Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1966, Síða 41
AF BLÖÐUM STEPHANS G. STEPHANSSONAR
23
að skrifa þér, hún bæði að heilsa svo
óhófslega að hefði ekki undan, svo
ég hleypi henni ekki inn með kveðj-
ur nema til ykkar.
Vinsamlega,
Stephan G. Stephansson.
IV
Stephan G. Stephansson getur um
viðureign þeirra Egils Skallagríms-
sonar og Eiríks jarls í einu af bréf-
um sínum til Baldurs Sveinssonar
(Bréf og ritgerðir IV, 385). Vel má
Stephan hafa hugsað allmjög um
það efni, og er ekki örgrannt um, að
honum hafi fundizt Egill gera helzt
til mikla tilslökun við fjandmann
sinn, þegar hann féllst á að kveða
„Höfuðlausn“, enda var Stephani
ekki lagið að slaka á við mótgangs-
menn sína. Skoðun Stephans á
„Höfuðlausn“ kemur glögglega í ljós
í vísu, sem hann skrifaði framan á
eintak af fyrsta bindinu af Andvök-
um í virðingar- og þakkar skyni við
einhvern vin sinn. Skal nú þessum
þáttum lokið með því að tilgreina
vísuna, sem líklega hefir orðið út-
undan í útgáfum. Vísan er gædd
sama þrekinu og önnur verk Steph-
ans. Hún er þannig:
Ég játa beint, að þér í þínu sæti
ég þrengra gerði um Arinbjarnar rausn,
því konungs reiði ort ég að mér gæti,
en aldrei kvæði ég „Blóðöx“: Höfuðlausn.
Og hefðir þú ei hrakið svölu úr vígi
sem hávær glapti kvæðin seinvirkings:
Ég hefði sjálfur sökkt þeim — kannske í dýi —
ei sótt um styrk að reiða slíkt til þings.
f samræmi við samþykkt stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins
hefir Tímaritið nú verið stytt verulega. Af þessu leiddi að fella varð
niður hina fróðlegu þætti dr. Richard Becks, þ. e. Helztu atburðir og
Mannalál, en þættir þessir hafa birzt í Tímaritinu um mörg undan-
farandi ár. Vitaskuid er það okkur hryggðarefni að þurfa að lækka
seglin, en hjá því varð þó ekki komizt.
Ritstj.