Sunnudagsblaðið - 24.12.1959, Page 20

Sunnudagsblaðið - 24.12.1959, Page 20
Picasso-litir og snið NÝJASTA nýtt í heimi tízk- unnar eru kjóiar í Picasso- litum og með Picasso-sniði. Það væri því ekki úr vegi, að rifja uop svolítið um meist- ara Picasso. Hann selur verk sín, málverk og keramik, dýr- ara en nokkur starfsbræðra sinna. Hann er 78 ára gamall og á þrítuga konu, Jacqueline Roque. Ummæli hennar um mann sinn eru ekki af lakara taginu: ,.Ég get ekki hugsað mér að eiga yngri mann“. — Picasso hefur verið kvæntur fjórum sinnum áður og á fjög- ur börn. Þegar hann var 62 ára gamall, giftist hann franskri stúlku, Francoise, og eignaðist með henni tvö börn. — Picasso er dulnefni, en rét'tu nafni heitir hann Ruiz Blasco og er fæddur í Anda- lúsíu á Spáni. Hann býr nú í gamalli 40 herbergja höll í Frakklandi. Myndir frá ljós- rauða tímabilinu sínu, 1904— 06, seldi hann á sínum tíma á 75—100 krónur. Nú er verið á þessum myndum orðið 450 þúsund krónur! Og nú hefur Picasso unnið nýjustu afrek sín í heimi tízkunnar. í hausttízkunni í ár bar mikið á Picasso-litum og Picasso-sniðum. Picasso- litirnir eru hvítt, eins og ó- storkið keramik, hinir dökk- brúnu leir- og moldarlitir, sem eru mýktir með örlitlu gráu, — fjólublátt með grá- brúnum og svörtum lit, sem sagt allir þeir litir, sem Picas- so, BraqUe og flestir aðrir nú- tímamálarar nota mikið. Pic- asso-sniðin eru stórar kraga- lausar peysur í brúnum og fjólubláum lit, síðir kyrtlar, mjúkar línur, belti, sem eru ekki þröng eins og lífstvkki, heldur aðeins lauslega hnýtt- ar snúrur. Auk þess má nú leggja á borðið á la Picasso. Er þá not- aður leirbrúnn dúkur með svörtu mynstri og svartir diskar! Svolítið um þvott og slit á skyrtum ÞAÐ ER alls ekki þvottur- inn, sem slítur mest skvrtun- um, eins og álitið hefur verið. Að minnsta kosti fullyrða Svisslendingar það. Þeir hafa fyrir skemmstu látið gera rannsókn á þessu og niður- staðan: 'Skyrtur slitna helm- ingi meira af notkun heldur en þvotti. Rannsakaðar voru 26 eins poplin-skyrtur, sem notaðar voru af 13 persónum í mis- munandi stöðum. Skyrturnar. voru þvegnar með þriggja daga millibili. Þær voru þvegnar í þvottavélum með mismunandi aðferðum og sömuleiðis var þveginn bútur EFNIN í vetrarkjóium tízkuhússins Dior í ár cru sannarlega ínjög heppileg fyrir íslenzka kvenfólkið. Aðalefnin eru tweéd, jersey og skozk efni, svo að nú getum við klætt okkuir bæði í samræmi við veðrið og tízkuna. Þið skuluð því hugsa ykkur vel um, áður en þið kaupið mohair-kjól fyrir veturinn. BÁÐAR myndiirnar cru af sama kjólnum og þetta er kjóll frá Dior úr svörtu og hvítu tweedefni prýddur eins konar fléttu úr svartri ull. Við kjólinn er notað bireitt belti og jakki úr sama efni. Unga stúlkan með fléíturnar er ekki nýútskrifuð kennslukona, eins og ætla mætti, heldur engin önnur en kvikmynda- stjarnan Audry Hepurn. .18 Sunnudagsblaðið af efninu, sem skyrturnay voru saumaðar úr. Eftir 75 daga notkun og 25 þvotta, var tilrauninni hætt, af þeirri einföldu ástæðu, að flestar skyrturnar voru orðn- ar gatslitnar frá flibba og niður á ermar. Styrkleiki efnisins í skyrt- unum var aðeins 7,7%, en hins vegar 25,8% í efnisbút- unum, sem þvegnir voru jafn- oft. ! Lokaniðurstaða: Notkura slítur skyrtum um tvo þriðju hluta, en þvotturinn ekki nema einn þriðja. Hárgreiðslu- ! konan vissi < það fyrst EITT er sameiginlegt með hárgreiðslukonum, læknum og prestum: Þeim er trúað fyrir öllu. Eins og svo mörg- um konum hættir til, gerði hin 21 árs gamla Farah Dibai hárgreiðslukonu að trúnaðar- manni sínum. Það var í París og hún trúði annarri af systr- unum Carita, Rosie, fyrir því, að innan skamms mundi hún verða þriðja keisarafrú Persíu. — Ég vildi gjarnan gefa yð- ur nýja hárgreiðslu í brúðar- gjöf, sagði Rosie Carita við væntanlegan arftaka Sarovu. — Viljið þér í raun og vertt koma alla leið til Teheran, að- eins til þess að greiða mér? spurði Farah Diba. — Það vildum við báðar, ég og systir mín, mjög gjarnan. — Þá býð ég ykkur báðum. Auðvitað komst allt í upp- nám á hárgreiðslustofunni og margar af ríkustu konum heims, sem láta greiða sér þarna, þyrptust í kringum ungu stúlkuna. Á eftir fór Farah til Yves Saint-Laurent, þar sem tízkusýning ætluð henni einni beið hennar, svo að hún gæti li.tið sómasam- lega út við brúðkaupið. Farah Diba hefur í eitt ár stundað listnám við Ecole des Beaux Arts.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.