þér. Vertu
ekki æstur og hávaðasamur. Sé ein-
hver minnimáttar, þá taktu tillit til
hans ekki síður en hinna.
Á götuimi:
Víktu til vinstri handar. Gerðu ekki
gys. að gömlu og einkennilegu fólki.
E.astaðu ekki bréfum eða öðru rusli
lu
á götuna. Kastaðu snjó í þá, sem eru í
snjókasti við þig, en ekki í þá, $em
um götuna ganga. Það er ekki kurteis-
legt.
Við matborðið:
Settu ekki hnífinn upp í þig, ettu
með gafflinum. Sjáðu um að rétta
borðfélögum þínum matinn, sem fjarst
þeim er. Hugsaðu ekki eingöngu um
sjálfan þig. Talaðu ekki með fullan
munninn. Tyggðu ekki með opnum
munni og ekki með framtönnunum, þó
að þú sjáir éinhvern gera það, sem
heldur að það sé fínt.
Ein syndin
býður annarri heim
Það er auðvitað ekki nema flest gott
um það að segja, að víða um land eru
starfandi bindindisfélög meðal barna,
er stefna gegn vín- og tóbaksnautn.
Gott vegna þess, að fræðsla um skað-
semi þessara eiturlyfja er hverjum
einum holl strax á unga aldri. Hitt er
þó mjög undir hælinn lagt, hvort
árangur þeirrar starfsemi er í sama
hlutfalli mikill og áhugi þeirra er góð-
ur og mikill, sem að félagsskapnum
standa. Þetta, sem nú er sagt, má ekki
misskilja. Það má t. d. ekki segja, að
ég vilji láta leggja barnastúkurnar nið-
ur, þó að mér virðist að þeir, sem hafa
verið félagar þar, standi litlu betur
að vígi gegn áfengis- og tóbaksnautn-
inni, þegar til unglingsáranna kemur,
en hinir, sem aldrei voru þar skrá-
settir. Þetta er mjög eðlileg afleiðing
þess, að sem betur fer er einstakling-
unum lítil þætta búin af vínnautn
UNGA ÍSLAND