Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Blaðsíða 28

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Blaðsíða 28
10 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA Meðal annarra stofnenda þessa fé- lags voru þeir bræður, Magnús og Skafti Brynjólfssynir. Stephan var kjörinn ritari menningarfélagsins og honum falið að rita félaginu stofn- skrá (sjá meðfylgjandi mynd). Saga Hins íslenzka menningarfé- lags verður ekki rakin hér í smá- atriðum, enda er hún mjög kunn. Á það má þó minna, að stofnun fé- lagsins olli talsverðum deilum með þeim séra Jóni Bjarnasyni og Steph- ani G. Stephanssyni. Félagið starf- aði í fimm ár, 1888—1893, en þá höfðu sumir af atkvæðamönnum þess flutzt búferlum frá Norður Da- kóta. Eins og kunnugt er fluttist Stephan til Alberta vorið 1889. í athugasemd dr. Rögnvalds Pét- urssonar í Bréfum og ritgerðum IV, 152—153, er þess getið, að menning- arfélagið hafi haldið 16 fundi á þeim fimm árum, sem það starfaði. Svo vel vill til, að fundarbók menningar- félagsins hefir varðveitzt með fjórtán fundargerðum innfærðum, en tvær síðustu fundargerðirnar hafa verið lagðar inn í bókina á lausum blöð- um og er önnur þeirra skrifuð með blýanti. Forspjall félagsins, lög þess og sjö fyrstu fundargerðirnar hefir Stephan G. skrifað í bókina. Eftir það hafa aðrir menn tekið til við að rita, líkast til Ásgeir Líndal og ein- hverjir aðrir. Allt það, sem Stephan skrifaði í bókina, er birt hér í heilu lagi. Menningarfélagið hlýtur jafnan að koma við sögu, þar sem að því stóðu áhrifamenn, svo sem Stephan G., sem átti það hlutverk framundan, að verða stórskáld, og Björn Péturs- son, sem gerðist forgöngumaður um stofnun fyrsta únitarasafnaðarins meðal Islendinga í Vesturheimi; var sá söfnuður stofnaður í Winnipeg 1. febrúar 1891. Þess má geta hér, að líkur benda til, að eitthvað af fund- argerðum menningarfélagsins hafi týnzt. Ef sá grunur er réttur, hafa fundir félagsins orðið fleiri en 16 alls. Dómar manna um „Hið íslenzka menningarfélag“ hafa verið ærið misjafnir. Eins og ráða má af glefs- um úr fundargerningum, geðjaðist ýmsum kirkjunnar mönnum lítt að félaginu, og úr þeirra röðum kom sá dómur, að hér væri á ferðinni „dautt vantrúarfélag“, sem ekki væri orð- um á eyðandi. Löngu síðar tók merk- ur sagnfræðingur, dr. Þorkell heitinn Jóhannesson, svo til orða, að það „skyldi enginn efast um það, að bak við orð stofnskrárinnar (þ. e. for- spjall menningarfélagsins) felst djúp persónuleg reynsla, uppstigning í andlegum skilningi, sem skipar þeim, sem hana ritar og þeim sem hana játa, á allt annað og hærra þroska- stig í andlegum efnum en dæmi verða til fundin meðal bænda og búaliðs á þessum tíma, svo að sögur fari af hér heima eða meðal bænda vestra.“ (Nordæla 1956, 220). Ekki má sá, sem þetta ritar, segja neitt um álit sitt á menningarfélag- inu né um réttmæti þeirra dóma, sem nú hefir verið til vitnað. Slíkt kynni að jafngilda dómsuppkvaðningu um trúmál, og situr víst ekki á ritstjóra Tímaritsins að gera sig sekan um þess háttar goðgá. Segja má, að í þessum efnum verði hver að dæma fyrir sjálfan sig. Hins vegar má nefna það hér, að menningarfélagið stofnaði gott bókasafn, sem bauð Dakóta íslendingum upp á kjarn- \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.