Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Page 86

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Page 86
68 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA fulltrúa frá Reykjavík. Sýndi hann fagr- ar litskuggamyndir frá íslandi og út- skýrði þær. Svo var söngur á íslenzku og ensku. Miss Kathleen Shepard söng einsöng og undir spilaði amma hennar, Mrs. S. A. Björnson; Curtis Olafson söng einning einsöng og móðir hans, Mrs. Valdi Olafson var við hljóðfærið. Rausnarleg- ar veitingar voru bornar fram af konum deildarinnar. Norðurljós, Edmonton, Alta. (skýrslan lesin af forseta, Walter Arason): Ræðu- maður útskýrði það, að fjallkona þeirra þar vestra, Mrs. Della Roland, hefði ver- ið kosin fulltrúi á þing, en hefði ekki átt heimangengt. Deildin hefst mikið að og stendur í miklum blóma. í febrúar er haldið þorrablót; í marz og október er dans; í marz er fjallkonan kosin og efnt er árlega til útiskemmtunar á fullveldis- degi fslands, 17. júní; í september selur deildin “Grey Cup Pool tickets”, sem er mjög arðsamt, og hefir deildin lagt all- stóra fjárupphæð til elliheimilanna Höfn í Vancouver og Betel á Gimli. í desem- er er jólaskemmtun, þar sem öll börn fá smágjafir (Christmas stockings) og fjall- konan útbýtir gjöfum til ævifélaga. M'illi þessara hátíða efnir fólk til kaffidrykkju. Þrír meðlimir „Norðurljóss" eru í aðal- nefnd “Skandinavian Centre”, sem er merkilegt og fallegt samkomuhús hinna fimm skandinavísku þjóðabrota, en það var opnað 21. júní 1964. Scandinavian Centre gefur út átta blaðsíðna rit í hverj- um mánuði, og fá allir meðlimir ritið ókeypis. Deildin er að undirbúa íslenzku- kennslu, sem byrjað mun á í haust. Þá er í ráði að kaupa gamla heimilið, þar sem Stephan G. Stephansson bjó, og gera það að nokkurs konar minjasafni, en þetta þarf mikla umhugsun og undir- búning og er ekki langt komið enn, enda myndi deildin þurfa mikla utanaðkom- andi hjálp til þess að hrinda því í fram- kvæmd. Fulltrúar á þingi fögnuðu þess- ari góðu skýrslu með lófataki. G. L. Johannson kom þessu næst fram með segulband, sem Sigurður Sigurgeirs- son hafði sent frá íslandi, og hafði fólk ánægju af að hlusta á kveðjur, söng og annál ársins fluttan af Vilhjálmi Þ. Gísla- syni útvarpsstjóra. Frú Marja Björnson flutti fréttir af Icelandic Canadian Club í Toronto. — Séra P. M. Pétursson gat þess, að kom- ið geti til mála, að klúbburinn gangi í Þjóði’æknisfélagið sem deild eða sam- bandsdeild. Fjórði fundur, kl. 2 e. h. Fundargjörð lesin og samþykkt. For- seti bað alla, sem í nefndir höfðu verið skipaðir, að taka nú til starfa. En for- seti skemmti þeim sem eftir sátu með því að rifja upp einn þátt af menningar- starfi Þjóðræknisfélagsins, en það var um heimsóknir manna og kvenna, mest- megnis frá íslandi, sem hafa verið boðs- gestir félagsins á samkomum eða þing- um og sem oft hafa ferðazt víða um þessa álfu undir umsjón félagsins. Er þessa starfs getið í sögubroti um félagið, sem stjórnarnefndin er að undirbúa. Sýning hjá T. Eaion's félaginu. G. L. Johannson skýrði frá því, að hann hefði verið kvaddur á fund skandinavískra ræðismanna til þess að tala við danska ræðismanninn frá Toronto um fyrirhug- aða sýningu í októbermánuði á skandi- navískum munum. Samvinnumál við ísland (skýrslan var lesin af dr. Beck, í fimm liðum): 1. liður: Þingið þakkar komu Péturs Thorsteins- sonar sendiherra og frúar hans og herra Brynjólfs Jóhannessonar og mikið og gott framlag þeirra til samkomuhalda þings- ins; 2. liður lýsir ánægju vegna hópferð- arinnar til fslands s. 1. sumar og þakkar öllum þeim, sem hlut áttu að máli, sér- staklega öllum þeim á íslandi, sem áttu hlutdeild í þeim frábæru viðtökum, sem hópurinn að vestan átti þar að fagna. 3. liður: Þingið fagnar þeirri frétt, að „Ströndin" stofnar enn á ný til hópferð- ar til íslands á komanda sumri. 4. liður: Þingið lýsir ánægju sinni yfir viðleitni stjórnarnefndarinnar um að eiga sam- vinnu við íslendinga heima um þátttöku þeirra í heimssýningunni í Montreal 1967. 5. liður: Þingið hvetur fólk vort til þess að kaupa Vesiur-íslenzkar æviskrár og styðja að framhaldandi útgáfu ritsins með öðrum hætti. Allir liðir voru sam- þykktir og svo nefndarálitið í heild. Fimmii fundur, miðvikudag kl. 9.30 f.h. Fundargjörð var lesin og samþykkt. Forseti las það sem eftir var af nafna; lista boðsgesta Þjóðræknisfélagsins frá 1919 til 1965, og gat þess, að Karlakór Reykjavíkur hefði komið tvisvar, 1946 og 1960. G. L. Johannson bað þingið að afsaka sig frá fundi þar sem hann þyrfti að slást í. för með sendiherra Pétri Thorsteins- son, sem hafði verið sýndur sá heiður, að vera boðinn á fund með þingi Mani tóbafylkis og til hádegisverðar hjá H. H- Saunderson forseta Manitóbaháskóla. Forseti sýndi þingheimi fagran silfur- hníf, sem Þjóðræknisfélaginu hafði bor- izt frá Guðmundi Guðjónssyni, en hann hafði haldið veglegt samsæti fyrir hluta af vestur-íslenzka hópnum, sem farið hafði til íslands, og leysti alla út me° gjöfum. Skýrsla fjármálanefndar (skýrslan les- in af Páli Hallson, í tveim liðum): 1. li®'
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.