Sunnudagsblaðið - 24.12.1959, Síða 22
F
Séra Gunnar Arnason skrifar hér sfutía grein um þýzka myndlist-
armanninn Wilhelm Beckmann, sem búseftur hefur verið hér á
landi síðan 1935. Beckmann er dverghagur og hefur mest lagt
stund á smíði kirkjugripa, sem skreyta kirkjur víða um land.
12. MAÍ 1935 kom e/s Brú-
arfoss af hafi. Dagur var senn
allur, milt veður en regn-
suddi öðru hvoru, nótt orð-
in björt að kalla. Meðal far-
þega var ungur maður, þýzk-
ur, heldur lægri en í meðal-
lagi, grannvaxinn, dökkur á
brún og brá, fáskiptinn, en
ötullegur. Hann hafði aldrei
litið ísland augum fyrr en
þeíta, þekkti engan mann í
höfuðborginni, kunni ekki
málið. Eftir nokkurt slangur
um bteinn, gafst hann upp við
að finna gistihús, enda p.yngj-
an ærið létt. Hann festi aug-
un á Arnarhólnum, grænum
og auðum, og lét fyrirberast
í skjóli hins fvrsta landnáms-
manns, unz sól roðaði fjöll og
bæHnn reis á fætur. Þessi
umkomulausi útlendingur
át'i síðan eftir að verða hér
heimamaður. Nú er hann
Jöngu samgróinn landi og
þjóð, og hefur á fleiri en einn
veg sýnt það og sannað.
Wilhelm Beckmann hét
hann og kom velktur af hafi,
með furðu margbreytta
revnslu eins og fleiri fvrr og
síðar. Fæddur í Hamborg 5.
febrúar 1909. Foreldrar Wil-
helm Beckmann verkamaður
og borgarráðsmaður um skeið,
og kona hans Louise Beck-
mann f. Bierbaum. Snemma
beygðist krókurinn til þess,
sem verða vildi. Sveinninn
ungi undi sér vart stundinni
MYNDIR
MYNDIN efst hér á síðunni heitir „Bliml
kona á bæn“, og Beckmann hefur gefið hana
Blindravinafélagi íslands. Sömuleiðis hefur
hann gefið því styttuna, sem stóra myndin á þessari síðu er
af. Lága (réskurðarmyndin neðst á síðunni hér á móti heitir
„Kistulagning‘c og litla myndin fyrir ofan hana er af skírnar-
fonti, sem er í Búðarkirkju í Fáskrúðsfirði. M.yndin þar fyrir
ofan er af forkunnarfögrum útskornum vindlakassa á bcl'ði,
sem Backmann liefur einnig skorið haglega út. Og þá er komið
að stóru myndinni efst á næstu síðu, en hún er af listamannin-
um sjálfum, Wilhclm Beckmann. Hann stendur við eitt verka
sinna, minningairtöflu, sem er í Búðakirkju á Snæfellsnesi.
20 Sunnudagsblaðið