Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Síða 24

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Síða 24
6 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA 1956). En ungur að aldri missti hann þau bæði og varð því snemma að fara að sjá fyrir sér sjálfur. Vann hann fram eftir árum að margvís- legum störfum, en lengstum ævinn- ar var hann bóndi, og frá 1911 og til dauðadags bjó hann á föðurleifð sinni, Víðivöllum við íslendingafljót. Það er því ekki orðum aukið, að hann hafi orðið að hafa skáldskapinn og önnur ritstörf sín í hjáverkum frá tímafrekum og lýjandi skyldustörf- unum. Af fyrrgreindum ástæðum má það einnig augljóst vera, að skóla- ganga Guttorms var af mjög skorn- um skammti, en hann bætti sér það upp með víðtækum lestri, og átti stórt og merkilegt bókasafn. Þegar þess er hins vegar gætt, und- ir hve andvígum skilyrðum Guttorm- ur vann hin bókmenntalegu störf sín, verður það ennþá athyglisverð- ara og aðdáunarverðara, hve mikið liggur eftir hann af ritstörfum í bundnu máli og óbundnu og hve margt af því bar aðalsmark hins sanna skáldskapar um hugkvæmni, frumleik og málsnilld. Umfangsmest er Ijóðagerð hans og hæst náði hann í þeirri skáldskapargrein, en um upp- talningu ljóðabóka hans og önnur rit og ritstörf leyfi ég mér að vísa til ritgerðar minnar um hann áttræð- an í þessu ársriti 1959. En skáldskapur Guttorms er eigi aðeins mikill að vöxtum, heldur einnig harla fjölskrúðugur um við- fangsefni, meðferð þeirra og svip. Ljóðagerð hans er, í stuttu máli, ágætlega lýst í þessum orðum Helga Sæmundssonar í grein hans í tilefni af íslandsferð Guttorms 1963, „Skáld- bóndi í heimsókn“ (Alþýðublaðið. 19. júní 1963): „Guttormur hugsar iðulega austur um haf í ljóði, en hann yrkir líka oft um fósturjörð sína, Nýja ísland, og ber henni söguna af karlmannlegri hreinskilni. Kvæði hans um baráttu frumbýlingsáranna þarf varla að kynna, en af þeim ber sennilega Sandy Bar hæst. Guttormur man glöggt þraut foreldra sinna og sam- ferðamanna þeirra heiman af ís- landi. Sjálfur hefir hann átt við fá- tækt að stríða, unnið hörðum hönd- um langan dag og verið úti í mis- jöfnum veðrum. Alls þessa gætir í ljóðum hans, en Guttormur yrkir líka um frjósemd og mildi Kanada, sléttuna, sem hefur brauðfætt hann, vatnið og bjartan morgun, fagurt hádegi og blítt kvöld. Jafnframt eru á skáldhörpu hans strengir, sem túlka fjalladyn, stormaþyt og vatna- gang, æsta hríð, dimma nótt og vind- barinn skóg. Ennfremur lýsir hann ógleymanlega daglegum störfum vestur-íslenzka bóndans og einnig á táknrænan hátt, því hann er meist- ari tvíleikans, þegar honum tekst bezt upp í kvæðum sínum. Þá rís skáldskapur Guttorms eins og fjall af sléttu, og ljóðstíll hans verður í senn sterkur og margþættur. Sá kveðskapur er íslenzkum bókmennt- um mikill fengur. Frásagnir og lýsingar láta Gutt- ormi J. Guttormssyni vel í Ijóði, en þó finnst mér kannski mest til um þann skáldskap hans, sem er tákn- rænn og heimspekilegur. Guttormur er harla ádeilugjarn, en tvíleikur þeirra kvæða hans bjargar þeim blessunarlega oft frá því hlutskipti að vera aðeins hávær áróður. Þess vegna munar um Guttorm, þegar hann fordæmir ranglæti og tekur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.